Fréttablaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 90
Gyðjutrú er ein þeirra trúar sem liggur þvert á ýmis skipulagðari trúarbrögð, en hún stendur líka sjálfstæð utan trúar
bragða. Félagsráðgjafinn Valgerður
Bjarnadóttir segir fólk hafa leitað
að gyðjum í álfum, dýrlingum eða
jafnvel Grýlu sjálfri eftir að trúar
brögð urðu karllægari. Hún segir
líka gyðju trú fara vaxandi um heim
allan, en fyrst og fremst snúist gyðju
trú um tengsl við náttúruna og sjálfa
sig. Valgerður rekur starfsemi undir
heitinu Vanadís, þar sem hún kennir
meðal annars sjálfsþekkingarnám
skeið og veitir fólki leiðsögn, ráð
gjöf og handleiðslu. Hún segist hafa
orðið upptekin af gyðjum eftir að
þær blönduðust inn í hugmyndir
hennar um Guð og Jesú í gegnum
Tarzan, Artúrs sögu og fleiri ævin
týri. „Ég hef í rauninni alla tíð verið
trúuð, móðuramma mín var þessi
gamaldags, guðhrædda kona sem
trúði á Jesú en trúði líka á álfa. Hún
hafði leikið sér með álfum þegar
hún var lítil stelpa og sagði mér ótal
sögur af þeim,“ segir Valgerður og
brosir meðan hún rifjar upp þessi
fyrstu ár mótunarár trúarlífs síns.
„Svo fullorðnast ég og fer að verða
leitandi. Ég fer í gegnum tímabil þar
sem ég verð mjög upptekin af Maríu
mey.“ Á þessum tíma fannst Valgerði
því María mey uppfylla þann kven
leika sem að vissu leyti virðist vanta
í kristna trú. „Þetta var náttúrulega
það sem ég saknaði þegar ég fór í
kirkju eða las um kristni, mér fannst
gyðjan vera fjarverandi. Þetta var
bara faðir, sonur og heilagur andi,
hin heilaga karllæga þrenning og
á þessum tíma voru allir prestarnir
karlar.“
Í kring um 1990 uppgötvaði Val
gerður hugmyndafræði sjamanisma,
sem er nátengdur gyðjutrú. „Sjaman
isminn hefur verið til um allan heim
og liggur í rótum okkar allra, hann
snýst um það að við séum hluti af
náttúrunni og jafnvægi milli kven
og karlafla skiptir máli. Þetta pass
aði vel inn í hugsjónir mínar,“ segir
Valgerður sem segir baráttu sína fyrir
jafnrétti kynjanna hafa blandast inn
í þessar hugmyndir „Sjamanismi er
kannski fyrst og fremst lífsnálgun,
eða leið til að lifa lífinu út frá hug
myndum eða hugsjónum. Út frá
þessu óx svo áhugi minn á gyðjum og
gyðjunni sem hluta af náttúrunni.“
Nokkrum árum síðar lá leið Val
gerðar til Bandaríkjanna þar sem
hún fór í framhaldsnám í andlegum
fræðum kvenna. Hluti af því námi
var menningarsaga og trúarheim
speki út frá femínísku sjónarhorni.
„Þar lærði ég ýmislegt sem ég hafði
ekki lært í mannkynssögunni. Til
dæmis það að karlar hefðu ekki allt
af verið ráðandi og að það hefði ekki
alltaf verið stríð, eða valdamisvægi í
heiminum,“ segir Valgerður ákveðin.
Valgerður segir gyðjutrú tvímæla
laust fara vaxandi, bæði hér á landi
og úti um allan heim.
Valgerður ítrekar þó að ekki sé beint
um trúarbrögð að ræða, því gyðju trú
á fátt sameiginlegt með skipulögðum
trúarbrögðum, heldur leggst þvers og
kruss á önnur trúarbrögð. „Áhuginn
á gyðjunni vex vegna þess að firr
ingin er orðin svo mikil og við finn
um, skynjum og vitum að við erum
að stefna fram að brúninni, bæði
í umhverfismálum og í allri okkar
lífsnálgun.“
En hver er þessi gyðja, eða þessar
gyðjur? „Grunnhugmyndin um
gyðjuna er að í henni er allt. Hún er
skapandi og tortímandi, hún nærir
og þroskar á meðan hún eyðir líka,“
segir Valgerður og jánkar spurningu
blaðamanns um hvort þessi hug
mynd sé ekki nátengd hugmynd
inni um Móðir náttúru, sem svo
margir þekkja. „Við erum öll hluti af
heild. Ekkert í heiminum eyðist, við
umbreytumst bara og það er mín sýn
á gyðjuna.“ Erum við þá að ræða um
eina gyðju eða margar? „Nei, það er
ekki bara ein gyðja,“ útskýrir Val
gerður og segir hugmyndina vera
flóknari en svo. Gyðjan virðist því
ekki koma í stað alviturs himnaföð
ur, heldur er hugmyndin um gyðjuna
margslungin, flókin og fjölbreytt.
Valgerður segir að ef rýnt sé í sögu
mannsins virðist gyðjan hafa verið
miðpunktur trúar allstaðar frá upp
hafi. „Ef við förum nægilega langt
aftur, þá finnum við víða um veröld
minjar sem sýna átrúnað á kvenver
una. Stundum eru þessar verur líkar
konum, stundum eru þær blanda af
konum og dýri, stundum jafnvel kyn
færi. Legopið, skapaþríhyrningurinn
eða brjóst – þessi sköpunarkraftur
konunnar.“
Gyðjurnar eru þó misafmarkaðar,
eins og dauðagyðjan, ástargyðjan
eða jafnvel gyðja plógsins. „Svo eru
líka gyðjur eins og Ísis í Egyptalandi
sem er nálægt því að vera svokölluð
Mikla gyðja,“ útskýrir Valgerður.
Þessar gyðjur bera í sér allt og eru í
senn tortímandi, skapandi, nærandi
og endurlífgandi. „Þær hafa í sér öll
náttúruöflin en hafa ekki beinlínis
vilja, þær eru bara þetta afl.“
Hvernig birtist þessi vakning
hérna heima á gyðjutrú? „Fólk leitar
bæði til mín, en það leitar líka víða.
Sumir starfa innan kirkjunnar, eða
stundar búddisma eða aðra trú. Þetta
eru náttúrulega mest konur, sem mér
finnst eðlilegt því það er eðlilegt að
konur sýni gyðjunni meiri áhuga en
karlar,“ segir Valgerður en ítrekar
það að það séu líka til karlar sem
hallast að gyðjutrú.
„Oft gerist þetta þannig að fólki
dreymir draum, eins og mig dreymdi
draum og drauma þar sem mér
fannst ég vera gyðja eða hitta gyðj
una. Það er alls ekki einsdæmi og
það kemur líka fyrir að fólk kemur
til mín eftir að því hefur dreymt eitt
hvað, en það kemur líka eftir að það
hefur lent í djúpri kreppu, horfst í
augu við dauða eða eigin ófullkom
leika.“
Meira á frettabladid.is
Gyðjan vitjaði
Valgerðar
í draumi
Hér á landi eru skráð hátt í 50 ólík trúfélög,
en æ fleiri Íslendingar kjósa líka að standa
utan trú- og lífskoðunarfélaga. Trú er heldur
alls ekki alltaf bundin við trúfélög.
„Áhuginn á gyðjunni vex vegna þess að firringin er orðin svo mikil.“ Fréttablaðið/auðunn
Trúarlíf íslendinga
Gyðjan Freyja
Freyja er ein af þeim gyðjum
sem Valgerður tengir við íslenskt
trúarlíf. Freyja er gyðja ástar og
frjósemi í norrænni goðafræði,
en hún er sögð hafa ferðast
í vagni sem tveir kettir dróu.
Kraftar Freyju eru margslungnir,
en hún jók frjósemi lands og
sjávar, veitti hjálp í hjónabandi
og við fæðingar. Hún er sögð
hafa átt ótal ástmenn enda náði
veldi hennar víða og spannaði
bæði líf og dauða. Trúin á gyðj-
una Freyju á sér langa sögu hér á
landi og sögur af henni lifa enn
góðu lífi. Það sést til að mynda í
þeim ótal íslensku Freyjum sem
bera nafn hennar.
Bryndís Silja
Pálmadóttir
bryndissilja@frettabladid.is
Félagsfundur verður haldinn
miðvikudaginn 2.maí kl.19:30
í félagsheimili Sjálfsbjargar, Hátúni 12.
Inngangur númer 7
Fundarefni:
1.Liðveisla , frekari liðveisla og NPA
2. Heimaþjónusta og heimahjúkrun
3. Ferðaþjónusta
4. Sértækar húsnæðisbætur og félagsbústaðir
5. Þjónusta inn í Grunnskólum ( hjálpartæki) og hvernig fjármagni er
ráðstafað.
Frambjóðendur fyrir borgarstjórnarkosninga 2018 mæta og svara
þessum spurningum.
Mætum öll
Stjórinn
Kaffiveitingar
2 8 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r34 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
8
-0
4
-2
0
1
8
0
0
:2
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
9
F
-8
3
7
0
1
F
9
F
-8
2
3
4
1
F
9
F
-8
0
F
8
1
F
9
F
-7
F
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K