Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017
„Hann er ekki bara gamall vinur
og skólafélagi, heldur var hann líka
á vissan hátt einn af kennurum mín-
um því hann er nokkrum árum eldri
en ég og var þroskaðri og lengra
kominn þegar ég kom til Þýska-
lands. Þá var hann alltaf mjög gagn-
rýninn.“
Kom Guðmundi á óvart hvaða
verk Rautert valdi á sýninguna?
„Nei, nei, enda verður maður að
beygja sig undir vilja þess sem feng-
inn er til að setja saman sýningu
sem þessa. Utanaðkomandi maður
eins og hann kemur með fersk augu
að myndunum og nær mögulega að
draga fram eitthvað sem hefði farið
fram hjá mér sjálfum.“
Ekki hægt í öðrum miðli
Þegar Timm Rautert er beðinn
um að lýsa Guðmundi sem ljós-
myndara þá er svarið að hann sé
hljóðlátur og yfirvegaður að baki
myndavélinni. „Það sést svo vel í
myndum hans, þar er aldrei nein
taugaveiklun. Sumir ljósmyndarar
eru svo óöruggir og allir á iði en
Guðmundur er demut, eins og við
segjum á þýsku. Auðmjúkur.
Frammi fyrir veruleikanum er hann
alltaf auðmjúkur og hann trúir því
sem hann sér.“
Á sýningunni birtist Rautert sjálf-
ur á myndum síðan snemma á átt-
unda áratugnum og þegar spurt er
hvort vinátta þeirra allan þennan
tíma hafi gert honum auðveldara en
ella við að velja verkin á sýninguna,
segir hann það frekar hafa gert sér
erfiðara fyrir, það þurfi ekki að vera
gott að vita of mikið um sögu hinna
einstöku verkefna ljósmyndarans.
„Á móti kemur að það er afskaplega
gaman og gott að vinna með Guð-
mundi. Hann hefur ekki hátt en veit
fullkomlega hvað hann er að gera.
Þannig hefur hann alltaf verið,
hljóðlátur, enginn egóisti – og af-
skaplega góður vinur.“
Rautert kveðst ekki hafa komið
með neinar fyrirfram gefnar hug-
myndir að því verkefni að setja sam-
an yfirlitssýninguna. „Ég þekkti
hluta verkanna en alls ekki allt, til
dæmis þekkti ég ekki vel þessa stór-
merkilegu skráningu hans á gömlum
húsum í Reykjavík. Mér finnst
merkilegt hvað hann er alltaf nálægt
eðli ljósmyndunar, sjáðu til,“ segir
hann og bendir á raðir ljósmynda í
salnum. „Þessi verk hér er ekki
hægt að gera í neinum öðrum miðli.
Guðmundur hugsar samtímis í og
um ljósmyndun. Hann veit svo
gríðarlega margt um þennan miðil –
og um listirnar yfirhöfuð; ég held að
ljósmyndun sé algjörlega samofin
lífi hans.“
Ást á fólki og ljósmyndun í senn
„Ljósmyndin er einstakur miðill
til að sýna okkur söguna,“ segir
Rautert síðan þar sem hann gengur
um salinn og dáist að heimildarþætt-
inum í mörgum ljósmyndanna.
„Þessar myndir sýna með ein-
stökum hætti þær breytingar sem
verða með tímanum.“
Þorra verkanna hefur Guð-
mundur tekið á stórar blaðfilmu-
myndavélar, sem krefjast hægra og
yfirvegaðra vinnubragða, með film-
um í stærðunum 4x5, 5x7 og 8x10
tommum. Hann beitir einnig minni
myndavélum eins og verkefnin
krefjast og sjá má í fjölbreytilegum
myndröðunum.
„Það er flæðandi saga sem birtist
hér á sýningunni enda hugsar Guð-
mundur um allar hliðar lífsins, og
þar á meðal um ljósmyndamiðilinn
sjálfan,“ segir Rautert. „Myndirnar
af fjölskyldunni eru afar mikilvægar
í heildarmyndinni því hann er svo
nátengdur fólkinu sínu – ég held að
allir skynji hér ást Guðmundar á
fólki og ljósmyndun í senn.“
Rautert bætir hugsi við að sýn-
ingin hljóti að vekja áhuga íslenska
ljósmyndasamfélagsins og sé um
leið vitaskuld forvitnileg fyrir er-
lenda gesti. „Sýningin er frekar lítil
en mér finnst hún hreinlega full-
komin eins og hún er!“
Hann segir að í verkunum megi
vissulega sjá allskyns tengingar við
evrópska og alþjóðlega ljósmyndun.
„Og ekki síst við Þýskaland – enda
nam Guðmundur eins og ég hjá
æðsta páfa þýskrar ljósmyndunar,
Otto Steinert.“
Sér Rautert „þýska skólann“ í
verkum Guðmundar?
„Að vissu leyti,“ svarar hann. „Til
að mynda í nákvæmninni og því
hvernig Guðmundur hugsar og nálg-
ast sögu miðilsins. Hann nam í
deiglu sem býr með honum allar
götur síðan. Við vorum heppnir að fá
þann bakgrunn.“
Mjög nostalgískir
Þegar við Guðmundur göngum
um sýninguna og ég hef á orði að
þar sé úrval úr allmörgum seríum,
þá segist hann yfirleitt reyna að
klára hverja myndröð á sem styst-
um tíma.
„Þarna er til dæmis sería af ung-
lingum sem ég tók á afmæli Reykja-
víkur sumarið 1986. Ég byrjaði í
fyrra að leita að fólkinu og endur-
taka myndirnar, 30 árum seinna, en
það hefur reynst erfitt að koma fólk-
inu aftur saman og því sýni ég bara
gömlu myndirnar.“
Um þekkta röð litmynda af sjopp-
um sem Guðmundur tók á stóra
blaðfilmu árið 1999 segir hann
merkilegt hvað geti orðið sér að
hvatningu til að mynda. „Á þeim
tíma átti ég þrjá eða fjóra pakka af
stórum blöðum af japanskri filmu
sem hét Velvia. Ég þurfti að klára
þau áður en þau urðu of gömul og ég
fann mér eitthvað nógu litríkt að
mynda, og spandera blöðunum á.“
En svo hefur tíminn liðið og
myndirnar orðið að einstökum og
áhrifaríkum heimildum.
„Já, þetta er allt horfið núna,“
segir hann og bætir við að nálgun
sín í að mynda til að mynda bygg-
ingar í borginni byggist á sterkri
hefð frá útlöndum. „Ég hef alla tíð
haft mikinn áhuga á arkitektúr og
borgarskipulagi, alveg síðan ég var
unglingur – kannski er ég að finna
mér eitthvað að hneykslast á,“ segir
hann og glottir.
Það átti þó ekki við um allar bygg-
ingarnar í Kvosinni, sem hann
myndaði upphaflega fyrir Torfu-
samtökin en aldarfjórðungi síðar
aftur og þá í lit. „Og ég verð nú að
segja að þá var nú heldur orðin
framför, að mörgu leyti.“
Landslagsmyndraðirnar segir
Guðmundur að séu eiginlega „berja-
tínsla“ og ná þær yfir langan tíma,
frá því um 1970. „Þetta eru engir
þekktir staðir, það er nóg ljós-
myndað af þeim.“
En hvað kallar hann að landslagi?
„Hreinn formalismi. Ég horfi mik-
ið inn í landið. Vinn með formin.
Hér eru til dæmis mosaflákar á
hrauni innan úr Laka en það er ekk-
ert sem segir að myndin sé tekin
þar …
Annars erum við ljósmyndarar
upp til hópa mjög nostalgískir. Ætli
myndirnar hjálpi okkur ekki til að
muna heiminn betur.“
samofin lífi hans
Morgunblaðið/Einar Falur
Myndlistarsýningin Verulegar verð-
ur opnuð í Listasafni Árnesinga í
Hveragerði kl. 15 í dag og stendur til
17. desember Samkvæmt tilkynn-
ingu frá safninu er sjónum á sýning-
unni beint að listferli Brynhildar
Þorgeirsdóttur og Guðrúnar
Tryggvadóttur sem spannar nær
fjóra áratugi.
Báðar listakonurnar hafa sterk
tengsl við Árnessýslu, en Brynhildur
er fædd og uppalin á Hrafnkels-
stöðum í Hrunamannahreppi en býr
nú í Reykjavík, og Guðrún er fædd
og uppalin í Reykjavík en á ættir að
rekja til Hrunamannahrepps og býr
núna í Hveragerði.
Leiðir listakvennanna lágu saman
í Myndlista- og handíðaskóla Íslands
1974, og voru þær öflugar á vett-
vangi myndlistar í kjölfar umbrota-
tíma á áttunda áratugnum. Báðar
hafa þær einnig dvalið við nám og
störf í Evrópu og Bandaríkjunum til
lengri og skemmri tíma. Veitt er inn-
sýn í þróunina í verkum lista-
kvennanna og sýnt hvernig list
þeirra hefur einkennst af heil-
steyptum myndheimi allt frá byrjun.
Brynhildur mótar kynjaverur,
fjöll og landslag m.a. úr steinsteypu
og gleri, en Guðrún málar veruleika
kynslóða og orku í tíma og rúmi með
olíulitum á striga.
Listavinkonur Brynhildur og Guðrún opna sýningu í Listasafni Árnesinga.
Heilsteyptur myndheimur
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Sun 24/9 kl. 20:00 13. sýn Sun 22/10 kl. 20:00 22.
sýn
Fim 23/11 kl. 20:00 30. sýn
Fim 28/9 kl. 20:00 14. sýn Sun 29/10 kl. 20:00 23.
sýn
Fös 24/11 kl. 20:00 31. sýn
Fös 29/9 kl. 20:00 15. sýn Lau 4/11 kl. 20:00 24. sýn Mið 29/11 kl. 20:00 32. sýn
Sun 1/10 kl. 20:00 16. sýn Fös 10/11 kl. 20:00 25. sýn Fös 1/12 kl. 20:00 33. sýn
Fös 6/10 kl. 20:00 17. sýn Sun 12/11 kl. 20:00 26.
sýn
Sun 3/12 kl. 20:00 34. sýn
Lau 7/10 kl. 20:00 18. sýn Þri 14/11 kl. 20:00 aukas. Mið 6/12 kl. 20:00 35. sýn
Sun 8/10 kl. 20:00 aukas. Fim 16/11 kl. 20:00 aukas. Lau 9/12 kl. 20:00 36. sýn
Fös 13/10 kl. 20:00 19. sýn Lau 18/11 kl. 20:00 27.
sýn
Sun 10/12 kl. 20:00 37. sýn
Sun 15/10 kl. 20:00 20. sýn Sun 19/11 kl. 20:00 28.
sýn
Lau 21/10 kl. 20:00 21. sýn Mið 22/11 kl. 20:00 29.
sýn
Sýningin sem sló í gegn síðasta vor snýr aftur.
1984 (Nýja svið)
Lau 23/9 kl. 20:00 4. sýn Fös 29/9 kl. 20:00 7. sýn Mið 4/10 kl. 20:00 10. sýn
Sun 24/9 kl. 20:00 5. sýn Lau 30/9 kl. 20:00 8. sýn Fös 6/10 kl. 20:00 11. sýn
Fim 28/9 kl. 20:00 6. sýn Sun 1/10 kl. 20:00 9. sýn Lau 7/10 kl. 20:00 12. sýn
Stóri bróðir fylgist með þér
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 23/9 kl. 20:00 2. sýn Lau 14/10 kl. 20:00 4. sýn
Lau 30/9 kl. 20:00 3. sýn Lau 28/10 kl. 20:00 5. sýn
Sprenghlægilegur farsi!
Kartöfluæturnar (Litla svið)
Fim 28/9 kl. 20:00 3. sýn Sun 8/10 kl. 20:00 6. sýn Sun 15/10 kl. 20:00 8. sýn
Fös 29/9 kl. 20:00 4. sýn Þri 10/10 kl. 20:00 aukas. Fös 20/10 kl. 20:00 9. sýn
Fös 6/10 kl. 20:00 5. sýn Fös 13/10 kl. 20:00 7. sýn Sun 22/10 kl. 20:00 10. sýn
Fjölskyldukeppni í meðvirkni!
Brot úr hjónabandi (Litli salur)
Fös 10/11 kl. 20:00 1. sýn Lau 18/11 kl. 20:00 5. sýn Fös 24/11 kl. 20:00 9. sýn
Lau 11/11 kl. 20:00 2. sýn Sun 19/11 kl. 20:00 6. sýn Mið 29/11 kl. 20:00 10. sýn
Sun 12/11 kl. 20:00 3. sýn Mið 22/11 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/11 kl. 20:00 11. sýn
Mið 15/11 kl. 20:00 4. sýn Fim 23/11 kl. 20:00 8. sýn Fös 1/12 kl. 20:00 12. sýn
Draumur um eilífa ást.
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 29/10 kl. 13:00 48. sýn Sun 5/11 kl. 13:00 49. sýn Sun 12/11 kl. 13:00 50. sýn
Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 24/9 kl. 13:00 Sun 15/10 kl. 13:00 Sun 29/10 kl. 13:00
Sun 8/10 kl. 13:00 Sun 22/10 kl. 13:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Sun 24/9 kl. 19:30 9.sýning Sun 1/10 kl. 20:00
Lokasýning
ATHUGIÐ SNARPUR SÝNINGARTÍMI. SÝNINGUM LÝKUR Í OKTOBER.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Sun 24/9 kl. 19:30 Sun 8/10 kl. 19:30 Sun 22/10 kl. 19:30
Lokasýning
Fös 29/9 kl. 19:30 Sun 15/10 kl. 19:30
Sun 1/10 kl. 19:30 Fim 19/10 kl. 19:30
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Eniga Meninga (Stóra sviðið)
Lau 28/10 kl. 13:00
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fös 20/10 kl. 19:30
Frumsýning
Fös 27/10 kl. 19:30 3.sýning
Fim 26/10 kl. 19:30 2.sýning Fös 3/11 kl. 19:30 4.sýning
Óvinur fólksins (Stóra sviðið)
Lau 23/9 kl. 19:30 2.sýning Fim 28/9 kl. 19:30 3.sýning Lau 30/9 kl. 19:30 4.sýning
Faðirinn (Kassinn)
Lau 7/10 kl. 19:30
Frumsýning
Fös 20/10 kl. 19:30
4.sýning
Sun 29/10 kl. 19:30
7.sýning
Fim 12/10 kl. 19:30
2.sýning
Lau 21/10 kl. 19:30
5.sýning
Fös 3/11 kl. 19:30 8.sýning
Fös 13/10 kl. 19:30
3.sýning
Fös 27/10 kl. 19:30
6.sýning
Smán (Kúlan)
Lau 23/9 kl. 19:30 5.sýning Lau 30/9 kl. 19:30 6.sýning
Fim 28/9 kl. 19:30
Aukasýning
Fös 6/10 kl. 20:00 7.sýning
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 4/10 kl. 20:00 Mið 18/10 kl. 20:00
Mið 11/10 kl. 20:00 Mið 25/10 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Hafið (Stóra sviðið)
Þri 26/12 kl. 19:30
Frumsýning
Fös 29/12 kl. 19:30 2.sýning Fim 4/1 kl. 0:30 3.sýning
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 14/10 kl. 13:00 Lau 21/10 kl. 15:00 Lau 4/11 kl. 13:00
Lau 14/10 kl. 15:00 Lau 28/10 kl. 13:00 Lau 4/11 kl. 15:00
Lau 21/10 kl. 13:00 Lau 28/10 kl. 15:00
Brúðusýning
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS