Fréttablaðið - 12.04.2018, Page 18
1 2 . a p r í l 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r18 S p o r T ∙ F r É T T a B l a ð I ð
Guardiola faðmar Franck Ribéry í leik Bayern München og Real Madrid 2014. Bayern tapaði 4-0. NoRdicphotos/Getty
Guardiola
hefur mátt
þola sár töp
í Meistara-
deildinni
undanfarin ár.
NoRdicphotos/
Getty
FóTBolTI Ljósblái herinn hans Peps
Guardiola tapaði 5-1 samanlagt
fyrir Rauða hernum frá Liverpool
í 8-liða úrslitum Meistaradeildar
Evrópu. Staða Manchester City var
erfið eftir 3-0 tap í fyrri leiknum á
Anfield og þrátt fyrir góða frammi-
stöðu í fyrri hálfleik í leiknum á
þriðjudaginn urðu vonir City að
engu þegar Mohamed Salah jafnaði
í 1-1 á 56. mínútu. Roberto Firmino
skoraði svo sigurmark Liverpool 13
mínútum fyrir leikslok.
Guardiola horfði á seinni hálf-
leikinn úr stúkunni á Etihad. Undir
lok fyrri hálfleik var mark rang-
lega dæmt af City vegna rangstöðu.
Spánverjinn mótmælti og var
sendur upp í stúku af landa sínum,
Antonio Mateu Lahoz. Eftir leikinn
sagðist Guardiola ekki hafa móðgað
dómarann, aðeins sagt honum að
markið hefði átt að standa.
Þrjú töp í röð
Tapið í gær var það þriðja á einni
viku hjá City. Liðið tapaði báðum
leikjunum gegn Liverpool og í milli-
tíðinni fyrir Manchester United í
leik þar sem City gat tryggt sér Eng-
landsmeistaratitilinn.
Það er þó ekki spurning hvort
heldur hvenær City verður meistari,
enda með 13 stiga forskot á United
og á mjög auðvelda dagskrá fram
undan. Þá eru lærisveinar Guardi-
ola búnir að vinna deildabikarinn.
En liðið ætlaði sér lengra í Meist-
aradeildinni, sem var ein af helstu
ástæðunum fyrir því að City réð
Guardiola fyrir tveimur árum.
City komst einni umferð lengra í
Meistaradeildinni í ár en í fyrra en
lið sem eyðir rúmlega 250 milljón-
um punda í leikmenn á tímabilinu
ætlar sér meira en að detta út í 8-liða
úrslitum.
City hefur reyndar ekki gert nein-
ar rósir í Meistaradeildinni síðan
olíufurstarnir frá Abú Dabí keyptu
félagið fyrir áratug. City hefur lengst
komist í undanúrslit fyrir tveimur
árum þegar liðið tapaði fyrir Real
Madrid. City hefur yfirburði heima
fyrir en á enn eftir að leggja Evrópu
undir sig.
ekki komist í úrslit síðan 2011
Guardiola vann Meistaradeildina
tvisvar á fyrstu þremur árum sínum
sem stjóri Barcelona. En síðan 2011
hefur honum hvorki tekist að koma
liði í úrslit Meistaradeildarinnar né
landa bikarnum með stóru eyrun.
Barcelona féll úr leik fyrir Chelsea
2012 og tímabilið á eftir var Guardi-
ola í fríi frá þjálfun. Hann tók við
Bayern München 2013 og undir
hans stjórn komst liðið í undanúr-
slit Meistaradeildarinnar. Þar lentu
Bæjarar illa í því og réðu ekkert við
skyndisóknir Real Madrid sem vann
einvígið, samanlagt 5-0.
Árið eftir hentu gömlu lærisvein-
ar Guardiola í Barcelona Bayern
úr leik í undanúrslitunum, sam-
tals 5-3. Einvígið var nánast búið
eftir 3-0 tap í fyrri leiknum. Lionel
Messi gerði Bayern lífið leitt í þeim
leik en Guardiola hefur ekki unnið
Meistaradeildina síðan hann hætti
að þjálfa argentínska snillinginn.
Bayern komst einnig í undan-
úrslit á þriðja og síðasta tímabili
Guardiola þar en féll úr leik fyrir
Atlético Madrid á útivallarmarki.
Í fyrra, á fyrsta tímabilinu undir
stjórn Guardiola, strandaði City
svo á Monaco í 16-liða úrslitunum.
Franska liðið fór áfram á fleiri mörk-
um skoruðum á útivelli.
Varnarleysi á stóra sviðinu
Varnarleikurinn hefur orðið
liðunum hans Guardiola
að falli í Meistaradeildinni
undan farin ár og þau eiga í
sérstaklega miklum vand-
ræðum með lið sem geta
beitt skæðum skyndi-
sóknum, eins og Liverpool.
City fékk samtals á sig fimm
mörk gegn Liverpool í ár og
sex gegn Monaco í fyrra.
Real Madrid skoraði fimm
gegn Bayern 2014 og Barce-
lona fimm árið eftir.
Guardiola gefur engan
afslátt af sinni hugmynda-
fræði og stundum kemur
það honum í koll. Lík-
urnar á því að hann breyti
til og leggi meiri áherslu
á varnarleik eru ekki
miklar. Leikstíllinn sem hann
predikar hefur þrátt fyrir allt skilað
honum fjölda titla og verið lofaður
í bak og fyrir.
Betur má ef duga skal
Þrátt fyrir ófarir síðustu þriggja
leikja hefur Guardiola náð betra
jafnvægi í leik City en í fyrra. Liðið
hefur t.a.m. aðeins fengið á sig 24
mörk í 32 leikjum í ensku úrvals-
deildinni og aðeins United hefur
haldið oftar hreinu. En betur má ef
duga skal. Leikirnir gegn Liverpool
og United sýndu það. Guardiola er
með opin tékkhefti og mun eflaust
ná í sterka leikmenn í sumar til að
freista þess að koma City í fremstu
röð í Evrópu. ingvithor@frettabladid.is
Lið undir stjórn Guardi-
ola hafa unnið 13 af 30
leikjum í útsláttarkeppni
Meistaradeildarinnar frá
tímabilinu 2011-12.
sport
Messufall í Meistaradeildinni
Manchester City féll úr leik fyrir Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Pep Guardiola hefur ekki
enn tekist að koma City á stall þeirra bestu í Meistaradeildinni, keppni sem hann hefur ekki unnið í sjö ár.
haukar - KR 83-84
haukar: Kári Jónsson 21, Haukur Óskarsson
17, Paul Anthony Jones 16, Emil Barja 14,
Finnur Atli Magnússon 6, Breki Gylfason
4, Kristján Leifur Sverrisson 3, Hjálmar
Stefánsson 2.
KR: Kristófer Acox 18, Brynjar Þór Björnsson
16, Helgi Már Magnússon 12, Kendall
Pollard 12, Björn Kristjánsson 11, Darri
Hilmarsson 11, Pavel Ermolinskij 4.
Staðan í einvígi liðanna er 2-1 KR í vil, en
liðin mætast næst á laugardaginn.
ÍR - tindastóll 69-84
ÍR: Danero Thomas 24, Matthías Orri
Sigurðarson 18, Ryan Taylor 13, Kristinn
Marinósson 5, Sveinbjörn Claessen 4, Há-
kon Örn Hjálmarsson 3, Trausti Eiríksson 2.
tindastóll: Antonio Hester 31, Sigtryggur
Arnar Björnsson 24, Pétur Rúnar Birgisson
14, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 5, Helgi
Rafn Viggósson 4, Axel Kárason 3, Viðar
Ágústsson 3.
Staðan í einvígi liðanna er 2-1 Tindastóli í
vil, en liðin mætast næst á laugardaginn.
Nýjast
domino’s-deild karla, undanúrslit
ÍBV - Fram 24-27
ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 6, Karólína
Bæhrenz 5, Ester Óskarsdóttir 5, Greta Ka-
valiauskaite 5, Sandra Dís Sigurðardóttir 1,
Shadya Goumaz 1, Asun Batista 1.
Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 9, Karen
Knútsdóttir 8, Elísabet Gunnarsdóttir
3, Steinunn Björnsdóttir 3, Þórey Rósa
Stefánsdóttir 2, Hildur Þorgeirsdóttir 1,
Sigurbjörg Jóhannsdóttir 1.
Einvígið endaði 3-1 fyrir Fram sem leikur til
úrslita, en liðið mætir annaðhvort Haukum
eða Val í úrslitaviðureigninni.
olís-deild kvenna, undanúrslit
B. München - sevilla 0-0
Einvígi liðanna endaði samanlagt 2-1 fyrir
Bayern München sem fer þar af leiðandi
áfram í undanúrslit keppninnar.
R. Madrid - Juventus 1-3
1-0 Mario Mandžukić (2.), 2-0 Mario
Mandžukić (37.), 3-0 Blaise Matuidi (61.), 1-3
Cristiano Ronaldo (90.).
Einvígið liðanna endaði samanlagt 4-3 fyrir
Real Madrid sem fer þar af leiðandi áfram í
undanúrslit keppninnar.
Meistaradeild evrópu, 8-liða úrslit,
seinni leikir
Fram getur
varið titilinn
HanDBolTI Fram fór með sigur af
hólmi, 27-24, þegar liðið mætti ÍBV í
fjórða leik liðanna í undanúrslitum
Olísdeildar kvenna í handbolta í
Vestmannaeyjum í gærkvöldi.
Fram fer af leiðandi áfram í úrslita-
einvígi deildarinnar. Fram á mögu-
leika á að verja titil sinn, en liðið
mætir annaðhvort Haukum eða Val
í úrslitaeinvíginu. Staðan í einvígi
Hauka og Vals er 2-1, en liðin mætast
í fjórða leiknum í Hafnarfirði í kvöld.
Björgvin líklega
með á morgun
HanDBolTI Björgvin Hólmgeirsson
gæti snúið aftur í lið ÍR þegar það
mætir ÍBV á morgun í fyrsta leik lið-
anna í 8-liða úrslitum Olís-deildar
karla í handbolta. Björgvin lék fyrstu
tvo leiki ÍR í deildinni í vetur áður en
hann meiddist í baki.
„Björgvin hefur æft með okkur í
vikunni og hann lítur vel út miðað
við það að hafa nánast ekkert leikið
með okkur í vetur,“ sagði Bjarni
Fritzson, þjálfari ÍR, við Fréttablaðið.
– hó
1
2
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
A
-2
B
8
C
1
F
6
A
-2
A
5
0
1
F
6
A
-2
9
1
4
1
F
6
A
-2
7
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K