Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 1
A 3%
B 11%
C 6%
D 23%
F 9%
P 10%
S 8%
V 30%
Aðrir <1%
Fylgi flokkanna
0
7
3
15
56
5
22
Fjöldi
þingmanna
samkvæmt
könnun
PIP Íslenskar konur fá skaðabætur.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Flestar þeirra íslensku kvenna sem
hlutu greiðslur frá þýska fyrirtæk-
inu TÜV Rheinland, vegna PIP-
brjóstapúðamálsins, vilja áfrýja mál-
inu á næsta dómstig. Þetta hefur
Morgunblaðið eftir einni konunni
sem stendur í málaferlunum, en þær
halda nánum samskiptum í lokuðum
hópi á Facebook.
„Ég lít ekki á þetta eins og þessu
sé lokið, þetta er bara hálfnað,“ segir
konan sem vill ekki láta nafns síns
Íslensku konurnar
áfrýja í PIP-málinu
165 konur hér á landi hafa fengið bætur vegna brjóstapúða
getið í fjölmiðlum. Að frádregnum
málskostnaði fyrra málsins og áfrýj-
unarkostnaði fá konurnar greiddar
2.000 evrur, sem er um 255 þúsund
krónur á gengi gærdagsins. „Þetta
er mjög lítil upphæð, en það er gott
að byrja að fá einhverjar greiðslur
svo þetta séu ekki sex ár sem maður
er ekki að fá neitt upp í hendurnar.“
Um 20.000 konur standa að hóp-
málsókninni með íslensku konunum
og eru Íslendingarnir langminnsti
þjóðarhópurinn í málaferlunum, að
sögn lögmanns kvennanna, Sögu Ýr-
ar Jónsdóttur. Áætlað er að niður-
staða áfrýjunardómstólsins gæti
tekið allt að tvö ár, en áfrýjunardóm-
stóll sneri nýverið við samskonar
máli gegn TÜV Rheinland. »24
! " # # $ % & ''
! "#
# " "# % ( & "& ) & (
" % # #
&
$" %
&
%
Guðmundur Magnússon
Höskuldur Daði Magnússon
Vinstrihreyfingin – grænt framboð er
orðin stærsti flokkur landsins sam-
kvæmt skoðanakönnun Félagsvís-
indastofnunar sem gerð var fyrir
Morgunblaðið dagana 19. til 21. sept-
ember. Flokkurinn nýtur fylgis 30%
kjósenda og fengi samkvæmt því 22
þingmenn. Hann hefur nú 10 þing-
menn. Umtalsverður munur er á fylgi
VG eftir kynjum. Ætla 20% karla að
kjósa flokkinn en 40% kvenna.
Sjálfstæðisflokkurinn tapar veru-
legu fylgi frá þingkosningunum í
fyrra, samkvæmt könnuninni. Stuðn-
ingur við hann mælist 23% og fengi
hann 15 þingmenn í stað 21 sem hann
hefur nú. Flokkur fólksins fengi 5
þingmenn kjörna, en hefur engan
þingmann núna. Björt framtíð næði
ekki manni á þing.
Viðbrögð leiðtoga flokkanna ein-
kennast af óvissu um stöðu mála. Vísa
margir í „rót“, „flot“ og „hreyfingu“ á
fylginu. Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, kveðst hlakka
til að fara á fund kjósenda en Inga
Sæland, formaður Flokks fólksins
segir að könnunin gefi flokksmönnum
byr undir báða vængi.
77% töldu rétt að rjúfa þing
Könnunin leiddi ennfremur í ljós að
57% kjósenda telja að rétt hafi verið
að slíta stjórnarsamstarfinu og er
áberandi stuðningur við það meðal
kvenna og yngra fólks. 77% töldu að
rétt hefði verið að rjúfa þing og efna
til kosninga fremur en að mynda nýja
ríkisstjórn. Þá kom fram að 87% telja
„mjög líklegt“ að þeir greiði atkvæði í
þingkosningunum í október.
VG stærsti flokkurinn
40% kvenna ætla að kjósa VG Sjálfstæðisflokkurinn í sögulegri lægð Flokkur fólksins fengi 5
þingmenn kjörna Björt framtíð næði ekki inn manni Mikill stuðningur við stjórnarslit og kosningar
MGífurleg fylgisaukning VG »6
L A U G A R D A G U R 2 3. S E P T E M B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 224. tölublað 105. árgangur
LJÓSMYNDUN
ER SAMOFIN
LÍFI HANS
HÉR ER
NOTALEGT EN
ALLT ÖFUGT
LÍFIÐ GOTT Á NÝJA-SJÁLANDI 12GUÐMUNDUR INGÓLFSSON 42
Helmingur sáttagreiðslu
Deutsche Bank til Kaupþings, um
212,5 milljónir evra eða um 27
milljarðar króna, rann fyrst í gegn-
um félögin Chesterfield og Par-
tridge, sem eru í gjaldþrota-
meðferð, og barst þaðan til
Kaupþings. Um 10% af fjárhæðinni
eða um 2,7 milljarðar króna urðu
eftir í félögunum tveimur, sam-
kvæmt gögnum sem Morgunblaðið
hefur undir höndum. »20
Þrír milljarðar urðu
eftir í þrotabúum
Samið Deutsche og Kaupþing sömdu.
Íslenska kalkþörungafélagið
hefur nú mikinn áhuga á að hefja
vinnslu á þangi í Breiðafirði með
aðstöðu í Stykkishólmi.
Einar Sveinn Ólafsson, sem áður
gegndi stöðu framkvæmdastjóra
fyrirtækisins á Bíldudal, hefur ver-
ið ráðinn til írska móðurfélagsins
Marigot, en verkefni hans verður
að fylgja eftir þróunarverkefnum
um vinnslu þangs í Stykkishólmi
og Súðavík. »16
Stykkishólmur Aðstaða yrði í bænum.
Vilja hefja vinnslu
á þangi í Breiðafirði
Það lá vel á Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG, í Alþingishúsinu í gær. Ekki dró það úr ánægjunni að
heyra að VG væri stærsti flokkurinn á þingi. „Það kemur ánægjulega á óvart að sjá þetta, en ég neita
því ekki að við höfum fundið fyrir miklum stuðningi og meðbyr á undanförnum dögum,“ segir Katrín.
Morgunblaðið/Eggert
Katrín glaðbeitt og finnur fyrir stuðningi og meðbyr