Fréttablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 20
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Lára Valsteinsdóttir
Lautasmára 3,
Kópavogi,
lést laugardaginn 7. apríl á
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 18. apríl klukkan 15.
Ólöf Stefánsdóttir Jón Aðalsteinn Jóhannsson
Jóhannes Stefán Stefánsson
Sigurlaug J. Stefánsdóttir Karl Gauti Hjaltason
ömmubörn og langömmubörn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Ingibjörg Sigurðardóttir
frá Varmalandi, Öldustíg 1,
Sauðárkróki,
lést fimmtudaginn 5. apríl á
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
á Sauðárkróki. Útförin fer fram frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 14. apríl klukkan 14.00.
Ásgrímur Þorsteinsson Anne Melén
Ólöf Þorsteinsdóttir Ágúst Kvaran
Steinar Mar Ásgrímsson
Þorsteinn Ásgrímsson
Bróðir minn, frændi okkar og mágur,
Þormóður Haraldsson
Austurbrún 2,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 31. mars. Útförin fer fram
föstudaginn 13. apríl kl. 13 frá Áskirkju.
Guðbjörg Haraldsdóttir Bay
Sigríður Pétursdóttir Hreinn S. Hákonarson
Margeir Pétursson Sigríður Indriðadóttir
Vigdís Pétursdóttir Ævar Aðalsteinsson
Halldóra Hermannsdóttir
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, systir og amma,
Anna Atladóttir
Fífumóa 7, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á
Selfossi laugardaginn 7. apríl. Útför fer
fram frá Selfosskirkju laugardaginn
14. apríl kl. 11. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Soffía Sveinsdóttir Elmar Viðarsson
Knútur Sveinsson Signý Eva Auðunsdóttir
Bjarni Sveinsson
Sölvi Sveinsson
systkini og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
sambýlismaður, bróðir og afi,
Ragnar Lýðsson
húsasmíðameistari,
lést þann 31. mars síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Skálholtskirkju þann
14. apríl kl. 14 og jarðsett verður í Haukadal.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á að styrkja Björgunarsveit
Biskupstungna, kennitala 520288-1049 og reikningsnúmer
0151-26-1100.
Ólafur Ragnarsson Ragnhildur H. Sigurðardóttir
Hilmar Ragnarsson Elfa Björk Kristjánsdóttir
Ingi Rafn Ragnarsson Heiða Sigurðardóttir
Ellen Drífa Ragnarsdóttir Davíð Örn Friðriksson
Sigurlaug Jónsdóttir
barnabörn og aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Guðmundur Reynir
Guðmundsson
múrarameistari,
Kveldúlfsgötu 21, Borgarnesi,
lést þann 8. apríl á Heilbrigðisstofnun
Vesturlands, Akranesi. Útför hans fer fram frá
Borgarneskirkju föstudaginn 20. apríl kl. 14.
Herdís Jónasdóttir
Jónas Guðmundsson
Fjóla Guðmundsdóttir
Guðmundur Guðmundsson Nína Rún Höskuldsdóttir
Hrönn Guðmundsdóttir Gunnar Máni Hermannsson
Saga, Hugi, Emma, Reynir, Tómas og Frosti
1919 Átján manns farast í snjóflóðum við Siglufjörð og
síldarverksmiðja gjöreyðileggst.
1927 Íþróttafélagið Völsungur er stofnað á Húsavík.
1931 Knattspyrnufélagið Haukar er stofnað í Hafnarfirði.
1945 Franklin D. Roosevelt andast og Harry S. Truman tekur
við embætti forseta Bandaríkjanna, sá 33. í röðinni.
1952 Gúmmíbjörgunarbátur er í fyrsta sinn notaður hér við
land er vélbáturinn Veiga sekkur við Vestmannaeyjar. Tveir
menn farast en sex bjargast.
1953 Menntaskólinn á Laugarvatni verður fyrsti sjálfstæði
menntaskólinn í dreifbýli á Íslandi.
1961 Júrí Gagarín er fyrstur manna til að fara út í geiminn.
Merkisatburðir
Það er líf og fjör í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Þar á að opna sýning-una „við mið“ á morgun, föstudag,
klukkan 17 og meistaranemar úr mynd-
listardeild Listaháskólans eru að koma
fyrir verkum sínum á tveimur hæðum
safnsins, innan um skúlptúrverk Sigur-
jóns (1908-1982).
Öll eru þessi nýju listaverk innblásin af
verkum Sigurjóns og sögu og staðháttum
á Laugarnesinu og eru þó afar fjölbreytt
og ólík að efni og gerð. Eða eins og stend-
ur í hugleiðingum sýningarstjóra: „Hér
er samvinnan og hið óljósa samtal í for-
grunni sem teygir anga sína
bæði aftur í tímann
og fram á við.“
Á bak við sýn-
inguna standa alls
ellefu listamenn, að
Sigurjóni meðtöld-
um. Guðríður Skugga
er ein þeirra. Hún
stendur uppi í stiga
á neðri hæðinni með
hallamál að finna rétta
punktinn fyrir aðra af
tveimur ljósmyndum
sem hún hefur endur-
gert og smíðað trausta
og eftirtektarverða
málmramma utan um.
Í forgrunni annarrar
myndarinnar sjást salt-
fiskstæður og -breiður
og svolítið brot af Esj-
unni í bakgrunni en á báðum mynd-
unum er hús sem logar virðast leika um.
„Þetta eru gamlar ljósmyndir af Laugar-
nesinu,“ útskýrir Guðríður Skugga. „Þær
voru aðgengilegar á
internetinu og allir
máttu nota þær. Ég
endurgerði filmur og
prentaði aftur og svo
brenndi ég út holds-
veikraspítalann sem
brann 7. apríl 1943.
Auk þess er ég með
texta í ramma sem
ég hengi upp á milli
myndanna. Það sem
mér finnst merkilegt
er að grunnurinn að
spítalanum skuli vera
bílastæðið hér utan við
safnið og að við skulum
ganga á sömu steinum og voru þar þá.
Það er mjög sterk tenging.“
Ragnheiður Guðmundsdóttir er að
útskrifast úr Listaháskólanum í vor eftir
tveggja ára nám og er að setja upp textíl-
verk á efri hæðinni. „Þetta er efni sem ég
hef verið að vinna með. Það vísar í skinn
eða húð og ég tengi það holdsveikra-
spítalanum sem hér stóð. Ég keypti
efnið, gataði það og tætti svolítið og bar
svo á það efni sem gerir það stíft. Set svo
lag ofan á lag þannig að þrívídd skapist.“
Sýningin „við mið“ er samstarfsverk-
efni Listasafns Íslands, Listaháskóla
Íslands og listfræði við Háskóla Íslands
og það eru nemar úr HÍ sem annast sýn-
ingarstjórn. gun@frettabladid.is
Þar mætast fortíð og nútíð
Guðríður Skugga og Ragnheiður Guðmundsdóttir eru meðal meistaranema úr Listahá-
skólanum sem eiga verk á sýningunni „við mið“ sem opnuð verður í Sigurjónssafni.
Ragnheiður og Guðríður Skugga við textílverk Ragnheiðar sem vísar í holdsveikraspítalann. FRéttablaðið/EyþóR ÁRnaSon
ljósmyndaverk
eftir Guðríði
Skuggu, þar
sem spítalinn
brennur.
Kimi tayler vinnur að verki sínu.
1 2 . a p r í l 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r20 T í M a M ó T ∙ F r É T T a B l a ð I ð
tímamót
1
2
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
A
-3
F
4
C
1
F
6
A
-3
E
1
0
1
F
6
A
-3
C
D
4
1
F
6
A
-3
B
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K