Fréttablaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 34
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457
Það er nóg að gera hjá Elíasi og Steinmari við skipulag 1. maí keyrslunnar, bókaútgáfu og Evrópusamstarf. MYND/STEFÁN
Sniglar eru hagsmunasamtök bifhjólafólks á Íslandi sem hafa starfað síðan árið 1984
og beita sér fyrir hagsmunamálum
bifhjólafólks hvað varðar um
ferðar öryggi og reglur. Samtökin
vilja nú láta meira að sér kveða
en þau hafa gert undanfarin ár,
auka sýnileika sinn, fá fleiri með
limi, sinna hagsmunagæslu fyrir
alla mótorhjólamenn á Íslandi
af fullum krafti og styðja við
menntun mótorhjólamanna með
útgáfu nýrrar kennslu og hand
bókar fyrir bæði byrjendur og
lengra komna.
Vilja safna liði
Elías Fells er gjaldkeri samtakanna
og tekur þátt í skipulagi hinnar
árlegu keyrslu Snigla 1. maí. „Þessi
viðburður hefur farið fram ára
tugum saman, en þarna bjóða
Sniglar öllu bifhjólafólki að mæta,
hvort sem það er í Sniglum eða
ekki,“ segir Elías. „Þátttakendur
hafa verið á bilinu frá svona 300
upp í sirka 1.400, þannig að þetta
er nokkuð stór viðburður og það
er mikill undirbúningur að baki
keyrslunni, sem er langstærsti við
burður ársins hjá okkur.
Hugmyndin er sú að við séum
aðeins sýnilegri þegar við komum
út á vorin. Viðburðurinn vekur
alltaf mikla athygli, því við fyllum
Laugaveginn af hjólum, og þetta
vekur vonandi fólk til vitundar um
að við séum að koma út í umferð
ina svo það verði meira vakandi
fyrir að sýna okkur tillitssemi,“
segir Elías.
„Partur af þessu er líka að reyna
að fá fleiri félaga inn í samtökin.
Það er mjög mikilvægt að reyna að
ná sem flestum bifhjólamönnum
inn í samtökin til að þau verði
raunverulega eitthvað, en það er
náttúrulega mjög mikilvægt fyrir
bifhjólafólk að eiga sér talsmenn
þegar kemur að umferðaröryggis
málum og fleira,“ segir Elías. „Það
hefur ekki gengið nógu vel síðustu
ár að fá nýja félaga en nú erum
við að spýta í lófana og gera meira
og verða sýnilegri, svo fólk sjái að
þetta séu virk samtök og sjái sér
hag í að vera í Sniglum. Svo er nátt
úrulega líka bara skemmtilegt að
sameinast og gera eitthvað saman.“
Stærri viðburður en áður
„Í ár verður viðburðurinn stærri
en hann hefur yfirleitt verið.
Við keyrum niður Laugaveg, um
Lækjargötu sem leið liggur fram
hjá Hörpu eftir Sæbraut, upp
Ártúnsbrekku alla leið á planið hjá
Bauhaus. Þetta er lengra en áður
því okkur hefur þótt þetta aðeins
of stutt hingað til,“ segir Elías. „Á
Bauhausplaninu verða mótor
hjóla umboðin með sýningarbása
og þar verður hljómsveit, veitinga
sala, áhættuökumenn að sýna
listir sínar og fleira.
Þetta hefur verið svolítið þannig
að menn mæta á planið þar sem
keyrslan endar og þar hefur lítið
tekið við, svo fólk staldrar stutt
við,“ segir Elías. „En við ætlum að
reyna að halda aðeins í hópinn
í ár, gera meira úr þessu en áður
og hafa viðburðinn stærri og
skemmtilegri. Við hvetjum að
sjálfsögðu alla sem hafa áhuga á
að vera með til að mæta upp í Bau
haus og taka þátt í þessum hluta
viðburðarins, hvort sem fólk á
mótorhjól eða ekki.“
Handbók fyrir byrjendur og
lengra komna
Steinmar Gunnarsson er ritari
samtakanna og hefur haft yfir
umsjón með nýrri hand og
kennslubók sem Sniglar eru
að fara að gefa út með Netöku
skólanum. „Þetta er bók sem var
upprunalega gefin út af NMCU,
systursamtökum Sniglanna í Nor
egi. Bókin er ætluð sem kennslu
bók fyrir bifhjólanemendur en
gagnast líka alveg ákaflega vel
fyrir mótorhjólamenn sem vilja
rifja upp hvernig er best að stjórna
mótorhjóli á sem öruggastan hátt,“
segir Steinmar. „Við ákváðum, í
samstarfi við Netökuskólann, að
láta þýða bókina og taka nýjar
myndir fyrir hana hér á landi. Nú
stendur lokafrágangur á henni
yfir og hún verður gefin út fyrir
sumarið á netinu. Þar verður hún
ókeypis en það verður líka hægt
að kaupa prentaða útgáfu.
Við vonumst til að þessi bók
verði notuð sem handbók og
kennslubók við bifhjólakennslu
og að mótorhjólafólk um allt land
nýti hana sér til framdráttar,“ segir
Steinmar. „Þetta er góð handbók
og fínt að hafa hana á náttborðinu
hjá sér, sama hvaða reynslu maður
hefur, því maður getur alltaf lært.“
Vinna með evrópskum
hagsmunasamtökum
Steinmar er einnig FEMAfull
trúi Snigla. „FEMA er Federation
of European Motorcycle Associ
ations og hefur aðsetur í Brussel.
Fyrir samtökin starfa lobbíistar
sem vinna að hagsmunum og
hagsmunagæslu mótorhjólafólks
fyrir hönd aðildarsamtaka í Evr
ópu,“ segir Steinmar. „Hópurinn
berst fyrir því að ekki séu settar
íþyngjandi reglur sem bitna ein
göngu á mótorhjólafólki, eins og
stjórnvöld í ýmsum löndum hafa
reynt. Í gegnum þessi samtök
komu Sniglar því til dæmis til
leiðar að það sé hægt að slökkva
á ABSbremsukerfum í torfæru
mótor hjólum þegar þau eru keyrð
í ófærð, en það væri ákaflega vont
ef ABSbremsukerfi væri virkt í
slíkum akstri.
Mitt hlutverk er að taka þátt í
fundum samtakanna fyrir hönd
Snigla og bæði veita Sniglum
upplýsingar um það sem sam
tökin eru að vinna að og koma
séróskum frá Íslandi á framfæri
til samtakanna,“ segir Steinmar.
„Við eru ánægð með að hafa aðild
að þessum samtökum, sem sinna
mikilvægri hagsmunagæslu fyrir
mótorhjólafólk, bæði erlendis og
hér á Íslandi. Sem einu hagsmuna
samtök mótorhjólafólks á Íslandi
taka Sniglar það hlutverk mjög
alvarlega.“
Það er náttúrulega
mjög mikilvægt
fyrir bifhjólafólk að eiga
sér talsmenn þegar
kemur að umferðar-
öryggismálum og fleira.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RMóToRHjóL
2
8
-0
4
-2
0
1
8
0
0
:2
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
9
F
-C
8
9
0
1
F
9
F
-C
7
5
4
1
F
9
F
-C
6
1
8
1
F
9
F
-C
4
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K