Fréttablaðið - 12.04.2018, Page 17

Fréttablaðið - 12.04.2018, Page 17
Nú er opið fyrir umsóknir í Menntaskóla í tónlist fyrir skólaárið 2018-2019. Skólinn er stofnaður af Tónlistarskólanum í Reykjavík og Tónlistarskóla FÍH og býður upp á fjölbreytt tónlistarnám í rytmískri og klassískri tónlist. Námið er góður valkostur fyrir þá sem vilja stunda fjölbreytt tónlistarnám í skapandi og skemmtilegu umhverfi . MÍT býður upp stúdentsbraut þar sem hægt er að ljúka stúdents prófi með tónlist sem aðalnámsgrein. Einnig býður skólinn upp á almenna tónlistarbraut sem hentar metnaðarfullum nemendum á ýmsum aldri. Tónlistarnám í takt við framtíðina MÍT opnar fyrir umsóknir Kynntu þér námið á heimasíðu skólans: menton.is. Umsóknarfrestur er til 21. apríl og inntökupróf verða haldin í lok apríl/byrjun maí. Sótt er um námið á menton.is. Svarið við þessari spurningu er lík-lega hjá flestum einhver góð ljós-móðir eða fæðingarlæknir. Nú eru ljósmæður í kjarabaráttu við ríkið og hafa nokkrir tugir þeirra sagt starfi sínu á Landspítalanum lausu. Það er grafalvarleg staða en er skiljan- leg þegar málið er skoðað til hlítar. Ljósmæður eru eingöngu kvenna- stétt með 6 ára háskólanám að baki. Þær hafa lokið 4 ára háskólanámi í hjúkrunarfræði og síðan bætt við sig tveimur árum í ljósmóðurfræði. Hafi þær unnið í einhver ár sem hjúkrunar- fræðingar og unnið sig upp í launum þá er það svo að eftir tveggja ára ljós- móðurnám þá lækka launin þegar þær byrja að vinna sem ljósmæður. Það sjá það allir að þetta getur ekki gengið. Við erum að leggja áherslu á gildi menntunar í landinu og hún kostar mikið fé og tíma. En ef hún færir fólki engar kjarabætur þá er enginn hvati til að mennta sig frekar. Við sem vinnum við fæðingarþjón- ustu vitum að þetta starf er einstakt. Það að taka á móti nýjum Íslending- um í þennan heim er forréttindastarf en mjög krefjandi. Börnin fæðast á öllum tímum sólarhringsins og líka á rauðum dögum. Starf ljósmæðra er vissulega krefjandi og getur reynt á bæði líkamlega og andlega. Rann- sóknir sýna að þeir sem vinna vakta- vinnu lifa skemur en þeir sem vinna dagvinnu og tíðni alvarlegra veikinda er einnig hærri hjá vaktavinnufólki. Starfið í mæðraverndinni, í fæð- ingarþjónustu og síðan að fylgja eftir nýbakaðri fjölskyldu krefst teymis- vinnu ljósmæðra og fæðingarlækna. Það er því miður svo að það fara ekki allir heim með heilbrigð lifandi börn og því fólki þarf líka að sinna á okkar vakt. Við á Íslandi höfum náð ein- stökum árangri í lágri tíðni burðar- málsdauða á heimsvísu og á sama tíma hefur keisaratíðnin ekki aukist eins og víða í hinum vestræna heimi. Þessu höfum við náð með mikilli fag- legri þjálfun og samstarfi fagaðila sem að fæðingarþjónustu koma. Skjól- stæðingar okkar eru móðirin, barnið og fjölskyldan í heild. Við þurfum að hlusta á ekki bara einn hjartslátt heldur alltaf tvo og stundum fleiri þegar um fjölburameðgöngur er að ræða. Ábyrgðin er mikil og oft þarf að taka ákvarðanir hratt og bregðast við með réttum hætti. Semja þarf strax við ljósmæður Það tekur mörg ár að þjálfa reynda ljósmóður og því má það ekki gerast að þær hætti nú störfum og leiti til annarra starfa eins og reyndin er með marga hjúkrunarfræðinga á LSH. Það vantar nú á annað hundrað hjúkr- unarfræðinga á spítalann. Sorglegt er að vita til þess að hjúkrunarfræðingar með 2 ára aukanám eins og skurð- hjúkrunarfræðingar og svæfingar- hjúkrunarfræðingar skuli velja að starfa frekar í fluginu en á LSH. Hér verður að koma á umbótum í mann- auðsmálum, gera starfið eftirsóknar- vert og borga laun í samræmi við ábyrgð og reynslu. Þannig missum við ekki ljósmæður eða hjúkrunar- fræðinga til annarra starfa. Menntun og þjálfun þessara stétta þarf að meta og greiða laun samkvæmt því. Hvernig getur það gerst árið 2018 á vakt Katrínar Jakobsdóttur forsætis- ráðherra og Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra að kvennastétt með 6 ára háskólanám að baki sé að hverfa frá starfi? Þessi ríkisstjórn setti heilbrigðismál og innviði í öndvegi. Það er afgangur af ríkissjóði og verið að greiða niður erlendar skuldir. Ég skora á fjármálaráðherra að gefa samninganefnd ríkisins heimild til að semja við ljósmæður og það strax. Sumarið er fram undan og þá er álag á fæðingardeild LSH mikið vegna sumarfría starfsfólks og vegna þess að nágrannasjúkrahúsin draga oft úr sinni starfsemi. En fæðingum fækkar ekki þó að sólin fari að skína og ekki setjum við tappa í konurnar. Við förum í hanskana og tökum glöð á móti nýjum Íslendingum. Hver tók á móti þér? Á uppvaxtarárum mínum lærði ég fljótt að fyrsta skrefið við lausn vandamála felst í viðurkenningu á vandanum. Staðreyndin er hins vegar sú að það er ekki alltaf einfalt að standa and- spænis sannleikanum og horfast í augu við vandann. Við þekkjum það flest. Einn stærsti vandi sem borgar- yfirvöldum hefur láðst að horfast í augu við – og standa því frammi fyrir nú – er hinn margumtalaði húsnæðisvandi. Hann byggist fyrst og fremst á því hversu hægt gengur hjá meirihlutanum að byggja enda stefna hans ýtt undir lítið framboð af lóðum. Sannleikurinn er sá að þrátt fyrir fögur fyrirheit fjölgaði íbúðum í fyrra um einungis 322 í allri höfuðborginni, stærsta sveitar- félagi landsins. Á meðan íbúðum í einu af minni sveitarfélögum höfuð borgarsvæðisins, Mosfellsbæ, fjölgaði umtalsvert meira, eða um 401. Ísköld staðreynd, blákaldur sannleikur. Sjálfur er ég 27 ára og bý enn hjá móður minni í Breiðholtinu. Undan farin tvö ár hef ég starfað sem teymisstjóri á sambýli fyrir geðfatlaða, í starfi sem ég hef unun af og krefst háskólamenntunar. Hver einustu mánaðamót hef ég lagt samviskusamlega fyrir og hjálp- að til við rekstur heimilisins. Þrátt fyrir þetta er ég enn í þeirri stöðu að geta ekki fjárfest í húsnæði. Mér finnst stundum erfitt til þess að hugsa að ekki eru allir jafn heppnir og ég. Þannig er, að það lifa ekki allir við þann lúxus að geta búið í foreldrahúsum. Sjálfur þekki ég dæmi þess að fólk á aldri við mig hefur með engu móti tök á að búa heima, er kannski að ala upp börn á leikskólaaldri, fast á leigumarkaði og í láglaunastörfum jafnvel. Veruleikinn er sá að þessi þróun hefur orðið til þess að fólk gefst upp og flyst í önnur nærliggjandi sveitarfélög. Hin mikla uppbygg- ing í Mosfellsbæ er gott dæmi um þessa þróun. Við þetta getum við ekki unað. Það er kominn tími til breytinga. Ef Reykjavík á að vera fyrir alla, unga sem aldna, er nauð- synlegt að bregðast hratt við en það verður ekki gert án þess að borgar- stjórn sýni kjark og horfist í augu við vandann. Ég sem frambjóðandi í 4. sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er tilbúinn til þess. Horfumst í augu við vandann Egill Þór Jónsson félagsfræðingur, í 4. sæti lista Sjálfstæðis­ flokksins í Reykjavík Sannleikurinn er sá að þrátt fyrir fögur fyrirheit fjölgaði íbúðum í fyrra um einungis 322 í allri höfuðborginni, stærsta sveitarfélagi landsins. Hvernig getur það gerst árið 2018 á vakt Katrínar Jakobs- dóttur forsætisráðherra og Svandísar Svavarsdóttur heil- brigðisráðherra að kvennastétt með 6 ára háskólanám að baki sé að hverfa frá starfi? Þessi ríkisstjórn setti heilbrigðismál og innviði í öndvegi. Ebba Margrét Magnúsdóttir fæðingarlæknir og formaður læknaráðs Landspítalans S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 17F i M M T u D A G u R 1 2 . A p R í L 2 0 1 8 1 2 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 A -2 6 9 C 1 F 6 A -2 5 6 0 1 F 6 A -2 4 2 4 1 F 6 A -2 2 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.