Fréttablaðið - 12.04.2018, Page 16

Fréttablaðið - 12.04.2018, Page 16
Nú eru meira en fjögur ár síðan ég fékk fyrsta rafbíl-inn. Það verður ekki aftur snúið hvað mig varðar. Á þessum fjórum árum hefur mikið vatn runnið til sjávar. Tæknin er komin til að vera og sparnaður í eldsneytis- kostnaði er mikill. Já og sótmengun er engin. Samkvæmt upplýsingum Orkuveitu Reykjavíkur er dreifi- kerfi raforku fært um að anna um 50.000 bílum án frekari fjárfestinga í innviðum. Þessi fjöldi þarf að kaupa jarðefnaeldsneyti fyrir um 25 milljarða króna. Raforkan er ekki bara hrein, heldur kostar hún Orkuveituna lítið ef hlaðið er á nótt- unni. Hreinn hagnaður fyrir bæði Orkuveituna og notendur. Sjálfstæðismenn leggja til úrbætur Verð á rafbílum hefur lækkað umtalsvert og eru þeir í dag orðnir raunhæfur og samkeppnisfær kost- ur, bæði í verði og drægni. Helsti þröskuldurinn er að finna hleðslu- staði fyrir þá sem búa í fjölbýli. Þess vegna hafa Sjálfstæðismenn í borg- arstjórn lagt fram tillögu þess efnis að auðvelda aðgengi að hleðslu- stöðvum í borginni. Slíkt aðgengi tryggir val fyrir fólk. Í borgarland- inu er víða hægt að kaupa bensín og dísil. Það er eðlilegt að aðgengi fyrir rafmagn sé líka gott. Nýjar byggingar verða eftirsóknarverðari ef hægt er að hlaða rafmagnsbíla nálægt þeim. Þannig er borgin að styðja við græn sjónarmið, bæta hag íbúa og Orkuveitunnar án þess að stýra fólki með boðum og bönnum. Hvergi í heiminum á betur við að auka rafbílanotkun en einmitt á Íslandi. Og einmitt í Reykjavík þar sem þéttbýlið er mest. Í þessum mánuði bárust fregnir af því að sót- mengun sé á pari við þá sem er í Rot- terdam. Til að ráðast á þetta vanda- mál þarf bæði að minnka upptök svifryks og þrífa götur miklu betur en nú er gert. Hluti af lausninni er að auðvelda fólki að velja rafmagn á bílinn sinn. Taka sjálfstæða ákvörð- un um að velja hreina íslenska orku, spara þannig útgjöld og vinna að hreinni Reykjavík. Við leggjum til að borgin bæti aðgengi og stígi þann- ig skref inn í 21. öldina. Með þessu getum við breytt borginni til hins betra. Reykjavík leiði rafbílavæðingu Opið bréf til Halldórs Hauks-sonar, sviðsstjóra meðferðar-sviðs Barnaverndarstofu. Þú veist það, Halldór, að þegar börnin okkar veikjast lífshættu- lega þá er brunað með þau á barna- spítalann þar sem læknateymi tekur á móti þeim og hefur lífsbjargandi meðferð. Allt er gert til að bjarga barninu. Þú veist það líka, Halldór, að þegar barn í neyslu lífshættulegra fíkniefna þarf lífsbjargandi meðferð þá eru úrræðin fá og jafnvel ekki til staðar. Þú veist það, Halldór, að þínu starfi fylgir mjög mikil ábyrgð. Ef við berum saman barnaspítalann og meðferðarkerfi barna þá ert þú yfirlæknirinn yfir meðferðar- kerfinu. Sem slíkur átt þú að finna allar mögulegar leiðir til að bjarga börnum í neyslu. Þú átt að hlusta á „læknana“ sem hafa skoðað og greint „sjúklingana“ og eru með rökstuddar tillögur um lífsbjarg- andi meðferð. Þú átt að sjá til þess að „sjúklingarnir“ fái viðeigandi meðferð og þú átt að sjá til þess að úrræðin til lækninga séu sem best og sem flest. Þitt eina markmið á að vera að finna leiðir til að bjarga börnum sem eru í neyslu lífshættu- legra fíkniefna. Síðustu ár hefur þú látið loka meðferðarheimilum barna víðs- vegar um landið. Á sama tíma hefur þú lagt alla þína krafta í MST-með- ferðarkerfið sem gengur út á að barnið fái meðferð í sínu umhverfi – inni á heimilinu. Þú veist það jafnvel og ég að MST-kerfið virkar ekki fyrir börn sem eru komin í lífshættulega neyslu fíkniefna. Þú veist að MST getur virkað ágætlega fyrir börn sem eru á fyrstu stigum hegðunar- vanda og það gæti hentað ágætlega sem eftirmeðferðarúrræði fyrir börn sem eru að koma úr langtíma- meðferð. Þú veist líka að MST-með- ferðarkerfið er í eigu bandarísks fyrirtækis sem Barnaverndarstofa greiðir þóknanir fyrir að nota. Þú veist að það er til myndband af börnunum á meðferðarheimilinu Lækjarbakka sem voru að sniffa úr gaskút í helgarleyfi í sumarbústað með starfsmönnum meðferðar- heimilisins. Ég veit að Barnavernd- arstofa fékk upplýsingar um neyslu barnanna en kaus að láta barna- verndarnefndir þeirra sem áttu í hlut ekki vita. Þú veist hvað starfsmennirnir á meðferðargólfinu segja um ástandið í meðferðarmálum barna í dag! Þeir segja frá allt öðrum veruleika en þú sagðir frá í Kastljósi RÚV í vikunni. Þeir segja að MST-meðferðarkerfið virki ekki fyrir börn með mjög erf- iðan hegðunarvanda eða börn í lífshættulegri neyslu fíkniefna. Þeir segja að það vanti sérhæfð með- ferðarheimili. Þeir segja að ekki sé hlustað á þeirra tillögur um úrbætur í meðferðarkerfinu. Þeir segja að þú og aðrir starfsmenn Barnaverndar- stofu þaggið niður í þeim þegar þeir vilji gagnrýna meðferðarkerfið sem þú stjórnar. Veistu hvað þú ert búinn að gera, Halldór? Þú hefur byggt upp kerfi sem stjórnað er af örfáum einstakl- ingum sem sitja við skrifborð í turni Barnaverndarstofu og gefa ordrur um hitt og þetta án samráðs við mikilvæga starfsfólkið sem vinnur við að reyna að bjarga börnunum okkar. Það fólk er að gefast upp í starfi sínu – það eina sem heldur í það eru þessir pínulitlu sigrar þegar það sér á eftir barni nokkuð visst um að það muni pluma sig næstu mán- uði og jafnvel til langframa. Ég styð starfsfólkið í meðferðar- kerfinu sem er að vinna með erfiðustu börn landsins oft við bágbornar aðstæður. Ég styð sam- tökin Olnbogabörn og Sigvalda og Öddu sem eru nú að berjast fyrir lífi sonar síns. Ég stóð einu sinni í þeirra sporum þegar ég var að reyna að bjarga stelpunni minni. Það tókst því miður ekki en þú hefur nú tæki- færi til að gera allt sem í þínu valdi stendur til að byggja upp meðferð- arkerfi sem hefur það eina markmið að bjarga börnunum okkar. Þú veist að það átt þú að gera, Halldór. Þú veist þetta allt Guðjón Brjánsson alþingis-maður skrifaði í gær, 11.  apríl, þriðju greinina í tilefni skýrslu Ríkisendurskoðunar um Sjúkratryggingar Íslands sem kaupanda heilbrigðisþjónustu. Í henni tínir hann til athugasemdir sem varða SÍ og hann telur að eigi sér stoð í skýrslunni. Margar þeirra eru réttmætar, aðrar spurning um sjónarhorn og enn aðrar eru byggð- ar á misskilningi eða rangtúlkun. Mergur máls Þær niðurstöður og ábendingar sem Ríkisendurskoðun setur fram eru mikilvægt innlegg í þá vinnu sem nú fer fram á vegum Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og lýtur að mótun heilbrigðisstefnu til næstu ára. Það blasir jafnframt við að Sjúkratryggingar Íslands hafa þar stóru hlutverki að gegna og að það er orðið brýnt að hefja uppbyggingu stofnunarinnar sem slegið var á frest vegna efnahags- hrunsins. Spurn eftir heilbrigðis- þjónustu er að vaxa langt umfram hagvöxt og þar af leiðandi er afar brýnt að innleiða skilvirka for- gangsröðun fjármuna. Með hlið- sjón af þörfum sjúkratryggðra verður að skilgreina vel þá þjón- ustu sem við viljum að ríkið taki þátt í að greiða fyrir. Til að tryggja að þjónustan sé veitt með heild- stæðum og hagkvæmum hætti verða greiðslur ríkisins að fylgja sjúklingum til veitenda þjónust- unnar í samræmi við þörf og fjölda verka. Til þess voru og eru Sjúkra- tryggingar Íslands. Margar hliðar máls Umfjöllun um einstök mál eða athugasemdir í skýrslu Ríkisendur- skoðunar getur verið vandasöm. Dæmi um það er umfjöllun Guð- jóns í fyrstu tveimur greinunum, annars vegar um lækniskostnað og hins vegar um endurhæfingu. Guðjón gerir athugasemd við að kostnaður SÍ vegna sérgreina- læknaþjónustu hafi aukist „gríðar- lega á undanförnum árum, langt umfram aðra þætti og hlutfallslega yfirgnæfandi mest á höfuðborgar- svæðinu.“ Veruleikinn er á hinn bóginn ekki svarthvítur heldur í lit. Það sést þegar þessi tilvitnun er borin saman við þá staðreynd að frá árinu 2014 til 2017 hefur þjón- ustuverð Landspítalans (svokallað DRG-verð) hækkað um 27,8%, en einingarverð samkvæmt samningi SÍ við sérgreinalækna um 16,5%. Það sést einnig vel þegar áætlun vegna kostnaðar sjúkratrygging- anna við þjálfun (og þá fyrst og fremst sjúkraþjálfun) er skoðuð. Þannig áætla SÍ að kostnaður vegna þjálfunar verði 5.230 m.kr. á árinu 2018 samanborið við 2.670 m.kr. árið 2016. Þetta jafngildir 96% kostnaðarhækkun á tveimur árum. Enn og aftur er þetta dæmi um nauðsyn þess að setja hlutina í rétt samhengi og forðast „trúboð og órökstuddar bábiljur“, eins og Guðjón orðar það. Guðjón gerir athugasemd við að því skuli varpað fram í skýrslunni „að mikill munur sé á kostnaði við rekstur endurhæfingarmið- stöðvarinnar á Reykjalundi og á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.“ Í framhaldinu gagnrýnir hann Ríkis- endurskoðun, segir stofnuninni hafa fatast flugið „því þessi saman- burður er ekki raunhæfur, þessar stofnanir eru ekki sambærilegar.“ Hér hallar réttu máli, en í skýrsl- unni segir orðrétt: „Samkvæmt samanburði Sjúkratrygginga var framlag ríkisins á hvern meðferðar- tíma í þverfaglegri endurhæfingu ríflega tvöfalt hærra til Reykja- lundar en til sambærilegrar þjón- ustu hjá Heilsustofnun Náttúru- lækningafélags Íslands.“ Orðalagið er skýrt og það á ekki að vera hægt að misskilja. Ríkisendurskoðun er ekki að bera stofnanirnar saman heldur tiltekna þjónustuþætti sem teljast sambærilegir. Hvernig ertu í lit? Dúkkulísurnar sungu um miðbik níunda áratugarins dægurlag um svarthvítu hetjuna sína og spurðu hvernig hún væri í lit. Guðjón segir nú skýrslu Ríkisendurskoðunar svarta Hvítbók forstjórans. Ég segi hana vera í lit. Í kjölfar efnahagshrunsins lögð- ust menn á árarnar við að verja heilbrigðisþjónustuna eftir fremsta megni. Umgjörðin lét á sjá og upp- bygging stjórnsýslunnar, þar á meðal Sjúkratrygginga Íslands, fékk að bíða. Framkvæmdir við húsnæði Landspítalans eru nú komnar á fulla ferð, en stjórnsýslan mætir enn afgangi. Því miður þýðir sú frestun að dæmum um að við séum að spara aurinn og kasta krónunni fjölgar. Sú staðreynd breytir því ekki að margt hefur verið vel gert og árangur náðst á mörgum svið- um. Viðurkennum það, svo og að nauðsynleg uppbygging krefst ekki alltaf niðurrifs. Svarthvíta hetjan mín Steingrímur Ari Arason forstjóri Sjúkra- trygginga Íslands Í borgarlandinu er víða hægt að kaupa bensín og dísil. Það er eðlilegt að aðgengi fyrir rafmagn sé líka gott. Dúkkulísurnar sungu um miðbik níunda áratugarins dægurlag um svarthvítu hetj- una sína og spurðu hvernig hún væri í lit. Guðjón segir nú skýrslu Ríkisendurskoð- unar svarta Hvítbók forstjór- ans. Ég segi hana vera í lit. Jóhannes Kr. Kristjánsson blaðamaður Ef við berum saman barna- spítalann og meðferðarkerfi barna þá ert þú yfirlæknir- inn yfir meðferðarkerfinu. Eyþór Arnalds skipar 1. sæti Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík Ísland, sækjum það heim, var mikið notað slagorð í lok síðustu aldar, ætlað til að fjölga komum ferða- manna. Margt hefur breyst síðan þá og við tökum nú árlega á móti marg- földum íbúafjölda landsins. Náttúran, sagan og menningin heilla ferða- menn. Þegar þeir eru komnir út á land leita margir þeirra að byggðasöfn- unum (staðbundnum minjasöfnum): „Where is the local museum?“ Söfnin hafa brugðist vel við. Frásagnarmáti þeirra hefur breyst. Þau hafa lagað sig að áherslum í ferðaþjónustu og gefa, mörg hver, erlendum ferðalöngum tækifæri til að kynna sér svæðis- bundna menningu. Mýtan um aska og rokka í röðum á ekki lengur við. Söfnin eru menningar hús, full af lífi. Kjarni sýninga þeirra er samt alltaf sá sami: ekta safngripir. Um það er spurt: „Is this original?“ Það fylgir því sérstök tilfinning að sjá upprunalega muni og fólk leitar einmitt að þeim. Byggðasöfnin eru eins og gott brauð, meðlæti sem er hluti upplifunarinnar. Við stöndum á krossgötum. Aðstaða og afþreying fyrir ferðamenn er í mikilli uppbyggingu og það er vel. Fróðleikur um liðinn tíma, sögu byggðanna, skiptir máli. Miðlun hans er á ábyrgð sveitarfélaganna, sem eiga flest byggðasöfnin. Íbúar byggðanna komu þeim á fót á sínum tíma. Mörg þeirra búa við erfið rekstrarskilyrði. Þau eru ekki ofarlega á lista sveitar- stjórnarmanna þegar önnur útgjöld kalla. Söfn hafa orðið fyrir ruðnings- áhrifum frá uppbyggingu fyrir ferða- þjónustu. Þau koma í ljós í ýmsum myndum. Margir sveitarstjórnar- menn virðast telja að ferðamenn vilji fremur sjá glæstar tilbúnar sýningar heldur en upprunalega muni, sem eru látnir víkja. Þess eru jafnvel dæmi að grunnsýningar hafi verið teknar niður og safnkosti pakkað niður í kassa og hann lent í húsnæðishraki. Slíkum aðgerðum fylgir hætta á þekkingar- rofi og skemmdum. Við þær aðstæður er menningararfinum hætta búin. Fólk vill geta kynnt sér söguna og sjá upprunalega gripi sem tengjast henni; upplifa hið raunverulega. Brottfluttir íbúar vilja heimsækja gamlar slóðir og rifja upp gamlar minningar, fræðimenn vilja rann- saka, skólanemar eiga að fá fræðslu. Nú ræða sveitarstjórnarmenn hvers það sé að reka minjasöfn. Aðgerða er þörf eigi áfram að vera hægt að stunda öflugt safnastarf í þessu landi. Margra áratuga menn- ingarstarf er í hættu. Land sem missir tengsl við sögu sína verður fátækt land, jafnvel þótt þar séu mörg hótel. – Nútíð við fortíð nornirnar tengja. Heilögum síma, högg ei það band! – Steingrímur Thorsteinsson Bregðumst ekki framtíðinni með því að skera á þráðinn. Við köllum eftir annarri forgangsröðun. Byggðasöfn og brauð Guðrún Jónsdóttir safnstjóri, Borgarfirði Sigríður Sigurðardóttir fráfarandi safn- stjóri, Skagafirði Söfn hafa orðið fyrir ruðn- ingsáhrifum frá uppbygg- ingu fyrir ferðaþjónustu. Þau koma í ljós í ýmsum mynd- um. Margir sveitarstjórnar- menn virðast telja að ferða- menn vilji fremur sjá glæstar tilbúnar sýningar heldur en upprunalega muni, sem eru látnir víkja. 1 2 . a p r í l 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r16 s k o ð U n ∙ F r É T T a B l a ð I ð 1 2 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 6 A -1 7 C C 1 F 6 A -1 6 9 0 1 F 6 A -1 5 5 4 1 F 6 A -1 4 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.