Morgunblaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 35
Elsku pabbi, heimurinn er
ekki samur án þín, einhvern veg-
inn fátækari en samt um leið svo
fallegur af því að þú stoppaðir
þar við um stund.
Ég hugsa til þín á hverjum
degi nú og alltaf.
Bríet Arnardóttir.
Það er dýrmætt að eiga góða
að og það átti ég svo sannarlega í
honum pabba mínum. Við vorum
feðgin en líka nánir og góðir vinir
og áttum skap saman. Sissa
Búmm eins og hann kallaði mig
er pabbastelpa. Pabbi var eins og
Arnarfjörðurinn; fallegur, stór,
friðsæll, kraftmikill og gjöfull. Í
æsku fannst mér pabbi alltaf geta
allt, gerði við allt, hann var besti
leikarinn, söngvarinn og með
hlýjasta og öruggasta faðminn.
Já, ég var svo stolt af honum.
Styrkur hans á erfiðum stundum
var ótrúlegur, að þurfa að segja
litlu stelpunum sínum að litli
bróðir væri dáinn. Sterki hlýi
faðmurinn opinn og gaf okkur
skjól. Einlæg gleðin þegar Arna
Margrét fæddist og óskin okkar
rættist. Ótal skemmtileg ferðalög
koma upp í hugann og þá helst
inn að Dynjanda. Þar var pabbi
kallaður „hreppstjórinn“. Við
Bríet í aftursætinu með köttinn
Loppu og jafnvel nokkra kett-
linga, allir voru velkomnir með.
Þannig var pabbi, allir alltaf vel-
komnir. Hann kom fallega fram
við alla og átti vini á öllum aldri.
Sögurnar hans gleðja nú og
verma hjartað. Ég er svo þakklát
fyrir hvað við gátum hlegið mikið
saman. Stundum þurfti bara eitt
stikkorð úr góðri sögu.
Pabbi var hrókur alls fagnaðar
á mannamótum, sögumaður af
Guðs náð. Hópurinn þéttist í
kringum hann og hann naut þess
að skemmta og gefa af sér. Hann
var ekki hávær en hafði þetta að-
dráttarafl sem ekki er hægt að
útskýra, sterka og góða nærveru.
Elskaði að hlæja og skemmta sér
með góðum vinum. Pabbi trúði
því að okkar hlutverki lyki ekki
hér og óttaðist ekki að kveðja. En
það er ótrúlega sárt að kveðja,
mig vantar eitt pabbaknús, eina
sögu, eina ferð út í dali. Leggjast
þar flötum beinum og súpa úr
sprænunni okkar á góða
staðnum. Leggjast aftur í skafl
uppi á miðjum Hálfdán og horfa á
norðurljósin í algjöru myrkri og
þögn, bara með pabba. Þegar
heilsu pabba fór að hraka átti ég
stundir með honum sem voru
okkur báðum erfiðar, við vorum
hrædd og áhyggjufull. En höfð-
um hvort annað og hughreystum.
Ég er líka þakklát fyrir þær
stundir sem verða til þess að
maður segir nákvæmlega það
sem manni í brjósti býr, þorir að
vera berskjaldaður. Besti afi í
heimi sem var svo stoltur af
stelpunum okkar, þær voru hon-
um svo dýrmætar. Hann bar til-
finningar sínar ekki á torg, en var
svo hjartahlýr, traustur og
tryggur, vinur vina sinna. Bar
hag síns fólks fyrir brjósti. Ég er
þakklát elsku mömmu sem alltaf
stóð með pabba. Þakklát fyrir
góða, trausta pabbann minn, vin-
inn góða sem ég elskaði svo heitt
og leit alltaf upp til. Já, ég er allt-
af jafn stolt af honum og heppin
að vera Sirrý hans Ödda.
Nú er hann kominn til ástvin-
anna í Sumarlandinu, þar er
Bíldudalslogn og veiðilendur
gjöfular.
Fyrir hönd móður minnar
þakka ég starfsfólki sjúkrahúss-
ins á Patreksfirði auðsýnda virð-
ingu og væntumþykju, því gleym-
um við aldrei.
Traustum og góðum vinum
foreldra minna þakka ég fyrir
vináttuna, hjálpsemina, heim-
sóknirnar og stuðninginn sem
var pabba svo ótrúlega dýr-
mætur. Á Bíldudal leið honum
best og þar sló hjartað í réttum
takti.
Sigríður Arnardóttir
Fleiri minningargreinar
um Örn Gíslason bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017
✝ Sigrún Ein-arsdóttir
fæddist 8. apríl
1935 í Langholti í
Bæjarsveit. Hún
lést á sjúkrahúsi
Heilbrigðisstofn-
unar Vesturlands
á Akranesi 16.
september 2017.
Foreldrar henn-
ar voru búendur í
Langholti 1930-
1945, hjónin Jóney Sigríður
Jónsdóttir frá Kópareykjum í
Reykholtsdal og Einar Sig-
mundsson frá Gróf.
Sigrún var yngst fjögurra
barna þeirra. Eldri voru; Þórð-
ur, 1931-2000, bóndi í Kletti í
fimm börn og sex barnabörn.
4. Sigríður, f. 1960, á tvö börn.
5. Helga Björk, f. 1969, á tvö
börn og eitt barnabarn. Sam-
býlismaður hennar er Birgir
Hlíðar Guðmundsson.
Sigrún ólst upp við almenn
bústörf hjá foreldrum sínum er
fluttu að Kletti í Reykholtsdal
1945. Eftir barnaskóla vann
hún að mestu heima en fór til
náms í Húsmæðraskólanum að
Varmalandi veturinn 1953-
1954. Sigrún og Bjarni hófu
búskap 1955 í Gróf í Reyk-
holtsdal en fluttu að Nesi 1957
og bjuggu þar sína búskapar-
tíð. Sigrún tók þátt í félags-
starfi Ungmennafélags Reyk-
dæla og síðar um skeið í
Kvenfélaginu.
Útförin verður gerð frá
Reykholtskirkju í dag, 23. sept-
ember 2017, klukkan 11.
Reykholtsdal, Sig-
mundur, 1932-
1965, bóndi í Gróf,
og Jón Eyjólfur,
1933-1995, prestur
í Saurbæjar-
prestakalli og pró-
fastur í Borgar-
fjarðarprófasts-
dæmi.
Sigrún giftist
Bjarna Guðráðs-
syni, Nesi í Reyk-
holtsdal, árið 1956. Börn
þeirra eru: 1. Sigurður, f. 1955,
giftur Vöku Kristjánsdóttur og
eiga þau tvö börn og fjögur
barnabörn. 2. Einar, f. 1958, á
fjögur börn og tíu barnabörn.
3. Sigrún, f. 1959, (kjördóttir) á
Fuglinn
Hann situr á grein
Hann lítur við
Hefur nært ungana sína
Byggt upp fallegt og traust hreiður
Nú er hann tilbúinn að fara, öruggur
Fljúga í frelsið.
(HBj)
Elsku mamma,
Ég er umvafin kærleika og
þakklæti sem aldrei fyrr, ég
heyri andardrátt þinn, finn
lyktina þína líkt og þegar ég
var barn.
Ég sit við eldhúsborðið í
Nesi og þú á móti mér. Þú áttir
þitt sæti. Við tökum spjallið.
Við eldhúsborðið þitt og pabba
hafa átt sér stað ófáar samræð-
ur og rökræður og gleðilegar
stundir með öllu því góða fólki
sem til ykkar hefur komið í
gegnum tíðina, bæði fjölskyldu
og vinum. Þú naust þess að
hafa fólk í kringum þig. Þú
varst umhyggjusöm og gjaf-
mild, mamma, þér var umhugað
um að allir fengju nóg og allir
hefðu það gott. Oftar en ekki
svignaði eldhúsborðið af kræs-
ingum og ein sort var ekki nóg,
þær urðu að vera margar. Ég
hef séð ömmu Jóneyju oft fyrir
mér því í minningunni var hún
alltaf að stússast í eldhúsinu,
hvort sem það var að steikja
kleinur eða baka jólakökur, þú
hefur fengið þetta í uppeldinu
þínu mamma. Ófáar stundirnar
sastu líka í stólnum þínum og
prjónaðir og spjallaðir við vin-
konur og vini þína í síma. Þú
áttir marga að og allt þetta
spjall var svo dýrmætt og mik-
ill styrkur fyrir þig. Þið pabbi
áttuð líka margar góðar stund-
irnar saman og voruð mjög
tengd, sem er svo fallegt. Þið
náðuð að þroskast saman í
gegnum lífið, gegnum mörg
misjafnlega auðveld verkefni en
stærsta verkefnið ykkar saman
studduð þið hvort annað í, að
byggja upp þessa fallegu jörð
ykkar sem þú nú horfir yfir.
En mamma, síðustu mánuðir
hafa verið mér einstaklega lær-
dómsríkir, þökk sé þér. Sá tími
hefur fært okkur nær hvort
öðru, ég hef metið hvert augna-
blik og fundið aukinn innri
styrk. Sá styrkur er svo sann-
arlega kominn frá þér, elsku
mamma, því það var alveg ein-
stakt að upplifa styrk þinn í
allri þjáningunni.
Nú tekur við hvíld, síðan
danssporin og gleðispjallið með
vinkonunum og fjölskyldunni
sem tekur þér opnum örmum.
Við sjáumst síðar, bið að
heilsa öllum og ástarþakkir fyr-
ir allt, við sjáum um pabba.
Og ljósið mér skein, svo ei lengur
var kalt,
Og lækning við meini var fengin.
Í hugarins leyni nú hljómaði allt,
Þú hreyfðir hvern einasta strenginn.
(Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum)
Þín dóttir,
Helga Björk.
Mín fyrstu kynni af Sigrúnu
tengdamóður minni voru
snemma árs 1975 er ég heim-
sótti Nes í fyrsta sinn, en þá
vorum ég og frumburður henn-
ar og Bjarna, hann Sigurður,
farin að stinga saman nefjum.
Ég var nítján ára Reykjavík-
urmær og komin í umhverfi
sem var mér ókunnugt, en
sveitastörfum hafði ég lítið
kynnst áður. Ekki veit ég
hvernig fólkinu leist á ungu
konuna en eftir þetta kom ég
reglulega í Nes og kynntist líf-
inu þar smátt og smátt. Fjöl-
skyldan reyndist taka mér vel,
ekki síst Rúna, og áttum við
eftir að eiga margar samveru-
stundir þar sem margt gagn-
legt var rætt og kenndi hún
borgardömunni ýmislegt sem til
langframa varð henni til góðs í
sveitinni og lífinu almennt.
Er fram liðu stundir fluttist
ég í Nes með Sigurði þegar
fastráðið var að hann stofnaði
félagsbú með foreldrum sínum.
Fórum við inn í nýbyggt hús
þar haustið 1980 með ungan
son okkar en fengum að búa á
heimili tengdaforeldra minna í
um tvo mánuði á meðan við
lögðum lokahönd á nýbygg-
inguna. Það hefur eflaust verið
aukaálag að hýsa þessa ungu
fjölskyldu en Bjarni og Rúna
tóku okkur af mikilli hlýju og
eiga þau þakkir skildar fyrir
það. Þau studdu okkur í einu og
öllu eins og þeim var lagið. Það
er skemmst frá því að segja að
í sveitinni leið mér vel og lærði
að meta lífið þar þó að búskap-
urinn reyndist ekki verða minn
aðalstarfi. Þetta var góður
skóli.
Allt frá því ég kynntist Rúnu
hefur hún verið órjúfanlegur
hluti af tilverunni. Hún var mér
stoð frá því ég fyrst kom í Nes
og miðlaði mér af reynslu sinni
og þekkingu. Saman áttum við
prjónaskap að áhugamáli og
spurði hún mig alltaf að því
hvað ég væri með á prjónunum
þegar við heyrðumst. Hún lagði
sig fram um að fylgjast með
fólkinu sínu og hafði mikla
ánægju af að sjá barnabörnin
vaxa upp og dafna. Það var
ómetanlegt að fá að ala börnin
sín upp í sveitinni og alger for-
réttindi að þau skyldu fá að
njóta samvista við afa og ömmu
sem alltaf voru tilbúin að sinna
þeim ef þess þurfti. Að þessu
búa börnin okkar Sigurðar og
tala þau sjálf um það.
Rúna var heilsteypt kona og
trygg sem ekki mátti vamm sitt
vita og þoldi ekki ósannindi eða
óréttlæti. Hún er ein fórnfú-
sasta manneskja sem ég hef
kynnst og lét hag annarra alltaf
sitja fyrir en vildi síður láta
aðra hafa fyrir sér. Hún var
minnug, dugleg til verka úti
sem inni, átti gott með að um-
gangast fólk og var einstaklega
gestrisin. Hún skipti sér aldrei
af búi okkar unga fólksins en
gaf ráð ef þess var leitað. Milli
okkar ríkti gagnkvæm virðing
og vinátta þau 42 ár sem við
áttum samleið.
Fjölskyldunni féll þungt
heilsuleysi Rúnu hin síðari ár
en hún vildi lítið gera úr því og
eyddi frekar öllu tali er það
varðaði. Hún vildi miklu fremur
bjóða til eldhúss að ræða málin,
heyra nýjustu fréttir, fylgjast
með framvindu í sveitinni, njóta
samveru fjölskyldu og vina og
umfram allt vera sem lengst
heima í Nesi með Bjarna sínum
og taka þátt í störfum þar.
Að leiðarlokum minnist ég
Rúnu af mikilli hlýju og þakk-
læti og bið henni blessunar í
ljósinu á öðru sviði tilverunnar.
Vaka Kristjánsdóttir.
Fallin er frá sómakonan Sig-
rún Einarsdóttir, Rúna frænka
eins og við kölluðum hana
ávallt, en hún var föðursystir
okkar.
Rúna frænka var einstök
fjölskyldukona, sem hugsaði vel
um þau öll sem henni voru kær
og langt út fyrir sína eigin
kjarnafjölskyldu. Hún átti stór-
an og hlýjan faðm og var rétt-
sýn og sanngjörn. Foreldrum
sínum reyndist hún stoð og
stytta og var kærleiksrík systir
sem hjálpaði ef hún framast
gat.
Öllum sem heimsóttu Rúnu
var ljóst að hún unni heimili
sínu, og fjölskyldu sinni bjó hún
hlýlegt og fallegt heimili. Gott
var að sækja þau hjónin heim
og oft var setið lengi og spjall-
að, því frænka vildi fylgjast
með því sem við vorum að fást
við hverju sinni. Spjallið var líf-
legt því Rúna var hláturmildur
húmoristi sem sá spaugilegu
hlið flestra mála og hafði gam-
an af þeim uppákomum sem líf-
ið færði. Rúna var sérlega dug-
leg, algjör dugnaðarforkur sem
gekk í öll þau verk sem hún gat
bæði innan dyra og utan. Oft
var vinnudagurinn langur en
aldrei kvartaði hún heldur gekk
ákveðið og fumlaust til verka.
Að eðlisfari var Rúna góð-
hjörtuð, gæskurík og gefandi
kona. Þann hæfileika að láta
fólki líða vel í kringum sig hafði
hún eflt og þroskað ríkulega.
Það er gefandi og þroskandi að
fá að umgangast manneskjur
sem hafa jákvæða og bjarta
lífssýn. Þegar Rúna frænka
horfði yfir sína rúmu átta ára-
tugi var hún glöð.
Hún hafði notið samfylgdar
með góðu og glöðu fólki og
eignast stóra fjölskyldu. Rúna
var því rík en við öll sem hana
þekktum erum ríkari að hafa
átt hana að ástvini og samferð-
arkonu.
„Allt sem faðirinn gefur mér,
mun koma til mín og þann sem
kemur til mín, mun ég alls eigi
brott reka.“ Þetta er eitt falleg-
asta loforð Jesú. Á fallegum
haustdegi lauk Rúna sinni lífs-
göngu hér í heimi og gekk á
fund vinar síns og frelsara. Þar
hefur hún átt góða heimkomu.
Öllum sem elskuðu Rúnu send-
um við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Sigrún-
ar Einarsdóttur.
Sigríður Munda, Guðjón
Ólafur, Jóney og Einar
Kristján Jónsbörn.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Blessuð sértu sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
Engið, fjöllin, áin þín,
yndislega sveitin mín,
heilla mig og heim til sín
huga minn úr fjarlægð draga.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
(Sigurður Jónsson)
Kvöldblíðan lognværa kyssir hvern
reit,
komið er sumar og fögur er sveit.
Sól er að kveðja við bláfjalla brún,
brosa við aftanskin fagurgræn tún.
Seg mér hvað indælla auga þitt leit
íslenska kvöldinu í fallegri sveit.
(Guðmundur Guðmundsson)
Kærar þakkir fyrir allt sem
þú hefur verið mér alla mína
tíð.
Guð geymi þig, engillinn
minn, og ég geymi allar minn-
ingarnar.
Bless og knús.
Þín frænka
Guðrún Benediktsdóttir.
Elsku Rúna.
Það eru liðin nokkur árin,
bæði með gleði- og sorgar-
stundum, síðan ég 15 ára stel-
putrippi hitti þig fyrst. Eftir
erfið veikindi hefur þú nú feng-
ið hvíldina.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Takk fyrir allt.
Guðfinna (Gugga).
Þegar ég var ráðinn til
starfa sem forstöðumaður
Snorrastofu og mætti í Reyk-
holt vorið 1998 til að kynna
mér þau vægast sagt áhuga-
verðu verkefni sem biðu mín
kynnti Bjarni Guðráðsson fyrir
mér starfsemina og fór með
mig í bíltúr í blíðunni um
svæðið, m.a. að Hraunfossum,
sem telja verður með fegurstu
fossum veraldar. Um kvöldið
var farið með mig á æfingu hjá
Reykholtskórnum, sem Bjarni
stjórnaði samhliða öllum öðr-
um störfum og hlutverkum
sem hann hafði með höndum.
Um leið varð ég þeirrar
ánægju aðnjótandi að fá að
kynnast Sigrúnu. Tvisvar
þennan dag var komið við í
Nesi þar sem Rúna beið með
veitingar, fyrst kvöldmat og
síðan kaffi og kökur á miðnætti
eftir æfingu kórsins. Kallaði
Sigrún þetta seinna kaffi og
fékk ég þá tilfinningu að um
væri að ræða þá föstu venju að
reikna með gestum á miðnætti
hvern einasta dag, sem ég hef
reyndar ekki fengið staðfest.
Fyrir í eldhúsinu þetta kvöldið
var Þorsteinn Pétursson á
Hömrum, kennari á Klepp-
járnsreykjum og aðstoðarmað-
ur Bjarna við ýmis viðvik í
tengslum við byggingu Reyk-
holtskirkju-Snorrastofu, en
Bjarni var formaður bygging-
arnefndar þessara miklu fram-
kvæmda. Sigrún í Nesi var
þannig ávallt tilbúin með kaffið
og meðlætið þegar Bjarni kom
með gesti eins og okkur sam-
starfsmenn sína. Þegar manni
voru ljós öll hlutverk Bjarna,
sem bættust ofan á umfangs-
mikil bústörfin, varð manni
einnig ljóst að án aðkomu og
ótakmarkaðs stuðnings Sigrún-
ar hefði þessi athafnasemi
aldrei orðið öll að veruleika.
Við eigum því Sigrúnu mikið
að þakka. Einnig ber að minn-
ast framlags Sigrúnar við ýmis
verkefni í Snorrastofu, auk
þess sem hún var dugleg við að
sækja viðburði stofnunarinnar,
sem hún hélt áfram að gera hin
síðari ár þrátt fyrir mikil veik-
indi. Ég þakka því kærlega
fyrir hin góðu kynni og þá
miklu gestrisni sem ég fékk
ávallt að upplifa.
Þá vil ég fyrir hönd Snorra-
stofu þakka alla þá vinnu sem
hún lagði af mörkum fyrir
stofnunina, sem að stórum
hluta var óeigingjörn sjálf-
boðavinna.
Kæru Bjarni og fjölskylda,
við Sissý vottum ykkur öllum
okkar dýpstu samúð.
Bergur.
Sigrún Einarsdóttir HIINSTA KVEÐJA
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson)
Þinn langömmustrákur,
Tómas Breki Bjarnason.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR GUÐNÝ JÓHANNSDÓTTIR
FANNBERG,
lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 7.
september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Gunnhildur Fannberg Ron Tucker
Jón Á. Fannberg Anke Thormann
Þuríður Rúrí Fannberg
Jóhann Ármann Fannberg Huldís S. Haraldsdóttir
Gísli Fannberg Kristín Sigríður Reynisdóttir
Ólafur Fannberg Kristín Fríða Garðarsdóttir
Rannveig Fannberg Andrjes Guðmundsson
Arndís Fannberg Hannes Birgir Hannesson
og fjölskyldur