Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017
Við fjölskyldan erum í Barcelona í afmælisferð,“ segir Lilja Guð-mundína Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur sem á 50 ára af-mæli í dag. Nú stendur yfir mikil matar- og menningarhátíð
þar í borg þar sem Reykjavík er í sérstöku gestahlutverki en hátíðin
ber nafnið La Merce. Lilja skoðaði sig um á hátíðinni. „Það er heil-
mikil dagskrá hérna og mikið um að vera. Það var til dæmis búið til
heilmikið sjónarspil þar sem norðurljósin, íslensku eldfjöllin og foss-
arnir voru sýnd og tónlist eftir Sigtrygg Baldursson úr Sykur-
molunum spiluð undir.“
Lilja segist ekkert hafa orðið vör við nein mótmæli út þjóðar-
atkvæðagreiðslunni um sjálfstæði Katalóníu. „Hér er allt með kyrrum
kjörum, við sjáum fána Katalóníu á lofti en engin mótmæli.“
Með Lilju í för í Barcelona eru eiginmaður hennar, Hilmar Eiríks-
son, starfsmaður hjá Merkingu, og börn þeirra Guðrún Lilja og Gunn-
ar Þór og Hlynur, kærasti Guðrúna, en stjúpbörn Lilju eru ekki með í
för að þessu sinni.
„Þetta er í fjórða eða fimmta sinn sem ég kem til Barcelona og í
næsta mánuði förum við í aðra afmælisferð til Búdapest, það dugar
ekkert minna en tvær afmælisferðir,“ en Lilja hefur mikið gaman af
útivist og ferðalögum. Svo spilar hún einnig golf. „Við skildum golf-
kylfurnar eftir núna, en við fórum í golfferð á Englandi í vor.“
Lilja vinnur á heilsugæslunni Sólvangi í Hafnarfirði, en hún er sjálf
Hafnfirðingur, býr þar og ólst þar upp.
Afmælisbarnið Lilja í golfferð á Alicante í fyrrahaust.
Skoðar sig um á
hátíð í Barcelona
Lilja G. Gunnarsdóttir er fimmtug í dag
S
tefán Ólafur Jónsson
fæddist í Sandfellshaga í
Öxarfirði 23.9. 1922 og
ólst þar upp. Hann stund-
aði nám við Alþýðuskól-
ann á Laugum 1940-41, lauk kenn-
araprófi frá KÍ 1947, stundaði nám í
starfsvali og starfs- og námsvals-
ráðgjöf við Kennaraháskólann í
Kaupmannahöfn 1963-64 og sótti
mörg þjálfunarnámskeið fyrir náms-
og starfsvalsráðgjafa í Finnlandi,
Svíþjóð og Danmörku.
Stefán var kennari við Laugarnes-
skóla 1947-63 og í hálfu starfi þar
1964-65, stundakennari við KHÍ
1966-76, námsstjóri í þjóðfélags-
fræði og starfsfræðslu 1964-68,
fulltrúi á fræðslumálaskrifstofu
1968-71, fulltrúi í menntamálaráðu-
neytinu 1971-74 og deildarstjóri
verk- og tæknimenntunardeildar
ráðuneytisins 1974-92. Hann hafði
umsjón með endurmenntun grunn-
skólakennara 1964-71.
Stefán fór til Noregs á vegum
UMFÍ sumarið 1952 og kynnti sér
þar starfsíþróttir og æskulýðsstarf.
Hann var leiðbeinandi UMFÍ í
starfsíþróttum 1952-64, sat í stjórn
Ungmennafélags Reykjavíkur 1948-
51, í stjórn UMFÍ 1949-61 og ÍBR, í
stjórn Sambands bindindisfélaga í
skólum 1946-47, í samvinnunefnd
bindindismanna um árabil frá 1946,
var formaður Kennarafélags
Laugarnesskóla um árabil, sat í
Umferðarráði frá stofnun og til
1978, hefur setið í tugum stjórnskip-
aðra nefnda um menntamál, dagvist-
un og æskulýðsmál og norrænum
samstarfsnefndum, var formaður
Norðurkollunefndar í 20 ár,
samstarfsverkefni milli Íslands og
Nordkalotten, en hingað komu ár-
legu um 15 manns frá Nordkalotten
og frá Íslandi fóru jafn margir til
sænskunáms í Norður-Svíþjóð.
Stefán samdi, ásamt Kristni
Björnssyni, Kennslubók í starfs-
fræðslu 1966. Hann samdi ritið Nám
að loknum grunnskóla 1977 og sá um
útgáfu á tuttugu og fimm smáritum
um starfsíþróttir, samdi sum þeirra,
þýddi önnur og fékk sérfræðinga til
að taka saman önnur.
Eftir starfslok fór Stefán að læra
trérennismíði og var einn af stofn-
endum Félags trérennismiða 1994.
Hann starfaði einnig innan Heimilis-
iðnaðarfélags Íslands og sat í stjórn
þess, starfaði mörg ár í Félagi eldri
borgara í Reykjavík, sat í stjórn
þess og nefndum og var formaður
byggingarnefndar félagsins sem
Stefán Ólafur Jónsson, fyrrverandi deildarstjóri – 95 ára
Útskrift Stefán Ólafur og Elín með Jóni Þrándi og Þorbirni Tjörva eftir útskrift þeirra í Bandaríkjunum árið 1992.
Sinnti fyrst æskunni og
síðar eldri borgurum
Hjónin Stefán og Elín við Kvíarnar
hans Snorra í Húsafelli.
Eskifjörður Baltasar Björgvin fæddist
19. ágúst 2016 kl. 19.27 á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað. Hann vó
4.240 g og var 54 cm. Foreldrar hans
eru Sveindís Björg Björgvinsdóttir og
Friðþjófur Tómasson.
Nýr borgari
Inga Valdís Þorsteinsdóttir
og Laufey Lilja Her-
mannsdóttir héldu tombólu
á Akureyri og söfnuðu 1.734
krónum til styrktar Rauða
krossinum á Íslandi.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Ullarnærföt í útivistina
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is 30ÁRA
100% Merino ull
Góð og hlý heilsársföt fyrir karla og konur
Stærðir: S – XXL
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri • Verslunin Blossi, Grundafirði
Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga • Blómsturvellir, Hellissandi • Kaupfélag V-Húnvetninga • Eyjavík, Vestmannaeyjum
Þinn dagur, þín áskorun
OLYMPIA