Fréttablaðið - 03.05.2018, Blaðsíða 28
Met Gala samkoman, einn allra stærsti tískuviðburður ársins, er haldin á fyrsta
mánudegi maímánaðar og fer því
fram 7. maí næstkomandi. Á Met
Gala fara skærustu stjörnur samtím-
ans út fyrir viðteknar venjur í tísku
og láta sjá sig í framúrstefnulegum
og frumlegum múnderingum sem
vekja oft athygli og jafnvel stundum
Met Gala 2018 á mánudag
Tískuviðburðurinn Met Gala fer fram í New York næsta mánudag. Viðburðurinn vekur mikla athygli
á hverju ári, en þar sýna stærstu stjörnur samtímans framúrstefnulega tísku og keppast um athygli.
kátínu. Met Gala snýst nefnilega ekki
einfaldlega um að líta sem best út,
heldur um að fylgja ákveðnu þema á
áhugaverðan hátt og nýta tækifærið
til að vekja athygli með sérlega frum-
legum klæðnaði.
Met Gala heitir fullu nafni „The
Costume Institute Gala at New
York’s Metropolitan Museum of
Art“ og er fjáröflunarsamkoma fyrir
Metropolitan-listasafnið í New York.
Samkoman var fyrst haldin árið
1948, svo hún á 70 ára afmæli í ár.
Ásamt því að mæta til að gefa fé fá
gestirnir að skoða nýjustu sýningu
safnsins, sem er afhjúpuð þetta
kvöld.
Umsjónarmaður viðburðarins er
Anna Wintour, sem hefur stjórnað
honum síðan 1995. Henni til halds
og trausts þetta árið eru þær Amal
Clooney, Rihanna og Donatella
Versace.
Kaþólskt þema
Þema samkomunnar kemur frá
viðfangsefni sýningarinnar sem
verður opnuð. Sýning ársins heitir
„Heavenly Bodies: Fashion and
the Catholic Imagination“ og snýst
því um tísku sem tengist kaþólsku
og kaþólsku kirkjunni gegnum
aldirnar. Það er viðbúið að þetta
þema verði nokkuð umdeilt og
aldrei að vita nema einhverjir nýti
tækifærið til einhverra pólitískra
yfirlýsinga.
Sýningin verður að öllum
líkindum mikil veisla fyrir augað,
en þar verður meðal annars hægt
að sjá yfir 40 flíkur og aukahluti frá
15 ólíkum páfum sem eru í láni frá
Vatíkaninu. Þetta er í fyrsta sinn sem
Vatíkanið lánar slíka muni.
Hver túlkar með sínu nefi
Það er svo undir hverjum og einum
komið hvernig þemað er túlkað. Það
er til dæmis hægt að nota liti sem
eru tengdir við kaþólsku kirkjuna, fá
innblástur frá þekktum kaþólikkum
eða vísa í kaþólsku með því að
klæðast fötum sem eru hönnuð af
kaþólikkum. Þemað er mjög opið.
Met Gala snýst um að vekja
athygli og umræðu með klæðnaði
sínum, svo það eru margir spenntir
að sjá hvernig aðaltískutáknin túlka
þemað. Það er kannski mest eftir-
vænting eftir að sjá Beyoncé, Lady
Gaga og Rihönnu.
Beyoncé mætti ekki í fyrra en
kemur í ár og það er mikil eftirvænt-
ing eftir því að sjá múnderinguna
hennar. Lady Gaga hefur áður vakið
athygli á Met Gala og það eru margir
spenntir að sjá hennar túlkun á
þema ársins. Svo er mikill áhugi á að
sjá hverju Rihanna klæðist, ekki síst
af því að hún er nú einn af skipu-
leggjendum viðburðarins og hefur
því væntanlega tækifæri til að gera
eitthvað mjög sérstakt, en kjóllinn
hennar á Met Gala 2017 vakti mikla
athygli.
Rihanna vakti
mikla athygli
með kjólnum
sem hún
klæddist á Met
Gala í fyrra.
NORDIC PHOTOS/
GETTY
SUMARYFIRHAFNIR Í ÚRVALI
SUMARFRAKKAR frá kr. 18.900 - FISLÉTTIR DÚNJAKKAR frá kr. 19.900
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.isLaugavegi 63 • Skipholt 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Opnum í dag kl. 13
nýja og glæsilega verslun í
S ipholti 29b
Bernharð Laxdal er umboðsaðili
GERRY WEBER á Íslandi
(sama verð og á hinum norðurlöndunum)
ásamt mörgum öðrum þekktum
vörumerkjum s.s. BETTY BARCLAY,
CREENSTONE, CINZIA-ROCCA og JUNGE.
GERRY WEBER
20-25% afsláttur
Ýmis önnur opnunartilboð
Glæsileg
opnunar-
tilboð
Verið velkomin
Skoð
ið
laxda
l.is/y
firhaf
nir
20%
afslá
ttur a
f
völdu
m stö
ndum
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
Smart föt,
fyrir smart konur
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . M A í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
0
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
A
8
-0
1
2
C
1
F
A
7
-F
F
F
0
1
F
A
7
-F
E
B
4
1
F
A
7
-F
D
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K