Feykir - 23.11.2016, Side 8
2 01 68
„Það er í rauninni bara allt,“ segir
Binný, aðspurð um hvað sé í tísku fyrir
þessi jól. „Þegar ég fór í heildsölurnar
var ekkert afgerandi. Sjálf er ég þannig
jólabarn að ég vil helst gyllt og rautt.
Við höfum alltaf miðað við að jóla-
vörurnar séu komnar upp rétt fyrir
feðradaginn,“ segir hún aðspurð um
uppáhaldsjólaskrautið og hvenær hún
byrji að setja upp jólavörurnar.
Binný hefur rekið búðina í tæp tíu
ár. „Ég er mikið jólabarn og Hrafn-
hildur líka,“ segir hún, en Hrafnhildur
Skaptadóttir hefur lengi unnið í búð-
inni hjá henni. „Við erum löngu
farnar að spila jólalögin á bak við en
þau fá ekki að hljóma fram í búð fyrr
en á aðventunni.“
Binný segist ævinlega skipuleggja
sig vel fyrir jólin. „Ég er löngu búin
að baka piparkökurnar sem verður
boðið upp á hér í búðinni á aðvent-
unni. Hrafnhildur er búin að pakka
inn jólagjöfunum og ég er búin að
ákveða allar gjafirnar.“ Að lokum
ráðleggur hún fólki að láta jólastressið
ekki ná tökum á sér, en njóta frekar
aðventunnar.
„Unga fólkið vill
einfaldar skreytingar“
UMFJÖLLUN
Kristín S. Einarsdóttir
Binný í Blómabúðinni sýnir lesendum
það vinsælasta í skrauti og gjafavöru
Tískustraumar hafa fylgt mannkyninu frá örófi
alda og eru jólin engin undantekning þar á. Fyrir
hver jól senda mörg fyrirtæki sem framleiða
hönnunarvarning og gjafavöru frá sér nýja línu og margir safnarar og
fagurkerar bíða spenntir eftir þeim. Feyki lék forvitni á að vita hvað væri
vinsælast í skreytingum og gjafavöru fyrir þessi jól. Því brá blaðamaður
sér í heimsókn í Blóma- og gjafabúðina á Sauðárkróki og spurði
Brynhildi Sigtryggsdóttur, Binný, út í það.
Hekla
Gráa línan frá Heklu er ný
fyrir þessi jól og það er
sérlega mjúkt og gott efni
í textílvörunum í þeirri
línu. Í þessari línu eru
eldspýtustokkur, kerti,
servíettur, gjafapoki og
ofnhanski, svunta og löber.
Sveinbjörg
Línan frá Sveinbjörgu
er nýkomin í Blóma-
og gjafabúðina. Þar er
meðal annars jólalöber,
viskustykki, svunta og löber
með Krummamyndum,
könnur, teppi og handklæði
sem Binný segir að séu
mjög vinsæl gjafavara.
Íslenskur
jólasveinn
Binný segir íslensku
jólasveinana alltaf vera
sígilda. Sniðugt sé að gefa
einn á ári og merkja við
hvaða jólasveina er búið að
gefa.
Laufabrauðs-
járn
Laufabrauðsjárnin eru
framleidd á Kjalarnesi og
eru íslenskt handverk.
Þau er afar vönduð og geta
enst alla ævi ef vel er farið
með þau.
Strumpalínan
Strumpalínan hefur verið
mjög vinsæl og segir Binný
að múmínálfarnir, dvergarnir
sjö og strumparnir séu
fyrir alla aldurshópa, þó að
um sé að ræða persónur
úr barnabókum og
teiknimyndum.
Jólakallar
Þessir skemmtilegu
jólakallar eru sænskir og
koma í nýrri útgáfu á
hverju ári.
Georg Jensen
„Georg Jensen vörurnar eru
mitt uppáhald. Þetta eru mjög
vandaðar vörur,“ segir Binný.
Púðar
Púðarnir frá Lagði eru
framleiddir á Hólabaki í Austur-
Húnavatnssýslu og njóta mikilla
vinsælda.
1
Aðventukransar
Binný segir að gömlu
aðventukransarnir með
greninu séu hverfandi. Unga
fólkið vilji eitthvað einfalt og
fljótlegt, sem ekki er mikil
eldhætta af. Margir nota
bakka og ýmiskonar kerti og
kertastjaka og kaupa jafnvel
tölustafi til að festa á kertin.
Þessi krans er finnskur, úr
trjágreinum.