Fréttablaðið - 03.05.2018, Blaðsíða 44
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
Rafmagnstjakkar
Kynningarverð:
282.897 kr. m/vsk
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Amadeus borðstofuhúsgögn
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Komið og skoðið úrvalið
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
lakaðu á
eð lö
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
ki pir og spe na
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartslá tur
g Kvíði
g Streita
g Pi ringur
Einke i
agnesí
skorts
i t.i
Allt fór á annan endann í lok fyrstu seríu Westworld og lítil hætta á að þær manneskjur, sem eru fastar í heimi þar sem
byssuglöð vélmenni fara hamförum, eigi eftir að ríða hamingjusamar inn í sólarlagið.
3 . M A Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U RM E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð32
BÍÓ
KVIKMYNDIR
Avengers: Infinity War
★★★★★
Leikstjórar: Anthony Russo, Joe
Russo
Aðalhlutverk: Robert Downey Jr.,
Chris Evans, Zoe Saldana
Avengers: Infinity War er lang
stærsta og tilkomumesta Marvel-
myndin til þessa enda er háskinn
sem fylgir tryllta títaninum Thanosi
slíkur að ekkert minna dugir en að
smala saman hverri einustu ofur-
hetju myndasögurisans; bæði úr
The Avengers-bálkinum og hinum
léttleikandi The Guardians of the
Galaxy.
Offramboðið á hetjunum er
slíkt að hætta á ofhleðslu er yfir-
þyrmandi en sú pattstaða er leyst
haganlega með því að dreifa bar-
áttunni á nokkra vígvelli og þeyta
áhorfandanum síðan á milli staða
með slíkum látum og djöfulgangi að
mann sundlar á köflum. Allt gengur
þetta næstum fullkomlega upp og
við, heittrúað Marvel-fólkið, fáum
allt sem við gátum óskað okkur út
úr þessari stórveislu.
Fyrir utan allt þetta er heilmikill
Game of Thrones-fílingur í þessu og
engin hetjan er óhult. Maður hefur á
tilfinningunni strax frá fyrstu mín-
útum að ekki muni þau öll komast
lifandi frá þessum hildarleik og í
raun eru þau öll bráðfeig.
Það er því full ástæða til að hafa
þungar áhyggjur af sínum uppá-
haldshetjum og endirinn er slíkt
rothögg að annað eins hefur ekki
sést í mynd af þessu tagi frá upphafi.
Biðin eftir seinni hálfleik að ári
verður í besta falli óbærileg. – þþ
NIÐURSTAÐA: Myndin er löðrandi í
Marvel-húmor, notalegri væmni og stór-
fenglegum bardagaatriðum. Mögnuð
rúmlega tveggja og hálfrar klukku-
stundar rússíbanareið um Marvel-heima
og -geima.
Sturlað stuð í ofurhetjustórveislu
Tony Stark er í toppformi og ekki veitir af andspænis Thanosi.
Meira á frettabladid.is
Kapalsjónvarpsstöðin HBO á heiðurinn af mörgum bestu sjónvarpsþáttum síðustu
tveggja áratuga og í raun hratt HBO
af stað byltingu í gerð sjónvarps-
þátta með The Sopranos 1999.
Handrit, tónlist, leikur, klipp-
ing og kvikmyndataka standast
þegar best lætur, í kjölfar The Sopr-
anos, allar kröfur hvíta tjaldsins.
Aðdráttar afl þátta af þessu tagi er
enda slíkt að HBO leyfir sér ítrekað
að gera langt hlé á milli þáttaraða án
þess að missa takið á áhorfendum.
Westworld hóf göngu sína í
október 2016 og skilið var við áhorf-
endur á dramatískum hápunkti í
desember. Og loksins, einu og hálfu
ári síðar, er ballið í hinu vélræna
villta vestri byrjað aftur.
Westworld-þættirnir byggja á
drungalegri framtíðarsýn leikstjór-
ans og handritshöfundarins Mich-
aels Crichton heitins sem sendi frá
sér samnefnda kvikmynd 1973.
Westworld sagði frá skemmti-
garði sem bauð vel stæðu fólki upp
á að upplifa villta vestrið í leik-
mynd þar sem mannleg vélmenni
voru höfð þeim til skemmtunar.
Í boði var til dæmis að myrða þau
og nauðga án afleiðinga. Kerfisvilla
verður síðan til þess að vélmennin
gera uppreisn, ganga af göflunum og
slátra kúgurum sínum.
Sama er uppi á teningnum í sjón-
varpsþáttunum þar sem fyrstu
þáttaröð lauk með einmitt þessum
ósköpum. Ekkert vantar upp á
spennuna og tilþrifin í leik og sögu-
þræði en slagkraft sinn sækja þætt-
irnir fyrst og fremst í þær knýjandi
siðferðisspurningar sem þar eru
settar fram.
Er allt í lagi að drepa manneskju
ef hún er ekki af holdi og blóði?
Er bara sjálfsagt mál að sænga hjá
vændiskonu ef hún er ekki raun-
veruleg manneskja? Er venjuleg
manneskja ekki illmenni ef hún
fær sig til og nýtur þess að níðast á
manneskju sem er ekki manneskja?
Hvenær drepur maður mann? Því
er ekki auðsvarað þegar Westworld
stillir áhorfandanum upp við vegg.
En á þeim tæknivæddu sýndarveru-
leikatímum sem við lifum hafa allir
gott af því að velta þessu fyrir sér á
meðan þeir horfa á Westworld.
thorarinn@frettabladid.is
Meðal róna og
véldóna í Arisóna
Sýningar eru hafnar á ný á sjónvarpsþáttunum Westworld. Þætt-
irnir sækja innblástur til 45 ára kvikmyndar. Bæði eru þeir hörku-
spennandi og krefjandi siðferðislegar spurningar gefa þeim dýpt.
0
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
7
-F
C
3
C
1
F
A
7
-F
B
0
0
1
F
A
7
-F
9
C
4
1
F
A
7
-F
8
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K