Fréttablaðið - 12.04.2018, Side 31
Ferðamönnum
finnst við Íslend-
ingar ótrúlega heppin
þjóð að eiga þennan
góða fisk. Það er stutt frá
Sjávarréttabarnum á
Fiskmarkaðinn og Atl-
antshafið allt um kring.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Magnús Ingi Magnússon er ekki af baki dottinn. Nú geysist hann um Kali-
forníu á mótorhjóli og þegar hann kemur heim ætlar hann að vera með leið-
sögn fyrir ferðamenn um Grandann.
Magnús Ingi segist hafa verið á ferðalagi í Frakklandi og farið í slíka matar- og
fræðsluferð með leiðsögn. „Ég veit
að svona gönguferðir eru víða um
heim og mér fannst þetta vanta á
Grandann. Mig langaði þess vegna
að prófa að setja upp sælkeraferð
og ætla að gera enn meira að því
þegar veðrið batnar með vorinu,“
segir hann. „Hingað til hafa þetta
helst verið útlendingar sem hafa
haft áhuga á ferðunum en Íslend-
ingar eru líka velkomnir, til dæmis
fyrirtækjahópar í óvissuferð,“ segir
Magnús Ingi.
Ferðirnar eru farnar á morgnana
frá kl. 10-12.30 á þriðjudögum, mið-
vikudögum og fimmtudögum. „Ef
ég fæ hóp sem vill kom á laugardegi
er það alveg í boði,“ segir hann.
„Hópurinn hittist á Sjávarbarnum
þar sem ég býð upp á hákarl og
brennivín. Ég hef ekki tekið færri
en tíu manns í einu. Í fyrstu segi ég
fólki frá uppbyggingunni á þessu
svæði, hvernig það hefur þróast
en síðan göngum við um svæðið
og skoðum meðal annars Fisk-
markaðinn. Fólk fær að sjá hvernig
fiskurinn kemur inn í landið og í
lok ferðar fær það síðan að smakka
hann á Sjávarbarnum.“
Magnús segist til dæmis hafa
fengið Norðmenn en hann bjó í
Þrándheimi í Noregi í þrjú ár og
sagðist hafa rætt við þá á norsku. „Ég
hef verið matreiðslumaður í fjörutíu
ár og unnið víða, meðal annars á
skemmtiferðaskipum. Síðan hef ég
verið atvinnurekandi í þrjátíu ár svo
ég hef ýmsu að miðla. Ég var fyrsti
maðurinn sem kom með matsölu-
stað á Grandann sem var opinn á
kvöldin og um helgar en fyrir voru
Kaffivagninn og Grandakaffi. Ætli
ég hafi ekki verið nokkurs konar
brautryðjandi á þessum slóðum. Á
síðustu árum hefur margt breyst á
Býður sælkeraferð
um Grandann
Magnús Ingi Magnússon sem jafnan er kenndur við Texas-
borgara hefur sett upp sælkeraferðir um Grandann þar
sem hann fræðir Íslendinga og erlenda ferðamenn um
sögu svæðisins og býður upp á fisk, hákarl og brennivín.
Grandanum, veitingahúsum hefur
fjölgað auk þess sem opnuð hafa
verið söfn og gallerí. Ég fagna hverri
nýrri opnun því það fjölgar fólki á
Grandanum.
Við þurfum að gera eitthvað fyrir
ferðamennina og gamli Grandinn er
ákaflega áhugaverður. Ferðamönn-
um finnst við Íslendingar ótrúlega
heppin þjóð að eiga þennan góða
fisk. Það eru til dæmis bara nokkrar
mínútur á Sjávarréttabarinn til mín
frá Fiskmarkaðnum og Atlantshafið
allt um kring,“ segir Magnús. „Fólk
sem kemur frá Mið-Evrópu er hug-
fangið af þessum villta fiski sem við
getum boðið upp á. Sumt af þessu
fólki fær ekkert nema eldisfisk. Ég
er með myndir af þeim tegundum
fiska sem við veiðum og ferðamönn-
um þykir mjög spennandi að heyra
sögur af fiskiþjóðinni og útgerðinni
víða um land. Ég hef boðið þeim
íslenskt snakk úr steiktu fiskroði
og segi þeim frá því hvernig við
notum fiskafurðir í snyrtivörur og
lyf. Þeim finnst þetta stórmerkilegt.
Maður reynir að segja skemmtilega
frá þessu öllu og síðan borðum við
saman í lok ferðar,“ segir hann.
Þegar við ræddum við Magnús
var hann á leið til Los Angeles að
kynna sér sælkeraferðir í Kaliforníu.
„Ég ætla að fara á mótorhjóli frá LA
til San Francisco og jafnvel eitthvað
lengra. Bara að sjá til hvað ég kemst
langt, verð bara einn á ferð sem er
þægilegt. Ég fór um Flórída í janúar
og hafði gaman af því. Aðalvertíðin
byrjar síðan hjá mér á Grandanum
um miðjan maí,“ segir Magnús Ingi
en meðal þess sem hann ætlar að
bjóða upp á fyrir þá sem koma í
leiðsögn fyrir utan sjávarrétti er
heimabakað rúgbrauð og hjóna-
bandssæla með kaffinu.
Gleraugnasalan á
Laugavegi 65 var
stofnuð árið 1961
og er elsta gler-
augnaverslun á
Íslandi. Hún býður
upp á fjölbreytt
úrval gleraugna
og leggur áherslu
á framúrskarandi
vörur og þjónustu.
Gleraugnasalan á Laugavegi 65 er elsta gleraugnaverslun landsins og sú eina sem er
sólarmegin á Laugaveginum. Versl-
unin státar af 57 ára sögu, en hún
var stofnuð árið 1961.
„Við höfum þjónað hér á
Laugavegi frá byrjun, fyrst neðar
á Laugavegi, en svo fluttum við
hingað árið 1973,“ segir Rüdiger
Þór Seidenfaden, sjónfræðingur
og eigandi verslunarinnar. „Við
höfum verið umboðsaðili fyrir
Silhouette-gleraugu í yfir 50 ár og
vorum áður þekkt fyrir það, því við
vorum fyrsta gleraugnabúðin með
sjónvarpsauglýsingar og það vissu
allir landsmenn hvað Silhouette-
gleraugu voru. Seinna urðum við
svo umboðsaðilar fyrir Porsche-
gleraugu, Adidas-gleraugu og fleiri
merki.“
Fjölbreyttar gerðir gleraugna
„Við bjóðum upp á mikið af
íþróttagleraugum fyrir alls kyns
íþróttir, sérstaklega golf, og Ólafía
Þórunn Kristinsdóttir, íþróttamað-
ur ársins, notar einmitt golfgler-
augu frá okkur,“ segir Rüdiger. „Við
bjóðum líka upp á gleraugu fyrir
hjólreiðamenn og skíðafólk og öll
helstu merkin í sólgleraugum.
Hjá okkur fást einnig laxveiði-
gleraugu með styrk í glerinu sem
eru hvergi annars staðar fáanleg,“
segir Rüdiger. „Fyrri eigandi
verslunarinnar var mikill lax-
veiðimaður og hann fór um allan
heim til að fá laxveiðigleraugu
sem væru unnin nákvæmlega eftir
hans hugmyndum. Fyrirtækið sem
framleiddi þau fyrir hann er hætt
að framleiða þau í dag, þannig að
lagerinn sem er til hjá okkur er ein-
stakur og við höfum meðal annars
selt þau til Sviss, þar sem var
mikil ánægja með þau. Nú er bara
„fyrstir koma, fyrstir fá“, því það er
svo lítið af gleraugum eftir.
Fyrir fjórum árum tókum við
svo upp á því að selja trégleraugu.
Í þeim er enginn ofnæmisvaldur
og þau er mjög létt, en um leið eru
þau viðkvæmari,“ segir Rüdiger.
„En þau hafa verið mjög vinsæl og
margir fá sér þau sem aukagler-
augu því þau líta vel út.“
Áhersla á gæðaþjónustu
„Við leggjum mikla áherslu á góða
og alhliða þjónustu,“ segir Rüdiger.
„Við bjóðum upp á mjög vandaðar
og nákvæmar sjónmælingar og
það er þekkt í stétt augnlækna að
mælingarnar okkar séu framúr-
skarandi. Svo erum við með okkar
eigið verkstæði og öll framleiðsla
okkar fer fram hér á Íslandi.
Lengi buðum við ekki upp á
linsur, því við vildum ekki bara
selja einhverjar linsur,“ segir
Rüdiger. „En nú erum við með
sérfræðing sem sér um þær fyrir
okkur. Það er allt svona hjá okkur,
við viljum bara vera með toppvöru
og við leggjum mjög mikla áherslu
á að allur okkar varningur og
þjónusta sé í úrvalsflokki.
Við leggjum líka mikla áherslu
á að þjóna landsbyggðinni vel og
þegar við vinnum gleraugu fyrir
fólk sem kemur utan af landi fær
það gleraugun yfirleitt strax,“ segir
Rüdiger. „Gleraugnasalan býður
því upp á mjög fjölbreytta og
vandaða þjónustu og það er líklega
ekki að ástæðulausu að þetta sé
elsta gleraugnaverslun landsins,
við hljótum að vera að gera eitt-
hvað rétt.“
Gleraugnaverslun
í úrvalsflokki
Darri Ásbjörnsson og Rüdiger Þór Seidenfaden taka vel á móti viðskiptavinum.
MYND/EYÞÓR
Hjá Gleraugnasölunni er meðal annars hægt að fá glæsileg trégleraugu.
Mikið úrval sólgleraugna fæst hjá Gleraugnasölunni, meðal annars frá Porsche.
KYNNINGARBLAÐ 7 F I M MT U DAG U R 1 2 . a p r Í L 2 0 1 8 MIÐBoRGIN
1
2
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
A
-3
A
5
C
1
F
6
A
-3
9
2
0
1
F
6
A
-3
7
E
4
1
F
6
A
-3
6
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K