Morgunblaðið - 23.09.2017, Page 16

Morgunblaðið - 23.09.2017, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017 ÚR BÆJARLÍFINU Gunnlaugur Árnason Stykkishólmi Íslenska kalkþörungafélagið hefur mikinn áhuga á að hefja vinnslu á þangi í Breiðafirði með að- stöðu í Stykkishólmi. Einar Sveinn Ólafsson sem áður var fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins á Bíldu- dal hefur verið ráðinn í nýtt starf hjá írska móðurfélaginu Marigot. Verk- efni hans er að fylgja eftir þróun- arverkefnum um vinnslu þangs í Stykkishólmi og Súðavík. Í fyrstu mun Einar fylgja eftir verkefninu í Hólminum og mun því flytja hingað búferlum á næstu mán- uðum. Áhersla verður lögð á að starfsemin geti hafist innan fimm ára, en áður þarf að afla leyfa og tryggja starfsemi í sátt við umhverf- ið. Starfsemin mun skapa fjölmörg ný störf sem styrkja atvinnulífið í Hólminum.    Þeir eru auðþekkjanlegir og sérmerktir bílarnir sem koma Skóg- arströndina þessa dagana. Þeir eru þaktir þykku lagi af aur svo vart sjást bílnúmerin eða út um rúður. Ökumenn eru ekki ánægðir með út- lit bílanna og hjá flestum er fyrsta þjónustan sem þeir þiggja í Hólm- inum á þvottaplani Olís. Ástand veg- arins er mjög slæmt, holur og drulla og halda margir útlendingar sem aka veginn að svona vegir séu aðeins til í óbyggðum.    Sameining þriggja sveitarfé- laga á Snæfellsnesi er nú til skoð- unar. Hugmyndin er að sameina Grundarfjörð, Helgafellssveit og Stykkishólm í eitt sveitarfélag. Ef af verður verður til nýtt sveitarfélag með um 2.200 íbúum. Viðræðum hef- ur verið stjórnað af ráðgjafasviði KPMG. Ráðgjöfunum er ætlað að koma fram með kosti og galla sam- einingar svo að íbúar geti betur tek- ið afstöðu til málsins. Flest bendir til þess að til verði öflugra sveitarfélag með styrkari stoðum sem hefði meiri burði til að veita íbúum betri þjón- ustu og stuðla að vexti þeirra. Stefnt er á að kosið verði um sameiningu sveitarfélaganna á þessu ári. Amtsbókasafnið sem var stofnað að frumkvæði Bjarna amt- manns Thorsteinssonar í Stykk- ishólmi 1847 eða fyrir 170 árum verður innan tíðar og á merkum tímamótum flutt í nýtt húsnæði sem er sambyggt Grunnskólanum. Bygg- ingin mun bæði þjóna sem almenn- ingsbókasafn, ljósmyndasafn og skólabókasafn og nýtast mjög vel í skólastarfinu. Í þessum mánuði tók við stöðu forstöðumanns bókasafns- ins Nanna Guðmundsdóttir bóka- safnsfræðingur og fær það áhuga- verða verkefni að byggja safnið upp í nýju húsnæði við bestu aðstæður þar sem áhersla verður lögð á menntun, menningu og upplýs- ingatækni.    Byggðasafnið í Norska húsinu gegnir mikilvægu hlutverki við vörslu minja Snæfellinga. Á þessu ári varð sú breyting að Stykk- ishólmsbær tók við rekstri safnsins með sérstökum samningi milli Byggðasamlags Snæfellinga og Stykkishólmsbæjar. Jafnframt er lögð áhersla á skráningu safnmuna frá öllum sveitarfélögunum á Snæ- fellsnesi, hvar sem munirnir eru geymdir. Starfsmenn byggðasafns- ins sinna því að taka við safngripum og meta varðveislugildi þeirra og tryggja þannig að merkir munir fari ekki forgörðum. Það fer ekki á milli mála að söfnin þrjú í Stykkishólmi, Byggðasafnið í Norska húsinu, Vatnasafnið og Eldfjallasafnið gegna mikilvægu hlutverki fyrir ferðaþjónustuna á Snæfellsnesi og því mikilvægt að þau séu rekin í sam- starfi.    Háls- og bakdeild St. Franc- iskusspítala sem Jósep Blöndal læknir hefur í 25 ár byggt upp með starfsfólki spítalans hefur sinnt sjúk- lingum af öllu landinu. Langir biðlist- ar hafa jafnan verið eftir meðferð hjá lækni og sjúkraþjálfurum. Nú hefur Jósep H. Blöndal látið af störfum fyr- ir aldurs sakir. Bæjarbúar og allir þeir mörgu sem notið hafa þjónustu hans þakka honum einstakt starf og fagna því jafnframt að stjórn Heil- brigðisstofnunar Vesturlands mun tryggja áframhaldandi þjónustu háls- og bakdeildarinnar sem var opnuð að afloknu sumarleyfi í ágúst. Bjarni Valtýsson svæfingalæknir mun tímabundið sjá um þá hlið starf- seminnar sem snýr að sprautu- meðferð, jafnframt er unnið að var- anlegri lausn þeirrar starfsemi.    Grásleppuvertíðinni í Hólm- inum lauk 14. ágúst þegar bátar í inn- anverðum Breiðafirði drógu upp. Vertíðin var óvenjulöng að þessu sinni, alls 46 samfelldir dagar sem hver bátur mátti vera að, en und- anfarin fjögur ár hafa dagarnir verið 32. Alls veiddust á landinu 4.500 tonn og þar af var landað í Hólminum 920 tonnum. Það eru 20% heildaraflans og næstu hafnir voru Bakkafjörður og Drangsnes með um 290 tonn. Ætla má að verðmæti grásleppunnar sem landað var hér sé um 174 millj- ónir króna. Áhugi á þangverksmiðju Morgunblaðið/Gunnlaugur Auðun Haustskip Það er komið haust og síðasta skemmtiferðarskipið var í höfn í gær. Alls komu 15 skip í sumar, fleiri en áður hafa komið til Stykkishólms. Ellefu hreindýr, tveir tarfar og níu kýr af 1.275 dýra kvóta, voru óveidd þegar hefðbundnu hreindýraveiði- tímabili lauk 20. september. Þetta kemur fram á upplýsingasíðu Um- hverfisstofnunar um hreindýra- veiðar. Allur kvótinn veiddist á fimm veiðisvæðum, það er svæðum 1, 2, 4, 5 og 6. Á svæði 3, Borgarfjarð- arhreppi, Hjaltastaðaþinghá og Eiðaþinghá, gengu af tvær kýr. Á svæði 7 gengu af tvær kýr, á svæði 8 gengu af þrjár kýr og á svæði níu gengu af tveir tarfar og tvær kýr. Svæði 7, 8 og 9 eru syðstu svæðin. Heimilt er að fella 40 kýr til við- bótar fyrrnefndum kvóta í nóvember á veiðisvæði 8. Búið er að úthluta þeim veiðileyfum og er nokkur bið- listi eftir veiðileyfum sem kunna að losna. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Hreindýr Hefðbundinni hreindýravertíð er lokið. Leyft verður að veiða 40 hreinkýr í nóvember á svæði 8, þ.e. í Hornafirði, Lóni og Nesjum. Ellefu hreindýr gengu af kvótanum Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hjón sem búa við Nönnugötu í Reykjavík skrifuðu nýlega bréf til umhverfis- og skipulagsráðs og kvörtuðu yfir hávaðamengun í mið- borginni vegna flugumferðar. Fulltrúar meirihlutans bókuðu áhyggjur af áhrifum flugumferðar. Hjónin sem um ræðir heita Guðrún Kristjánsdóttir og Ævar Kjartansson. „Hávaðinn sem um- ferð flugvéla orsakar í miðbæ Reykjavíkur er orðinn slíkur að hvunndagurinn verður á einhvern óljósan hátt óttablandinn. Sér- staklega á góðviðrisdögum, því þá fer hávaðinn yfir öll velsæm- ismörk,“ segja þau í upphafi bréfs- ins. Þau segja að hávaði sem mengun hafi lítið verið í umræðunni hér á landi, en talinn mikil umhverfisvá í ýmsum löndum í kringum okkur. Þau hjónin hafi búið við Nönnugötu í rúmlega 45 ár. Á þessum árum hafi hávaðinn og olíuþefurinn (í vissri vindátt) angrað þau mismikið en nú í sumar hafi keyrt um þver- bak. „Á sólríkum dögum má oft telja smárellur og þyrlur sem taka á loft á 4-5 mín. fresti og valda ólýs- anlegum hávaða. Í brekkunni frá Hallgrímskirkju niður í Hljóm- skálagarð er hávaðinn sennilega hvað mestur, en allur miðbærinn er undirlagður,“ segir í bréfinu. Flugvélahávaðinn byrji eldsnemma á morgnana og nái fram yfir mið- nætti svo erfitt sé að sofna. Umferð þyrlna hefur aukist stórlega og út- sýnisflug og/eða kennsluflug einnig. Barnið hrökk upp af blundi „Í fyrrasumar fundum við betur en ella hve mikil áhrif þessi hávaði hafði á hversdagslífið þegar við vor- um að passa ungt barnabarn sem hrökk aftur og aftur upp af eft- irmiddagsblundi sínum þrátt fyrir að gluggar væru lokaðir, “ segja þau og hvetja borgina til taka á þessu stóra máli. Fulltrúi Bjartrar framtíðar, Samfylkingarinnar; VG og Pírata segja í bókun að full ástæða sé til að hafa áhyggjur af þeim áhrifum sem flugumferð hefur á borg- arumhverfið. Bréfinu var vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrif- stofu umhverfisgæða. Morgunblaðið/ÞÖK Flugvöllurinn Kvartað er yfir hávaða frá flugvélum, stórum og smáum. Ólýsanlegur há- vaði frá flugvélum  Hvetja borgina til að taka á málinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.