Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 47

Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017 Verkefnum á dagskrá afmælisársins er ætlað að hafa skírskotun til sjálfstæðis og fullveldis Íslands eða byggja á fullveldishugtakinu í fortíð, nútíð eða framtíð. Kallað er eftir fjölbreyttum og vönduðum verkefnum þar sem meðal annars er lögð áhersla á samstarfsverkefni og verkefni með nýstárlega nálgun á viðfangsefnið. Styrkir til valinna verkefna geta numið allt að 3 milljónum króna en þó ekki meira en 50% af heildarkostnaði. Verkefnin skulu fara fram á tímabilinu janúar–desember 2018. Á vefsíðu afmælisársins www.fullveldi1918.is er að finna ítarlegar verkefnaáherslur, viðmið við mat á verkefnum og nánari upplýsingar um umsóknarferlið. Skila skal inn tillögum að verkefnum fyrir kl. 16, 22. október 2017. Ert þúmeð hugmynd að vönduðu verkefni á dagskrá afmælisársins? www.fullveldi1918.is Árið 2018 eru 100 ár liðin frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki. Aldarafmælisins verður minnst allt árið með fjölbreyttri og vandaðri dagskrá, um land allt. Því er nú leitað til landsmanna við mótun dagskrár afmælisársins. P ipar\TBW A \ SÍA Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sýning á verkum Sigurðar Guð- mundssonar verður opnuð í dag kl. 13.30 í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni 19 og hefst opnunin með fyrirlestri Gunnars J. Árnasonar listheimspekings um verk þessa ástsæla myndlist- armanns. Á sýningunni má sjá valin verk eftir Sig- urð, allt frá fyrstu sýningu hans árið 1968-9 til nýrra verka, m.a. ljósmynda- verk, skúlptúra, grafík- og texta- verk. Um aldar- fjórðungur er liðinn frá því ferils- sýning var síðast haldin á verkum Sigurðar og eru verkin í Arion banka til sýnis á nokkrum hæðum hússins. Sigurður kom fram á sjón- arsviðið á sjöunda áratugnum sem einn af stofnendum SÚM, Sam- bands ungra myndlistarmanna, og hefur upp frá því sinnt listsköpun víða um heim en lengst af í Hol- landi og Kína en hann stundaði myndlistarnám í Hollandi. Sigurður er með þekktustu og virtustu myndlistarmönnum þjóð- arinnar og segir í tilkynningu frá Arion að verk hans séu marg- slungin og marglaga og spyrji gjarnan tilvistarlegra spurninga en um leið sé leikgleðin áberandi. „Sigurður er ávallt leitandi og hættir aldrei að koma á óvart, hvort sem er í efnistökum eða út- færslu, en þó má greina sterk leið- arstef í gegnum allan hans feril,“ segir þar. Miklar og óvæntar vendingar „Sigurður er að mörgu leyti ein- stakur listamaður, ekki aðeins fyr- ir þá heillandi sýn sem hann hefur skapað á hálfrar aldar ferli heldur einnig fyrir þær miklu og óvæntu vendingar sem hafa orðið á ferl- inum. Það er ekki auðhlaupið að því að ná utan um allar þær ólíku hliðar sem er að finna á listsköpun hans,“ segir Gunnar J. Árnason um listamanninn. „Sigurður er vafalaust þekkt- astur fyrir ljósmyndaverkin frá áttunda áratug síðustu aldar, sem eru orðin nokkurs konar einkenn- isverk fyrir áttunda áratuginn í evrópskri listasögu. Ég held að flestir Íslendingar kannist við ein- hver þeirra og þau höfða ennþá mjög sterkt til fólks. Margar eru teknar við ströndina í Hollandi eða í eyðilegu landslagi þar sem Sigurður er í einhverju hlutverki sjálfur. En hann leit ekki á þessi verk sem ljósmyndir og hann hafði engan sérstakan áhuga á ljós- myndun. Hann lýsir þeim ýmist sem skúlptúrum eða ljóðum. En þessu tímabili í ferli Sigurðar lauk skyndilega árið 1981 þegar hann sneri við blaðinu, hætti að gera ljósmyndaverk og sneri sér að þrí- víðum verkum og grafík. Miðað við þann léttleika og glens sem einkenndi ljósmyndaverkin þá var meiri þungi og alvara í verkum frá þessu tímabili,“ segir Gunnar. Heimspekilegur tónn Hann segir önnur vatnaskil hafa orðið á ferli Sigurðar þegar hann gaf út sína fystu bók, Tabula rasa, árið 1993. Fáeinum árum síðar hafi hann flutt ásamt konu sinni til borgarinnar Xiamen á suðaust- urströnd Kína. „Allar götur síðan hefur list hans einkennst af mikilli fjölbreytni og það liggja eftir hann ýmis verk á almannafæri hér á Ís- landi, eins og fáguðu steinarnir í sjóvarnargarðinum við Sæbrautina í Reykjavík og steineggin við Djúpavog,“ segir Gunnar. „Mér hefur sýnst að þrátt fyrir alla fjölbreytnina þá finnur maður fyrir heimspekilegum tóni sem stafar af verkum hans. Sigurður hefur ávallt verið mjög upptekinn af hinu skapandi ferli og því hlut- verki sem það gegnir, bæði fyrir listamanninn sjálfan og þá sem komast í snertingu við listaverkið. Í öllum fjórum bókunum og ekki síst í þeirri síðustu, Musa: kvöld, er þetta honum mjög hugleikið. Hann lýsir verkum sínum gjarn- an sem ljóðum en fyrir honum eru ljóð uppspretta nýrrar merkingar, sem koma til okkar handan þess skiljanlega. Einn gjörningur Sig- urðar heitir „Hver maður er ljóð“. En ég skil hann sem svo að maður er ljóð í þeim skilningi að það sem gerir okkur mennsk er einmitt að geta gætt líf okkar merkingu sem á sér engan annan uppruna en í okkur sjálfum. Þær miklu og óvæntu vendingar sem við sjáum í listferli Sigurðar eru einmitt til marks um þrotlausa leit hans að þessum upphafsreit þar sem nýr veruleiki verður til úr engu, ef svo má að orði komast,“ segir Gunnar. Sýningin verður opin til kl. 16 í dag og eftir það á virkum dögum kl. 10-16. Henni lýkur 29. desem- ber. Upptekinn af hinu skapandi ferli  Valin verk eftir Sigurð Guðmunds- son, allt frá upphafi ferils hans, á sýn- ingu í höfuðstöðvum Arion banka Ljóðrænt „Untitled Seascape“ heitir þetta verk eftir Sigurð frá árinu 2011. Sigurður á ónefndri strönd með harmonikku í eftirdragi. Birt með leyfi listamanns og i8 gallerís Extension Verk frá árinu 1974. Gunnar J. Árnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.