Fréttablaðið - 12.04.2018, Side 10

Fréttablaðið - 12.04.2018, Side 10
www.n1.is facebook.com/enneinn Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægisíðu 440-1320 Langatanga Mosfellsbæ 440-1378 Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372 Dalbraut Akranesi 440-1394 Réttarhvammi Akureyri 440-1433 Opið mán –fös kl. 08-18 laugardaga kl. 09-13 www.n1.is  Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is Öruggari á Michelin dekkjum Alltaf til staðar Michelin CrossClimate+ • Sumardekk fyrir norðlægar slóðir • Öryggi frá fyrsta til síðasta kílómetra • Halda eiginleikum sínum vel • Gott grip við flest allar aðstæður • Endingarbestu sumardekkin á markaðnum Michelin Primacy 4 • Öryggi frá fyrsta til síðasta kílómetra • Frábært grip og góð vatnslosun • Einstakir aksturseiginleikar Michelin Pilot Sport 4 • Sumardekk fyrir þá kröfuhörðustu • Gefa óviðjafnanlega aksturseiginleika • Frábært grip og góð vatnslosun • Endingarbestu dekkin á markaðnum í sínum flokki Meðallaun starfsmanna Stefnis, dótturfélags Arion banka og stærsta sjóðastýringarfyrirtækis landsins, námu tæplega 2.100 þúsundum króna á mánuði í fyrra og hækk- uðu um 13 prósent á milli ára. Af stærstu sjóðastýringarfélögunum greiddi Stefnir sem fyrr hæstu laun- in á síðasta ári en laun starfsmanna GAMMA Capital Management hækkuðu hins vegar mest, eða um 327 þúsund krónur á mánuði, og voru þau að meðaltali um 1.716 þúsund. Í prósentum talið hækkuðu laun starfsmanna félagsins, en fjöldi þeirra var að meðaltali 22 á árinu, því um 23,5 prósent á árinu. Launagreiðslur til starfsmanna Íslandssjóða og Landsbréfa, dóttur- félaga Íslandsbanka og Landsbank- ans, voru að meðaltali um 1.670 þúsund krónur á mánuði á liðnu ári, eða um 400 þúsundum lægri en hjá Stefni. Á meðan laun starfsmanna Landsbréfa hækkuðu að jafnaði um 5 prósent í fyrra lækkuðu þau um 4,7 prósent í tilfelli Íslandssjóða en það skýrist að hluta til vegna starfslokasamnings við fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins sem var gjaldfærður á árinu 2016. Starfsmenn Júpíters rekstrar- félags, dótturfélags Kviku banka, voru hins vegar með næsthæstu launin á meðal helstu sjóðastýr- ingarfyrirtækja landsins. Námu þau að meðaltali nærri 1.900 þúsundum króna í fyrra og hækkuðu um rúm- lega 100 þúsund á milli ára. Upplýsingar um launagreiðslur fyrirtækjanna byggja á nýbirtum ársreikningum þeirra um heildar- laun og meðalfjölda starfsmanna á árinu 2017. Í einhverjum tilfellum, meðal annars hjá Stefni, innihalda þær greiðslur kaupauka sem stjórn- endur og lykilstarfsmenn félaganna fengu í sinn hlut í fyrra. Hagnaðurinn jókst mikið í fyrra Sjóðastýringarfélög stóru bankanna eru hvað umsvifamest á eignastýr- ingarmarkaði og voru þau með eignir í stýringu upp á samanlagt um 760 milljarða í árslok 2017. Sé hins vegar einnig tekið tillit til Júp- íters og GAMMA eru þessi fimm stærstu sjóðastýringarfyrirtæki landsins með um 970 milljarða eignir í stýringu. Íslandsbanki og Landsbankinn eru eins og kunnugt er í eigu íslenska ríkisins. Þrátt fyrir að eignir í stýringu Stefnis hafi minnkað um lið- lega 60 milljarða á árinu, meðal annars vegna innlausna lífeyris- sjóða, þá er félagið með nærri 350 milljarða í stýringu og nam hagn- aður þess 1.680 milljónum í fyrra og næstum tvöfaldaðist á milli ára. Afkoma Landsbréfa batnaði einn- ig umtalsvert á síðasta ári, einkum vegna árangurstengdra þóknana af rekstri framtakssjóða, þar sem hagnaðurinn jókst um rúmlega 400 milljónir og var samtals 1.113 millj- ónir. Hagnaður Íslandssjóða var 183 milljónir borið saman við 97 millj- óna hagnað árið áður. Júpíter skilaði um 59 milljóna króna hagnaði í fyrra og tvöfaldað- ist hann á milli ára. Eignir í stýringu voru rúmlega 70 milljarðar í árslok, borið saman við 31 milljarð árið áður, en sú aukning skýrist einkum af sameiningu við sjóði sem áður voru í stýringu Virðingar og Öldu en félögin voru yfirtekin af Kviku banka á árinu. Á sama tíma og meðallaun starfsmanna GAMMA hækkuðu verulega á síðasta ári versnaði afkoma félagsins aftur á móti og dróst hagnaðurinn saman um rúmlega fjórðung og var tæplega 626 milljónir. Námu eignir í stýringu GAMMA 139 milljörðum í árslok. Á undanförnum árum hefur verið hvað mest launaskrið á meðal sjóðastýringarfélaganna hjá Stefni. Meðal mánaðarlaun starfsmanna Stefnis námu þannig um 820 þús- undum króna á árinu 2009 og hafa þau því hækkað um liðlega 155 pró- sent á síðustu átta árum. Á sama tíma hefur almenn launavísitala hækkað um rúmlega 60 prósent. Þá eru meðallaun starfsmanna í stærstu sjóðastýringarfyrirtækjum landsins töluvert hærri en almennt þekkist innan fjármálageirans. Heildarlaun í fjármála- og vátrygg- ingarstarfsemi voru að meðaltali um 893 þúsund krónur á mánuði á árinu 2016, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands, en ekki hafa verið birtar tölur fyrir árið 2017. hordur@frettabladid.is Með rúmlega tvær milljónir á mánuði Stefnir borgar hæstu launin á meðal stærstu sjóðastýringarfyrirtækja landsins og voru laun starfsmanna að meðaltali um 2.083 þúsund á mánuði í fyrra. Launin hækkuðu hins vegar mest á milli ára hjá GAMMA, eða að meðaltali um nærri 330 þúsund krónur á mánuði. markaðurinn Meðallaun starfsmanna stærstu sjóðastýringarfyrirtækjanna á árinu 2017 Landsbréf Stefnir Júpíter Íslandssjóðir GAMMA 1.673.000 kr. 5% hækkun milli ára 6% hækkun milli ára 12,9% hækkun milli ára 23,5% hækkun milli ára 2.083.000 kr. 1.885.000 kr. 1.667.000 kr. 1.716.000 kr. 4,7% lækkun milli ára 1 2 . a p r í l 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r10 F r é T T I r ∙ F r é T T a B l a ð I ð 1 2 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 6 A -4 4 3 C 1 F 6 A -4 3 0 0 1 F 6 A -4 1 C 4 1 F 6 A -4 0 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.