Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.04.2018, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 12.04.2018, Qupperneq 42
líka með flott götuleikhús í Grafar­ vogi. Við erum að gera verkefni sem eru sérstaklega unnin út frá hverfum eins og Blesugróf, þar sem gengið er um þetta skemmtilega hverfi sem fáir þekkja, og þar verða flutt þrjú stutt leikverk. Markmiðið er að gera þetta að sannkallaðri borgarhátíð. Hluti af því verður líka að endur­ vekja klúbb Listahátíðar sem verð­ ur í Hafnarhúsinu. Klúbburinn er hugsaður sem miðja fyrir hátíðina og þar verða listamenn með spjall, plötusnúðar, tónlistaruppákomur, gjörningar og fleiri skemmtilegir viðburðir. Það verður öllum opið og allt ókeypis sem er líka hluti af áhorfendastefnunni að hafa líka nóg að bjóða fyrir þá efnaminni. Að þú getir fengið frábæra upplifun af hátíðinni án þess að eiga krónu með gati,“ segir Vigdís og brosir. Yfirskrift hátíðarinnar er Heima og Vigdís segir að hún gæti útskýrt þessa tengingu fyrir nánast hvern einasta viðburð á dagskránni. „Við kynntum þetta þema fyrir fulltrúa­ ráðinu fyrir rúmu ári og vorum svo með opið kall í framhaldinu sem skilaði okkur þó nokkrum verk­ efnum alla leið á hátíðina. En af því að þetta koma snemma þá gat listafólkið nálgast þetta með fjöl­ breyttum hætti og við gerðum það líka í verkefnavalinu. Þarna varð til ákveðinn vefnaður sem er þarna alltumvefjandi. Sem dæmi um fjölbreytni Að virkja listina Það er eitt og hálft ár liðið frá því Vigdís tók við sem listrænn stjórn­ andi hátíðarinnar sem er nú að nýju tvíæringur eftir að hafa verið haldin árlega um skeið. Vigdís segir að þær áherslur sem hún hafi komið með inn í starfið hafi komið fram hjá henni strax í umsóknarferlinu um starfið og hún hafi í framhaldinu búið við þann lúxus að hafa tíma umfram það sem til að mynda fyrir­ rennarar hennar bjuggu við. „Ég valdi á þessum tíma að vera aðeins í hálfu starfi til að byrja með og fyrsta hálfa árið var ég bara hérna ein og það reyndist mér dýrmætur tími. Þá kom ég að stefnumótun sem hafði staðið fyrir dyrum og lagði svona grunninn og þessi tími gaf mér tæki­ færi til þess að eiga samtal og sam­ ráð við samstarfsaðila hátíðarinnar. Það eru allar helstu listastofnanir og fagfélög listamanna á landinu auk fleiri aðila, þannig að hátíðin sem slík á gríðarlega sterkt og gott bakland. Stóra ákvörðunin sem ég tók var að hlusta og ákveða líka að hafa kjark til þess að heyra hvað bak­ landið hafði fram að færa. Ég hafði hugmyndir sjálf en var í raun tilbúin til þess að fórna þeim ef á þyrfti að halda. En það kom mér svo satt best að segja á óvart hvað það var mikill samhljómur um hvaða áttir skyldi stefna í og það gladdi mig. Kjarni þess var að setja sér það markmið að ná til fjölbreyttari hóps. Baklandið, rétt eins og ég, vill þó ekki gefa afslátt af gæðum; að hér séu stórvið­ burðir á mælikvarða listarinnar og mörk hennar þanin. En hugmyndin um að ná til breiðari hóps var það sem öllum fannst skipta mestu máli – og að hátíðin ætti í fjölþættu sam­ starfi. Að virkja listina sem þetta breytandi afl. Út frá þessu mótum við áhorfendastefnu sem hefur svo áhrif á allt sem við gerum.“ Ekki krónu með gati Vigdís segir að það sé gaman að geta loks talað opinskátt um dagskrána því hún sé nú orðin opinber. „Það er líka gaman að segja frá því að við verðum mjög víða í borginni og ekki einvörðungu í miðborginni, við förum meira að segja alla leið til Ísa­ fjarðar og upp á hálendið. Verðum Já, ég er leikstjóri í grunninn og stelpuskott frá Ísafirði sem hafði einhverra hluta vegna alltaf áhuga á leiklist,“ segir Vigdís Jakobsdóttir, list­rænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, aðspurð um hvaðan hún komi að listinni. En þann 2. júní næstkomandi hefst Listahá­ tíð í Reykjavík og verður það fyrsta hátíðin þar sem Vigdís er við stjórn­ völinn. Vigdís segir reyndar um sinn bakgrunn að hún hafi verið í sjö grunnskólum alls og geti því ekki talist vera einvörðungu frá Ísafirði en það hafi þó verið þar á ungl­ ingsárunum sem hún uppgötvaði að hún vildi verða leikstjóri. Eftir menntaskóla lá leiðin til Bretlands þar sem hún lærði við The Univers­ ity of Kent og hún segir að það nám hafi reynst góður grunnur fyrir það sem hún hefur tekið sér fyrir hendur á lífsleiðinni. „Ég hef reyndar alltaf starfað við listir fyrir utan eitt sumar á Árbæjarsafni eftir að ég kom heim úr námi. Hef ég þó farið víða,“ segir Vigdís og brosir. Fann klanið mitt Vigdís hefur á orði að leikstjórnin hafi stundum fengið að liggja til hliðar en hún hafi þó líka formgerst í kennslu sem veiti henni mikla ánægju. „Ég var snemma komin inn í Þjóðleikhúsið og er eiginlega alin upp þar sem listamaður. Þar fékk ég tækifæri til þess að stofna fræðsludeild og er ótrúlega stolt af því að hafa náð því í gegn á sínum tíma, 2002, og þá sérstaklega Þjóð­ leik sem er verkefni sem varð til á tíma mínum þar. En frá Þjóðleik­ húsinu fór ég í Listaháskólann þar sem ég var fagstjóri í listkennslu­ deild í mörg ár og fékkst við að þjálfa listamenn í kennslu. Það er gríðarlega skemmtilegt að vera kennara­kennari. Í listkennslu­ deildinni mætist líka listafólk úr öllum greinum sem er skemmti­ legur suðupottur.“ Vigdís segir með blik í auga að hún sé með það sem kallað er port­ folio­feril, einhvers konar marg­ faldan starfsferil sem hafi nýst henni gríðarlega vel sem grunnur að starf­ inu við Listahátíð í Reykjavík. „Ég hef undanfarinn áratug tekið þátt í alþjóðlegu starfi í samtökum sem heita ASSITE. Þetta eru samtök sem starfa í hátt í 90 löndum og saman­ standa af leikhúslistafólki sem gerir sýningar fyrir unga áhorfendur. Ég dróst inn í þetta haustið 2008, rétt fyrir örlagadaginn mikla, þegar ég þáði að fara á námskeið í Venesúela. Sem betur fer var ég búin að kaupa flugmiða áður en hrunið skall á því þetta stefnumót listamanna breytti lífi mínu. Þarna fann ég klanið mitt – fólkið sem hugsar eins og ég í list­ inni og er að gera leikhús á sömu forsendum og ég er að gera.“ En hverjar eru þessar forsendur í listinni? „Ég trúi því að listirnar geri heiminn betri. Að þær geri fólk betra. Það er mín bjargfasta trú. Það er ástæðan fyrir því að ég stofnaði fræðsludeildina við Þjóðleikhúsið á sínum tíma og fyrir því að kennslan er mér svona hugleikin. Fyrir mér eru listirnar breytandi afl og það er þannig sem ég hef nálgast allt sem ég geri. Líka Listahátíð.“ Markmiðið að virkja listirnar sem breytandi afl Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík var kynnt í gær og þar kennir fjölbreyttra grasa. Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, segir eitt af meginmarkmiðunum að ná til fleira fólks með listina. Vigdís Jakobsdóttir segist leggja áherslu á að sem allra flestir geti fengið frábæra upplifun af hátíðinni óháð efnahag. FréttAblAðið/Eyþór Close-Act theatre, hollenskur leikhópur þekktur fyrir myndrænar sýningar í yfirstærð, mætir til borgarinnar með risaeðlusýninguna Saurus. bill Murray og sellósnillingurinn Jan Vogler mæta saman á listahátíð. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ↣ 1 2 . a p r í l 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r26 M e n n I n G ∙ F r É T T a B l a ð I ð menning 1 2 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 A -1 2 D C 1 F 6 A -1 1 A 0 1 F 6 A -1 0 6 4 1 F 6 A -0 F 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.