Fréttablaðið - 03.05.2018, Blaðsíða 46
3. maí 2018
Tónlist
Hvað? Draumurinn – á leið á land-
nemaslóðir
Hvenær? 20.00
Hvar? Hallgrímskirkja
Kammerkórinn Vokal nord frá
Tromsö í Noregi syngur m.a. verk
eftir: Grieg, Björn Anton Drage,
Jan Sandström, Hjálmar H. Ragn-
arsson, Jón Ásgeirsson og útsetn-
ingar af norrænum þjóðlögum.
Hvað? Shades of Greece
Hvenær? 21.00
Hvar? Petersen svítan, Ingólfsstræti
Í kvöld ætlar gríska hljómsveitin
Shades of Greece að halda uppi
stemningunni í Petersen svítunni.
Grísku tónlistarmennirnir leika
vinsæl grísk dægurlög og þjóðlög
fyrir gesti svítunnar klukkan
21-23.
Hvað? Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni –
hádegistónleikar
Hvenær? 12.00
Hvar? Fríkirkjan í Reykjavík
Flutt verður tónlist eftir franska
tónskáldið Michel Legrand (1932),
en hann er helst þekktur fyrir að
semja söngleiki og tónlist fyrir
kvikmyndir. Á efnisskránni eru
meðal annars eftirtalin lög: What
are you doing the rest of your
life, úr kvikmyndinni The Happy
Ending, You must beleve in spring
úr myndinni The Young Girls of
Rochefort (1967), The summer
knows úr myndinni Summer of
’42 (1971) og I will wait for you
úr söngleiknum The Umbrellas
of Cherbourg (1965). Flytjendur
eru Heiða Árnadóttir og Gunnar
Gunnarsson.
Viðburðir
Hvað? Opnunarhátíð: List án landa-
mæra
Hvenær? 17.00
Hvar? Tjarnarsalur Ráðhúss Reykja-
víkur
Opnunarhátíð Listar án landa-
mæra verður í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur í dag. Borgarstjóri
Reykjavíkur mun setja hátíðina
en fram koma DJ Aron Kale,
listamaður hátíðarinnar í ár,
MC Ísbjörn, Hljómsveitin Eva,
Tjarnar leikhópurinn, JóiPé og
Króli, Embla og Gunnar and the
Rest. Kynnar opnunarhátíðar-
innar eru Andri Freyr Hilmarsson
úr Með okkar augum og leikkonan
Steiney Skúladóttir. Einkasýning
Arons Kale verður opnuð sam-
hliða opnunarhátíðinni í Ráðhús-
inu í Reykjavík. Sýningin er opin
til 13. maí. Klukkan 19.00, strax
á eftir opnunarhátíðinni, verður
opnuð einkasýning myndlistar-
konunnar Láru Lilju Gunnars-
dóttur í Gallerí Port á Laugavegi.
Hvað? Lýðræðisumbætur fyrir tíma
loftslagsbreytinga með aðstoð forn-
kínverskrar og forngrískrar heimspeki
Hvenær? 17.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Í erindinu verða færð rök fyrir
því að ástæða sé til að tileinka sér
nálganir fornkínverskrar jafnt
sem forngrískrar heimspeki í við-
leitni okkar til að komast að sam-
komulagi um viðeigandi pólitísk
viðbrögð við loftslagsbreytingum
og hlýnun jarðar. Þessar nálganir
opna jafnframt fyrir möguleika
á umbótum á vestrænu lýðræði
sem fæli í sér aukna áherslu á
verðleikaskipan í vestrænum
stjórnkerfum að kínverskum hætti
og umbótum á kínverskri stjórn-
skipan sem legði aukna áherslu á
réttarríkið að vestrænum hætti.
Þannig getur merkingarbærari
samræða um loftslagsmál milli
Vesturlanda og Kína stuðlað að
breiðara alþjóðlegu samtali sem er
einmitt það sem lausn málefnisins
krefst.
Hvað? Kvöldstund með Viðari
Víkingssyni
Hvenær? 20.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Viðar Víkingsson kvikmynda-
höfundur ræðir um formsköpuði
í kvikmyndalist, Hitchcock,
Bresson, Ozu, Lang og fleiri og
sýnir dæmi úr merkum kvik-
myndum. Þær eru allt frá tímum
þöglu kvikmyndanna til okkar
daga. Viðar mun leitast við að
sýna hvernig heimssýn þessara
höfunda skilaði sér í því sem kvik-
myndalistin ein fær tjáð. Viðar
stundaði nám í í kvikmyndaleik-
stjórn í IDHEC, kvikmyndaskóla
franska ríkisins. Hann hefur gert
fjölda sjónvarpsmynda, bæði leik-
inna sem heimildarmynda. Viðar
starfar sjálfstætt.
Hvað? Erindi um pottaplöntur á
Bókasafni Kópavogs
Hvenær? 17.00
Hvar? Bókasafn Kópavogs
Í dag verður haldið erindi um
pottaplöntur og umpottun og
umhirðu á þeim. Hafsteinn Haf-
liðason er einn þekktasti garð-
yrkjumaður landsins og hlaut
nýverið heiðursverðlaun garð-
yrkjunnar. Hann hefur meira en
hálfrar aldar reynslu af því að ráð-
leggja og leiðbeina ræktunarfólki
um val á og umönnun plantna,
úti sem inni. Hann heldur úti
hópnum Stofublóm, inniblóm,
pottablóm á Facebook og flytur nú
erindi um pottaplöntur og svarar
fyrirspurnum gesta. Viðburðurinn
fer fram á 1. hæð aðalsafns Bóka-
safns Kópavogs.
Hvað? Burlesquesýning
Hvenær? 21.00
Hvar? Gaukurinn
Dömur og herra er burlesque- og
kabaretthópur sem varð til á burl-
esquenámskeiði hjá Margréti
Maack. Þetta er fjórða sýning
hópsins sem vinnur að sýningum
allan ársins hring og er grasrótar-
hreyfing í íslenskri kabarettsenu.
Sýningar
Hvað? Lokasýning nemenda á list-
námsbraut Borgarholtsskóla
Hvenær? 17.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Spönginni
Nemendur á listnámsbraut
Borgar holtsskóla sýna lokaverk-
efni sín, en þeir útskrifast í vor eftir
þriggja ára nám í grafískri hönnun.
Verk þeirra eru fjölbreytt, á sýn-
ingunni eru m.a. teikningar, skjá-
verk, bækur og margs konar önnur
prentverk ásamt ferilmöppum.
Hvað? Landslag – Flæði
Hvenær? 16.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Marilyn Herdís Mellk opnar
sýningu á verkum sínum þann
3. maí í Hannesarholti og mun
hún standa í fjórar vikur. Marilyn
Herdís Mellk er íslensk/amerísk,
fædd 1961 og hefur búið á Íslandi
síðan 1981. Hún stundaði listnám
við California College of Arts and
Crafts (núna California College of
the Arts) og Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands þaðan sem hún
útskrifaðist 1987 úr grafíkdeild.
Hvað? Sýningaropnun Þuríðar
Sigurðardóttur í SÍM salnum
Hvenær? 10.00
Hvar? Salur Sambands íslenskra
myndlistarmanna, Hafnarstræti
Þuríður Sigurðardóttir opnar sýn-
ingu sína Fyrirmyndir í sal Sam-
bands íslenskra myndlistarmanna,
Hafnarstræti 16, í dag.
Það eru hádegistónleikar á dagskránni í Fríkirkjunni þennan fimmtudag. Fréttablaðið/gva
Hafsteinn Hafliðason heldur erindi um pottaplöntur á bókasafni Kópavogs í dag. nordicpHotos/getty
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
Hvar@frettabladid.is
3 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R34 m e n n I n G ∙ F R É T T a B L a ð I ð
0
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
8
-0
F
F
C
1
F
A
8
-0
E
C
0
1
F
A
8
-0
D
8
4
1
F
A
8
-0
C
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K