Fréttablaðið - 12.04.2018, Side 4

Fréttablaðið - 12.04.2018, Side 4
Tilfinningin er að það þyki jákvætt að vera virkur þátttakandi í þessum tiltekna flokki. Gianluca Esposito, sérfræðingur GRECO StjórnSýSla Íslensk löggæsla þykir sérstaklega berskjölduð fyrir póli­ tískum áhrifum að mati GRECO, samtaka ríkja gegn spillingu, sem birta í dag niðurstöður úttektar sinnar um æðstu handhafa fram­ kvæmdarvalds og löggæslu á Íslandi. „Samkvæmt samtölum okkar við fólk í vettvangsferðinni til Íslands er það sambland nokkurra þátta sem bendir til þessa,“ segir Gian­ luca Esposito, sérfræðingur GRECO sem kom hingað til lands síðastliðið haust og er einn höfunda skýrslunn­ ar. Esposito vísar í fyrsta lagi til þess að þrátt fyrir að lögreglan sé í orði kveðnu undir stjórn og háð eftir­ liti ríkislögreglustjóra, sé ábyrgðar­ keðjan innan löggæslunnar ekki lóð­ rétt heldur lárétt. Þannig heyri ekki aðeins ríkislögreglustjóri beint undir ráðherra, heldur heyri lögreglustjór­ ar umdæmanna í raun ekki undir ríkislögreglustjóra heldur einnig beint undir ráðherra. Þetta þýði að allir níu lögreglustjórar landsins stýri daglegum löggæslustörfum undir beinni stjórn ráðherra. Við þetta bætist einnig að héraðssaksóknari, sem hefur eftirlitsskyldur gagnvart löggæslunni og ákæruvaldi, lýtur einnig skipunarvaldi ráðherra. Í öðru lagi séu ekki aðeins helstu stjórnendur innan lögreglunnar heldur einnig óbreyttir lögreglu­ menn skipaðir til fimm ára í senn. „Segjum sem svo að ráðherranum líki ekki við einhvern, þá er tiltölu­ lega auðvelt að framlengja ekki ráðn­ ingu viðkomandi án þess að ráðherra þurfi að gefa sérstaka skýringu á því,“ segir Esposito og vísar einnig til þess að þrátt fyrir reglur um skipanir í embætti mæli GRECO sérstaklega með því að ráðningar­ og skipunar­ ferli innan lögreglunnar verði opn­ ara og gegnsærra, lausar stöður og embætti verði auglýst, hæfniskröfur skýrar og mat á hæfni umsækjenda fari fram eftir gegnsæjum og skýrum reglum. Í þriðja lagi segir E s p o s i t o s a m ­ tökin hafi fundið fyrir þeirri ásýnd fólks í vettvangsferð sinni að sterk og rót­ gróin tengsl séu milli íslenskra löggæsluyfirvalda og til­ tekins stjórnmálaflokks og fyrir því muni vera sögulegar ástæður. „Til­ finningin er að það þyki jákvætt að vera virkur þátttakandi í þessum til­ tekna flokki,“ segir Esposito og bætir við að GRECO hafi einnig orðið áskynja um þau viðhorf innan lög­ reglunnar að ákjósanlegt þyki fyrir frama innan löggæslunnar að hafa góð tengsl við eða vera meðlimur í viðkomandi stjórnmálaflokki. Að lokum segir Esposito samtökin hafa fengið upplýsingar og dæmi um tilvik innan lögreglunnar, þar sem þessi hætta á pólitískum afskiptum hafi raungerst með beinum afskipt­ um ráðherra af störfum lögreglu. adalheidur@frettabladid.is Umboðsaðili Jeep - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.jeep.is www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16 ® ALLT SEM ÞÚ ÞARFT Í JEPPA LITLI BRÓÐIR GRAND CHEROKEE DÍSEL 2.0L 140 HÖ. EÐA 170 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF MEÐ 4 DRIFSTILLINGUM VERÐ FRÁ 5.490.000 KR. Select-TerrainTM fjórhjóladrif með 4 drifstillingum, árekstravörn, akgreinaaðstoð, leður/tau áklæði, hiti í stýri og framsætum, hraðastillir, snertiskjár, regnskynjari, LED ljós að framan og aftan,Bluetooth, leðurklætt aðgerðarstýri, varadekk í fullri stærð, 17” álfelgur o.fl. Einnig fáanlegur með 170 hö. bensínvél, sjálfskiptur. Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. VERÐLÆKKUN alSír Tala látinna var komin upp í 257 í gærkvöld eftir að herflugvél brotlendi á norðurströnd Afríku­ ríkisins Alsírs í gær. Að sögn BBC voru í vélinni 26 meðlimir Polisario­hreyfingarinnar, sem Alsír styður í baráttu um sjálf­ stæði Vestur­Sahara frá Marokkó. Vélin brotlenti á Boufarik­her­ flugvellinum nærri höfuðborginni Algeirsborg. Tildrög slyssins voru ókunn áður en Fréttablaðið fór í prentun en æðstu yfirmenn hersins hafa fyrirskipað ítarlega rannsókn á slysinu. Þetta er ekki fyrsta mannskæða flugslys alsírskrar herflugvélar á þessum áratug. Í febrúar 2014 fórust 77 starfsmenn hersins og fjölskyldu­ meðlimir þegar flugvél brotlenti á fjalli í Oum al­Bouaghi­héraði á leið sinni til Constantine. – þea Yfir 250 fórust í flugslysi í Alsír Ungverjaland Áttatíu ára sögu ungverska dagblaðsins Magyar Nemzet lauk í gær. Útgefandinn sagði ástæðuna slæma fjárhags­ stöðu og versnandi horfur fyrir fjölmiðlafrelsið eftir kosningasigur flokks Viktors Orbán, Fidesz. Blaðið var einn stærsti stjórnar­ andstöðumiðillinn í Ungverjalandi en með vaxandi áhrifum Orbáns dróst lesturinn saman. Í odda skarst milli eigandans, Lajos Simicska, og Orbáns og Simicska leitaði hefnda. „Nú þegar Orbán hefur náð að verja meirihluta sinn telur Simicska tímasóun að halda útgáfunni áfram. Með tilliti til niðurstaðna kosning­ anna býst hann við hefndum ríkis­ stjórnarinnar og hefur því skellt í lás,“ sagði Tamas Boros, stjórnmála­ greinandi hjá Policy Solutions, við Reuters. – þea Hætta útgáfu vegna skerts fjölmiðlafrelsis UMHverFISMÁl Landvernd hefur kært ákvörðun Skipulagsstofnunar þess efnis að endurbætur á Þing­ vallavegi milli þjónustumiðstöðvar og syðri vegamóta við Vallarveg í Blá­ skógabyggð skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum. Í kæru Landverndar til úrskurðar­ nefndar umhverfis­ og auðlinda­ mála er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi og að endurbætur á Þingvallavegi verði stöðvaðar á meðan kærumálið er hjá nefndinni. „Þessi krafa er gerð til að koma í veg fyrir yfirvofandi náttúruspjöll,“ segir í kærunni. „Fyrir liggur að framkvæmdaraðilar eru tilbúnir að hefja verkið á næstu vikum eða mán­ uðum.“ Í rökstuðningi sínum vísar Land­ vernd til ýmissa verndarákvæða sem eiga við um svæðið. Svæðið njóti verndar samkvæmt lögum um þjóðgarðinn á Þingvöllum og sam­ kvæmt skráningu á Heimsminja­ skrá UNESCO. Einnig sé vistkerfi á svæðinu afar viðkvæmt. Jafnframt sé ljóst að áhrif á birki­ skóg og eldhraun á svæðinu verði neikvæð, en þessi svæði njóta sér­ stakrar verndar samkvæmt náttúru­ verndarlögum. Þá bendir Landvernd á að í ákvörðun Skipulagsstofnunar komi fram að áhrif á fernar fornleifar verði neikvæð og óafturkræf. Þó séu áhrif­ in ekki talin breyta einkennum jarð­ minja í þjóðgarðinum á Þingvöllum. „Skipulagsstofnun segir þrátt fyrir ofangreint að endurbætur á Þing­ vallavegi séu ekki líklegar til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfis­ áhrif. Landvernd bendir aftur á móti á framangreindar niðurstöður stofnunarinnar sem sýna sannarlega neikvæð umhverfisáhrif. Hvenær verða umhverfisáhrif framkvæmda umtalsverð?“ segir í kærunni. Landvernd telur málið vanreifað og að full ástæða sé til að opna fyrir samráð meðal almennings um fram­ kvæmdina. – khn Landvernd vill Þingvallaveg í umhverfismat og krefst stöðvunar Fréttablaðið/Vilhelm GRECO segir lögregluna óvarða gagnvart pólitísku áhrifavaldi Íslenskir viðmælendur GRECO segja sterk rótgróin tengsl milli lögreglunnar og tiltekins stjórnmálaflokks. Einn þeirra þátta sem bendi til að löggæsluyfirvöld séu berskjölduð gagnvart pólitískum áhrifum, segir sér- fræðingur GRECO. Meðal tilmæla samtakanna er endurskoðun á valdauppbyggingu innan löggæslunnar. Tilmæli um úrbætur Auk tilmæla GRECO um skýrari reglur um ráðningar og skipanir í embætti er mælst sérstaklega til þess að valdauppbygging innan lögreglunnar verði endurskoðuð með það að markmiði meðal annars að takmarka afskipti ráð- herra og stjórnmála. Skerpa þurfi einnig á ábyrgð og leiðtogahlutverki ríkislög- reglustjóra. Þá er mælt með því að allt innra eftirlit verði á borði miðlægrar deildar sem heyri undir ríkislögreglustjóra. Bent er á að hér á landi séu minniháttar brot í starfi meðhöndluð af lög- reglustjórum umdæmanna og í viðtölum sendinefndar GRECO hafi efasemdum verið lýst um að lögreglumenn sem vinni saman í daglegum verkefnum hafi nægi- lega fjarlægð til að leggja óháð og hlutlaust mat á störf félaga sinna eða stofnana. Þá er mælst til þess að rammi utan um ábendingar um meint brot lögreglumanna, stjórnenda eða stofnana verði styrktur og vernd fyrir afhjúpendur innan löggæslunnar verði tryggð með skýrum hætti. Aðspurður segir Esposito mikilvægt að slíkir ferlar séu skýrir og einnig, ef sýnt þyki að hún dugi ekki, þurfi að tryggja þeim vernd sem leita þurfi út fyrir löggæslustofnanir, til dæmis til annarra yfirvalda eða fjöl- miðla. afskipti hönnu birnu Kristjánsdóttur, þá- verandi ráðherra, af rannsókn lekamálsins í lögreglustjóra- tíð Stefáns eiríkssonar eru öllum kunn. 1 2 . a p r í l 2 0 1 8 F I M M t U d a g U r4 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a ð I ð 1 2 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 6 A -2 1 A C 1 F 6 A -2 0 7 0 1 F 6 A -1 F 3 4 1 F 6 A -1 D F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.