Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 46

Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017 FÖGNUM SAMAN 100 ÁRA FULLVELDI Boðið verður upp á leiðsögn um sýningu á verk- um Jóhannesar S. Kjarvals á Kjarvalsstöðum á morgun kl. 14. Um leiðsögnina sjá Ólöf K. Sig- urðardóttir, safnstjóri Lista- safns Reykjavík- ur og sýningarstjóri sýningarinnar, og Edda Halldórsdóttur, verkefna- stjóri skráningar hjá safninu. Á sýningunni eru mörg lykilverk frá ferli listamannsins en sjónum verð- ur einkum beint að verkum sem listaverkasafnarar hafa fært safn- inu að gjöf. Leiðsögn um Kjarval – lykilverk Ólöf K. Sigurðardóttir Rappararnir JóiPé og Króli hafa bæst í hóp þeirra sem hita munu upp fyrir bandaríska rapparann Future á tónleikum hans í Laug- ardalshöll 8. október nk. en hinir eru Aron Can og Emmsjé Gauti. JóiPé og Króli eiga eitt vinsælasta lag landsins um þessar mundir, „B.O.B.A.“, af plötu þeirra Gervi- glingur. JóiPé og Króli hita upp fyrir Future Vinsælir Rappararnir JóiPé og Króli. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Fyrstu tónleikar Kammermúsík- klúbbsins á nýju starfsári verða í Norðurljósum Hörpu á morgun kl. 17. Á efnisskránni eru aðeins verk eftir Robert Schumann, þ.e. fiðlu- sónata nr. 1 í a-moll op. 105, píanó- tríó nr. 1 í d-moll op. 63 og píanó- kvartett í Es-dúr op. 47. Á tónleik- unum fær Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari til liðs við sig Sigurð Bjarka Gunnarsson sellóleikara, finnska píanistann Roope Gröndahl og Sigurbjörn Bernharðsson fiðlu- leikara. „Sigurbjörn er fyrrverandi fiðlu- kennarinn minn, en ég lærði hjá honum úti í Bandaríkjunum 2004-5,“ segir Ari Þór og bendir á að Sig- urbjörn hafi um langt árabil leikið með hinum heimsþekkta Pacifica- strengjakvartett. „Hann er nýhætt- ur með kvartettnum og tók nýverið við prófessorsstöðu hjá Oberlin Conservatory. Þess vegna var hann laus til að koma hingað í fimm daga.“ Aðspurður segir Ari Þór þá Sigurbjörn aldrei hafa komið fram á tónleikum saman áður, en gaman sé að fara frá því að vera nemandi og kennari yfir í að vera starfsfélagar. „Okkur langaði til að spila eitthvað saman, en vildum ekki spila kvartett með tveimur fiðlum sem er sama skipan og hjá Pacifica-strengja- kvartettinum. Hann langaði að prófa eitthvað nýtt og mun því spila á víólu í píanókvartettnum ásamt því að leika fiðlupartinn í píanó- tríóinu, en ég leik fiðlusónötuna,“ segir Ari Þór og bendir á að sónatan sé síðasta kammerverkið sem Schu- mann samdi, þá ríflega fertugur. Sem kunnugt er sótti sinnisveiki að tónskáldinu eftir fertugt og síð- ustu tvö árin dvaldi hann á geð- veikrahæli að eigin ósk. „Í þessari sónötu heyrir maður glögglega að hann hoppar snögglega milli ólíkra stemninga, hvort sem veikindunum er um að kenna eða ekki,“ segir Ari Þór og viðurkennir að sér hafi lengi vel ekki þótt sónatan skemmtileg. „Sem helgast sennilega af því að ég hafði ekki heyrt góðan flutning á henni. En þegar ég fór að sökkva mér ofan í verkið sá ég það með al- veg nýjum augum, því það er gott.“ Mikilvægt að koma heim Ari Þór hefur búið í Helsinki síð- ustu þrjú ár þar sem hann starfar sem leiðari 2. fiðlu hjá Fílharmóníu- sveitinni í Helsinki í Finnlandi. „Mér líður mjög vel í Helsinki, enda í draumastarfi. Mér finnst hins veg- ar mikilvægt að koma reglulega heim og halda hér tónleika,“ segir Ari Þór, sem kemur reglulega heim til að kenna. „Ég kenndi mjög mikið áður en ég fór út og hef haldið sam- bandi við sjö nemendur, sem eru hjá öðrum kennurum í dag, en koma til mín í einkatíma.“ Aðspurður segir hann ganga hægt að læra finnsk- una, en það komi þó. „Við erum bara sjö útlendingar í 100 manna hljómsveit og því er vinnumálið nær undantekningarlaust finnska. Auk þess búa Finnar yfir mörgum góð- um stjórnendum, þannig að um 50% stjórnenda eru heimamenn.“ Sér verkið með nýjum augum  Verk eftir Robert Schumann hljóma á fyrstu tónleikum Kammermúsík- klúbbsins þetta starfsárið  Leikið í Norðurljósum Hörpu á morgun kl. 17 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kvartett Ari Þór Vilhjálmsson, Roope Gröndahl, Sigurbjörn Bernharðsson og Sigurður Bjarki Gunnarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.