Fréttablaðið - 12.04.2018, Side 28
Elfar Pétursson
er verslunar-
stjóri í nýjustu
verslun Pennans
Eymundsson í
miðborginni, en
hún stendur þar
sem áður var
Landsbankinn að
Laugavegi 77.
Þegar við erum með þrjár búðir á svona litlu svæði þurfa þær allar að hafa
sína sérstöðu,“ segir Elfar. „Við
reynum að vinna svolítið saman
hér í miðborginni, að það sé hægt
að nálgast flest allt sem Penninn
Eymundsson býður upp á í ein-
hverri af þessum þremur versl-
unum þó engin þeirra sé nógu stór
til að hægt sé að bjóða upp á allt
í einni búð. Svo þarf líka að vera
gaman fyrir viðskiptavinina að
kíkja í hverja búð og það sé ekki
það sama í boði í þeim öllum. Í
minni búð leggjum við áherslu
á hönnunarvörur sem Penninn
ehf. flytur inn frá Vitra. Þetta er
leyndarmál sem ekki margir vita
af en eru mjög vandaðar vörur.“
Vitra er svissneskt fyrirtæki sem
á ýmis merki, meðal annars hönn-
un Eames hjónanna. „Við leggjum
áherslu á gjafavöruna frá þeim,
alls konar skúlptúra og blóma-
vasa, líkön og fleira,“ segir Elfar og
nefnir House fuglinn (House Bird)
sem dæmi sem er mjög frægur
hönnunargripur. „Þó við leggjum
þessa áherslu á gjafavöruna þá
hallar ekkert á bókina, við fáum
allar nýjar íslenskar bækur hingað
og erum auk þess með fjölbreytt
úrval erlendra bóka, til dæmis um
hönnun.“ Aðspurður segir Elfar
íslenska hönnunarvöru einn-
ig vera á boðstólum. „Við erum
með nokkra íslenska birgja eins
og Hring eftir hring, ANGAN skin
care og Sveinbjörgu svo dæmi séu
tekin.“ Hann nefnir að verslunin sé
sótt bæði af Íslendingum og ferða-
mönnum. „Við fáum útlendinga
inn í búðina og guði sé lof því það
væri ekki markaður á svona litlu
svæði fyrir svona margar Penninn
Eymundsson verslanir þar sem
væri opið til tíu öll kvöld ef við
fengjum ekki inn ferðamennina.
Það vill oft gleymast að ferða-
mannastraumurinn eykur ýmis
gæði fyrir Íslendinga, til dæmis
hvað úrval verslana og veitinga-
staða varðar.“
Talandi um veitingastaði þá er
Te og kaffi kaffihús á Laugavegi 77
eins og í öðrum verslunum Penn-
ans Eymundsson í miðborginni.
„Kaffihúsið er ólíkt hinum að því
leyti að við erum með langborð
sem býður upp á ýmsa möguleika,
til dæmis að kynnast einhverjum
nýjum. Við langborð þarf fólk að
vera sátt við að sitja með ein-
hverjum ókunnugum. Og svo er
algengt að fólk hafi samband og fái
að halda hérna húsfundi og fleira.“
Hann segir viðskiptavinahópinn
frekar blandaðan. „Hingað koma
margir frá fyrirtækjunum í kring
og fólkið sem býr hérna í nágrenn-
inu, bæði til að drekka kaffi og
blaða í bókum og tímaritum,“ segir
Elfar og bætir við: „Og svo erum
við mjög söluhá í kattabókum. Það
er sérkennilegt að segja frá því að
þessi búð selur langflestar katta-
bækur innan fyrirtækisins.“ Hann
hefur ekki skýringar á reiðum
höndum um ástæðuna fyrir þessu.
„Kannski er það vegna þess að við
höfum svo gaman af þeim sjálf
hérna að við leggjum mikið upp úr
þeim. Þetta eru litlar gjafabækur
sem heita nöfnum eins og Mind-
fulness for Cats, Cats in hats, Be
more Cat og svo framvegis. Svona
lífsleikni-kattabækur.“ Og þessi
áhersla hefur aukið fjölbreytni
viðskiptavinahópsins. „Við fáum
kött í heimsókn til okkar öðru
hvoru,“ segir Elfar. „Hún heitir
Tissý og mætti bara einn daginn.
Við gefum henni ekki að borða
enda væri heilbrigðiseftirlitið ekki
sátt við það en hún spígsporar
um búðina og hjálpar til við að
kynna kattabækurnar. Og nýtir
sér örugglega fróðleikinn úr þeim
í leiðinni.“
Hönnun og gjafavara
en hallar ekki á bókina
Þetta er stærsta verslunin í miðborginni og hún er aðeins meira deildaskipt og meira
vöruúrval í henni en hinum versl-
ununum,“ segir Rúnar Logi. „Við
leggjum metnað okkar í að hér eigi
að vera hægt að nálgast næstum
því allt sem Penninn Eymundsson
hefur upp á að bjóða. Við reynum
að vera með gott úrval í öllu, hvort
sem það eru ritföng, gjafavörur eða
bækur. Við erum auðvitað fyrst
og fremst bókaverslun með mjög
góða bókadeild hvort sem um er
að ræða íslenskar eða erlendar
bækur. Erlenda bókadeildin okkar
er ein sú stærsta á landinu og við
erum einnig með mikið úrval af
ferðabókum, einna mest á landinu
af bókum frá fjarlægum stöðum.
Þá er líka sérstök barnadeild og við
leggjum áherslu á að úrval bóka
og leikfanga þar sé fjölbreytt og
skemmtilegt.“
Bókabúð Sigfúsar Eymunds-
sonar hefur verið í þessu húsi frá
1960 en áður stóð þar hús sem hýsti
verslunina frá 1920. Á þessum reit
hefur því verið bókabúð í næstum
hundrað ár.
„Við sem vinnum hér erum með-
vituð um að það eru ákveðin for-
réttindi að fá að vinna í verslun sem
er svona rótgróin og gömul,“ segir
Rúnar Logi. „Viðskiptavinahópur-
inn er breiður og fólk sem hefur
komið hérna í áratugi til að kaupa
sér tímaritið sitt eða dagblaðið
enda bjóðum við upp á tíma-
ritaáskrift og sérpöntunaráskrift
fyrir erlendar bækur. Verslunin
er deildaskipt og afgreiðslufólkið
hefur dýpri sérþekkingu á sinni
deild sem gagnast viðskiptavin-
inum.“ Búðin er á sjö hæðum eða
pöllum með kaffihúsinu og Rúnar
Logi viðurkennir að það sé ágæt
líkamsrækt að hlaupa upp og niður
tröppurnar á daginn. „Við erum
með lyftu sem gengur frá neðsta
palli og upp á efsta svo fólk með
barnavagna eða í hjólastólum getur
sótt kaffihúsið.“ Kaffihús Te og kaffi
í Pennanum Eymundsson Austur-
stræti nýtur mikilla vinsælda,
ekki síst vegna þaksvalanna. „Fólk
kemur hingað mikið út af kaffi-
húsinu og það er næstum því alltaf
gott veður á svölunum, allavega á
sumrin.“ Rúnar hefur starfað í bóka-
búðinni síðan hann var unglingur.
„Ég er búinn að hanga í þessum
búðum síðan ég var krakki og byrj-
aði að vinna í þeim einhvern tíma
fyrir löngu,“ segir hann brosandi.
„Það var eiginlega þannig að ég
hékk alltaf í búðinni og á endanum
var ég ráðinn.“ Hann leggur áherslu
á mikilvægi þess að taka vel á móti
viðskiptavinum og leggur metnað
sinn í það sem verslunarstjóri.
„Eftir mín unglingsár í bókabúðinni
finnst mér mikilvægt að öllum líði
vel í bókabúðinni og finnist þeir
velkomnir þangað.“
Mikilvægt að öllum líði vel
Rúnar Logi Ingólfsson er verslunarstjóri stærstu og elstu verslunar Pennans Eymundsson í
miðbænum en bókaverslun hefur verið starfrækt í Austurstræti 18 síðan 1920.
Rúnar Logi
stundaði
bókabúðina
af áfergju sem
unglingur og
það endaði
með því að
hann var
ráðinn til
starfa.
MYND/EYþóR
Elvar Pétursson, verslunarstjóri á Laugavegi 77, en sú verslun á met í sölu kattabóka. MYND/ERNiR
Í versluninni á Laugavegi 77 er áherslan mest á hönn-
unarvörur frá hinu þekkta svissneska fyrirtæki Vitra.
Kaffihús Te og kaffi eru starfrækt í öllum bókabúðum
Pennans Eymundson í miðborginni, starfsfólki og gestum
til mikillar ánægju.
4 KYNNiNGARBLAÐ 1 2 . A P R Í L 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RMiÐBoRGiN
1
2
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
A
-2
6
9
C
1
F
6
A
-2
5
6
0
1
F
6
A
-2
4
2
4
1
F
6
A
-2
2
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K