Fréttablaðið - 12.04.2018, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —8 5 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 1 2 . a p r Í l 2 0 1 8
Verð áður 449 kr. pk.
399 kr.pk
Vínber í boxi, græn/rauð 500 g
Fréttablaðið í dag
skoðun Þorvaldur Gylfason
segir frá blettaskallaskáldskap.
15
sport Pep Guardiola hefur ekki
unnið Meistaradeildina síðan
2011. 18
Menning Vigdís
Jakobsdóttir,
listrænn stjórn-
andi Listahátíðar
í Reykjavík,
kynnir sína
fyrstu hátíð.
26
lÍFið Sama mynd vekur mis-
munandi viðbrögð, segir Rakel
Tómasdóttir. 38
plús 2 sérblöð l Fólk
l Miðborgin
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
✿ Vilt þú að notkun
dísilknúinna ökutækja
verði bönnuð á Íslandi
fyrir árið 2030?
44%
39%
17%
n Andvíg(ur)
n Hlynnt(ur)
n Hlutlaus
lÍFið Helgi Björnsson fagnar sex-
tugsafmæli í júlí og blæs til stór-
tónleika. Í umfjöllun um starf hans
og söng kemur fram að Helgi hefur
selt 140.000 plötur á ferlinum. Alls
hafa Helgi og hljómsveitir hans
gefið út 25 plötur. Hann hefur leitt
Grafík, SSSól, Reiðmenn vindanna
og Kokteilpinnana auk þess að gefa
út tónlist í eigin nafni og er fyrir
löngu samofinn þjóðarsálinni.
Helgi hefur alltaf
verið líflegur á sviði. Á
öllum þeim tónleikum
sem hann hefur haldið
hefur hann notast við
789 jakka, 1.876 sprey-
brúsa í hárið og kast-
að 724 nærbuxum
út í salinn. Geri
aðrir betur.
– bb / sjá síðu 36
Helgi Björns og
724 nærbuxur
uMHVerFisMál Fjörutíu og fjögur
prósent þeirra sem afstöðu tóku í
nýrri skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins og vefmiðilsins frettabladid.is
eru andvíg banni við notkun dísil-
bíla fyrir árið 2030. Litlu færri, eða
39 prósent, eru hlynnt slíku banni.
Sautján prósent segjast hlutlaus.
Fjölmargar þjóðir og borgir hafa
boðað bann við notkun bifreiða
sem knúnar eru af jarðefnaeldsneyti
til að stuðla að hraðari orkuskiptum
í samgöngum. Rökstuðningur fyrir
slíku banni er yfirleitt með vísunum
í bætta heilsu fólks með minna svif-
ryki og að þetta sé mikilvæg aðgerð
til að berjast gegn loftslagsbreyting-
Dísilbann skiptir borgarbúum í tvennt
um. Víðast hvar er stefnt á að inn-
leiða slíkt bann á árunum 2025 til
2040. Á Íslandi er stefnan sú að árið
2030 verði hlutfall endurnýjanlegrar
orku í samgöngum 40 prósent.
Þegar rýnt er í svörin í könnun
Fréttablaðsins, sem náði til 800
manns með lögheimili í Reykjavík
og valdir voru með slembiúrtaki
úr þjóðskrá, er ljóst að mikill hluti
Reykvíkinga hefur skoðun á málinu
en 91 prósent aðspurðra tók afstöðu
til spurningarinnar, aðeins 5 pró-
sent voru óákveðin.
Athygli vekur að nánast sömu
niðurstöður blasa við þegar spurðir
eru einstaklingar á aldrinum 18 til
49 ára og 50 ára og eldri. Í báðum
aldursbilum eru 39 prósent hlynnt
banni en 45 prósent þeirra sem eru
50 ára og eldri eru andvíg banni.
„Það kemur aðeins á óvart hvað
það eru margir hlynntir slíku banni.
Ég geri ráð fyrir því að það sé vegna
þess hve mikil umræða hefur verið
um sótmengun frá dísilbílum,“
segir Hjálmar Sveinsson, formaður
Umhverfis- og skipulagsráðs.
Hjálmar kveðst hafa ákveðnar
efasemdir um að bann sé endilega
rétta leiðin í þessum efnum. Væn-
legra sé að haga málum þannig að
hagstæðara verði að kaupa rafdrifna
bíla. – khn, gþs
Tæp 40 prósent Reykvík-
inga eru hlynnt því að
bann verði sett á notkun
dísilolíu á ökutæki á
Íslandi fyrir árið 2030
samkvæmt könnun
Fréttablaðsins og vef-
miðilsins frettabladid.is.
Fjöldi fylgjenda banns
kemur á óvart, segir for-
maður umhverfisráðs.
Hringurinn hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins er þau voru veitt í þrettánda sinn í gær. „Við Hringskonur erum djúpt snortnar af þessum mikla heiðri,“ sagði Vilborg Ævarsdóttir,
varaformaður Hringsins. Mikill fjöldi Hringskvenna var við afhendinguna, en í félaginu eru um 370 konur. Verðlaun í flokknum Til atlögu gegn fordómum hlaut Páll Óskar Hjálmtýsson, í
flokknum Frá kynslóð til kynslóðar hlaut Atli Svavarsson verðlaun. Guðmundur Fylkisson var kjörinn Hvunndagshetjan og Herdís Egilsdóttir hlaut heiðursverðlaunin. Fréttablaðið /Ernir
1
2
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
A
-0
8
F
C
1
F
6
A
-0
7
C
0
1
F
6
A
-0
6
8
4
1
F
6
A
-0
5
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K