Fréttablaðið - 03.05.2018, Blaðsíða 42
Listahátíðin List án landa-mæra verður sett við hátíðlega athöfn klukkan fimm í Tjarnarsal Ráð-húss Reykjavíkur í dag og
stendur fram til 13. dags þessa mán-
aðar víða um borgina. Aðgangur að
öllum viðburðum hátíðarinnar er
ókeypis en framkvæmdastýra og
listrænn stjórnandi er Ragnheiður
Maísól Sturludóttir og hún segir að
á hátíðinni sé lögð áhersla á list-
sköpun fatlaðra. „Hátíðin leggur
líka mikið upp úr samstarfi fatlaðra
og ófatlaðra listamanna og leitast
þannig við að ná menningarlegu
jafnrétti. En það verður að segjast
eins og er að því miður vantar oft
rými fyrir fatlaða listmenn innan
hinnar almennu listasenu.“
Rosalega langt á eftir
Ragnheiður Maísól bendir á að
erlenda orðið yfir samsvarandi
hátíðir sé Outsider Art sem þýða
mætti sem utangarðslist. „Við
höfum þó kosið að nota ekki þetta
hugtak vegna þess að okkur finnst
felast í þessu hugtaki ákveðin jaðar-
setning sem við erum að leitast við
að hafna. En eins og staðan er þá
hafa fatlaðir listamenn til að mynda
lítið sem ekkert aðgengi að listnámi
á Íslandi. Myndlistaskólinn í Reykja-
vík hefur þó staðið sig hvað best og
verið með diplómanám í myndlist
en það fékkst ekki styrkur áfram frá
hinu opinbera þó svo að þörfin væri
augljóslega mjög mikil. Að auki má
nefna að ef þú ert í hjólastól þá er
ekki einu sinni aðgengi fyrir þig inn
í Listaháskóla Íslands. Þeir sem eru
í hjólastól komast bókstaflega ekki
inn í skólann vegna þess að þar er
enginn rampur heldur einvörðungu
þrep sem er auðvitað dapurlegt.
Listaháskólinn hefur reyndar verið
að berjast fyrir þessu en að sækja
fjármagn til þess að fá úr þessu bætt
hefur þó enn ekki borið árangur.“
Ragnheiður Maísól segir að þetta
sé auðvitað bagalegt og tilgreinir að
hátíðin vinni mikið með norrænum
aðilum og að þar sé málum ansi
ólíkt háttað. „Þar eru t.d. stór stúdíó
þar sem listamenn með þroska-
hömlun koma til þess að vinna að
list sinni daglega og fá greitt fyrir
það vegna þess að það er vinna. Þau
eru undir handleiðslu listamanna
og þetta skilar samfélaginu betri
andlegri líðan, betra samfélagi og
þegar upp er staðið þýðir það minni
útgjöld fyrir hið opinbera. Þannig
að það má vel horfa á þetta svona
út frá hagkvæmni. En við erum rosa-
lega langt á eftir í þessum málum.
Að auki þá er mjög erfitt fyrir
fatlaða listamenn hér að koma sér
á framfæri vegna þess að þeir hafa
ekki sömu möguleika og aðrir. Hafa
ekki sömu tæki og tól og aðrir hafa
til þess að kynna sín verk.“
Hvað er að þér?
Fyrsta hátíðin List án landamæra var
haldin árið 2003 á Evrópuári fatlaðra
og Ragnheiður Maísól segir að það
hafi strax gengið svo glimrandi vel
að það hafi verið ákveðið að halda
áfram. „Núna erum við því að halda
hátíðina í fimmtánda sinn. Á þessum
árum er búið að prófa ýmsilegt eins
og að vera með hana allt árið og við
höfum tekið þátt í Hönnunarmars,
RIFF og fleiri hátíðum auk þess að
vera alfarið á okkar vettvangi. En
núna erum við með þetta svona
beggja blands og erum með okkar
vettvang en tökum líka þátt í fleiri
hátíðum á árinu.“
Ragnheiður Maísól segir að opn-
unarhátíðin sé þó alltaf fastur liður
og þar sé alltaf mikið um dýrðir.
„Borgarstjóri setur hátíðina og svo
verður fjöldinn allur af flottum atrið-
um á borð við Tjarnarleikhópinn,
MC Ísbjörn, JóaPé og Króla og fleira
skemmtilegt. En á sama tíma opnar
listmaður hátíðarinnar einkasýn-
ingu í Ráðhúsinu. Hann heitir Aron
Kale, frábær listamaður sem kemur
frá Egilsstöðum. Að lokinni opn-
unarhátíð verður svo opnuð sýning í
Gallery Port á verkum listakonunnar
Láru Lilju Gunnarsdóttur sem er
sannkallað undrabarn í listinni.“
Ragnheiður Maísól segir að það
verði mikið um dýrðir á hátíðinn
og að þar á meðal séu til að mynda
vídeóverk sem eru unnin í norrænu
samstarfi. „Vídeóverkin fimm fjalla
einmitt um það hvernig aðrir vilja
setja fatlaða í kassa sem gerist t.d.
með spurningum á borð við: Hvaða
greiningu ert þú með? Hvað er að
þér? En það skiptir engu máli. Að
auki þá er heimildarmynd um gerð
þessara verka og listakonan sem
gerir þá mynd skýtur hana og klippir
eins og hún sjálf upplifir heiminn en
hún er með Asperger og horfir því
ekki í augun á fólki. En heimildar-
myndin svarar ýmsum spurningum
um það hvað það felur í sér að vinna
list á eigin forsendum en ekki ann-
arra.
Á sunnudaginn erum við svo með
finnskt dansverk í sundlaug Styrktar-
félagsins við Háaleitisbraut þar sem
fatlaðir og ófatlaðir dansa saman.
Á mánudag verður leiklestur í Iðnó
eftir listamanninn Atla Viðar frá
Akureyri en hann skrifar líka tónlist
og gerir söngleiki og þar verða þjóð-
þekktir leikarar að lesa. Á fimmtu-
daginn verður opnuð frábær finnsk
sýning í Grafíksalnum og þar eru líka
ótrúlega falleg vídeóverk. Á laugar-
daginn hefst svo sýning á sauma-
verkum eftir þá Kristján Ellert Ara-
son og Loga Höskuldsson sem þeir
vinna þannig að þeir sauma út og
hafa unnið þetta sem leik með því að
annar byrjar á verkinu en hinn klárar
og þeir reyndar senda þetta á milli
landa vegna þess að Logi er búsettur
í Svíþjóð. Það er nú ekki allt talið og
ég hvet fólk bara til þess að kynna sér
dagskrána og koma því það kostar
ekkert inn á List án landamæra.“
Enginn munur
Eitt af því sem er hvað mest
heillandi við List án landamæra
er hversu opin hátíðin er fyrir alla
sem vilja taka þátt. Hátíðin kemur
líka víðar við og Ragnheiður Maísól
segir að Austurland hafi verið einkar
öflugt á síðustu árum og því teygi
hátíðin anga sína þangað. „Við verð-
um því fyrir austan frá 5. til 15. maí
og á Norðurlandi 26. til 27. maí og
svo má geta þess að það voru tón-
leikar á Reykjanesi í apríl. Þannig að
gróskan er mikil.“
Það er athyglisvert að þó svo það
séu ekki miklir fjármunir í List án
landamæra þá segir Ragnheiður
Maísól að það sé aldrei vandamál
að fá bæði fatlaða og ófatlaða lista-
menn til þess að taka þátt. „Við
leggjum mikið upp úr samstarfi á
milli fatlaðra og ófatlaðra til þess
að brjóta niður þessi ósýnilegu
landamæri og oft sækist fólk eftir
því að fá að vera með. Allt eru þetta
listamenn sem standa fyrir sama
ferlinu. Ég er sjálf myndlistarkona
og ég vildi óska þess að við værum
meira í svona samstarfi því sköpun
margra fatlaðra listamanna er á
einhvern hátt miklu óheftari og
frjálsari. Þau eru ólíklegri til þess
að vera í þessari endalausu sjálfsrit-
skoðun sem reynist mörgum erfið.
Þess vegna er þetta samstarf alltaf
af hinu góða og bæði brýtur niður
fordóma og skilar okkur góðri list.
Það er enginn munur á fötluðum
og ófötluðum listamönnum og því
eiga engin landamæri að vera þarna
á milli.“
Brýtur niður fordóma og skilar okkur góðri list
Listahátíðin List án landamæra verður sett í fimmtánda sinn í dag. Að vanda er dagskráin hlaðin af spenn-
andi listviðburðum og sýningum sem enginn þarf að missa af því að aðgangur er ókeypis.
Ragnheiður Maísól segir að á Íslandi séum við langt á eftir Norðurlöndunum þegar kemur að aðstæðum fyrir nám og listsköpun fatlaðra. FRéttablaðið/aNtoN bRiNk
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Málverk eftir aron kale sem er lista-
maður ársins hjá list án landamæra.
Mynd úr danssýningunni Pond með finnska danshópnum kaaos Company.
3 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R30 m e n n I n G ∙ F R É T T a B L a ð I ð
menning
0
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
7
-E
D
6
C
1
F
A
7
-E
C
3
0
1
F
A
7
-E
A
F
4
1
F
A
7
-E
9
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K