Feykir


Feykir - 23.11.2016, Blaðsíða 14

Feykir - 23.11.2016, Blaðsíða 14
2 01 61 4 HEILBRIGÐISSTOFNUN NORÐURLANDS www.hsn.is Undirritaður kynntist Pawel lítillega í gegnum lítið verkefni og dáðist að því hve vel honum hafði tekist að ná valdi á tungumálinu enda er hann oft fenginn til að túlka fyrir samlanda sína í heimabænum. Forvitnin rak blaðamann til að hafa samband og spyrja hann út í Íslandsdvölina og ekki síður hvernig jólahefðir þjóðanna tveggja skarast. Pawel, er eins og áður segir, frá Póllandi og bjó fyrstu átta árin í sveitinni, hjá afa sínum og ömmu en þar segist hann m.a. hafa lært að keyra dráttavélar. Þaðan flutti fjölskyldan til Białystok, stærstu borgar í norðausturhluta Póllands sem jafnframt er höfuðborg Podlaskie Voivodeship héraðsins. Þar lauk hann grunnskólagöngu sinni og útskrifaðist Blönduós er góður staður VIÐTAL Páll Friðriksson Viðtal við Pawel Mickiewicz Á Blönduósi býr Pawel Mickiewicz, 35 ára gamall Pólverji ásamt konu sinni Kasia og tveimur sonum, Kacper 6 ára og Wojtek 11 mánaða. Þann 13. septem- ber árið 2002 kom hann til Íslands, á Blönduós og átti dvölin einungis að standa yfir í þrjá mánuði mánuði en reyndin er að árin eru orðin fjórtán. Lukkuleg fjölskylda á Blönduósi. Kasia og Pawel með bræðurna Kacper og Wojtek. síðar úr framhaldskóla. Það var svo árið 2002 sem fjölskyldan hélt á framandi slóðir, til lands elds og ísa, til að vinna í sláturhúsinu á Blönduósi og átti dvölin að standa stutt yfir eins og áður sagði. En dvölin hefur ekki tekið enda. „Mér fannst strax Ísland mjög fallegt land og Blönduós góður staður til að búa á. Það hefur ekki breyst enn,“ segir Pawel. „Mér finnst gaman að læra tungumál og þess vegna byrjaði ég strax að læra íslenskuna en það kanilpiparKÖKUR Uppskriftina að kanilpiparkökunum góðu sem Pawel minnist á fengum við að birta og kemur hún hér: 600 g hveiti 300 g hunang 100 g púðursykur 150 g brætt smjör 1 egg 1.5 tsk. matarsódi 40 g piparkökukrydd 1 tsk. kanill Allt sett í skál og hrært saman í hrærivél, bakað við 180 gráður í ofni í u.þ.b. 10 mínútur. Verði ykkur að góðu. Uppáhaldið hjá Pawel var svolítið erfitt í fyrstu. Ég gat ekki sagt Gleðileg jól fyrst í stað.“ Pawel segir að það hafi ekki verið erfitt að aðlagast lífinu á Blönduósi því allir voru boðnir og búnir til að hjálpa þeim. Líkar jólahefðir Jólin í Póllandi eru mjög hátíðleg og undirbúningur tekur marga daga en Pawel segir að sú vinna borgi sig. „Lifandi jólatré, sérstakur matur sem við borðum bara um jólin og lyktin af nýbökuðum kanilpiparkökum gerir þennan tíma ógleymanlegan. Jólin á Íslandi eru mjög lík þeim í Póllandi. Við reynum að safnast sem flest saman og syngjum jólalög sem fjalla um fæðingu Jesú Krist. Borðum kvöldmat sem á að innihalda tólf tegundir af mismunandi réttum til að minnast postulanna tólf. Á aðfangadag, 24. des., borðum við ekki kjöt allan daginn. Þá er fiskur aðalrétturinn. Við borðum líka hvítkál með sveppum, síld í allskonar formi, rauðrófusúpu og fleira sem einungis er útbúið um jólin. Á borðinu er alltaf einn auka diskur fyrir gesti sem gætu komið í heimsókn. En mikilvægast er að við tökum brauð, svipað og laufabrauð sem heitir obláta, deilum milli allra og förum með bænir. Afi gamli var vanur að segja: „Svo við getum hist aftur á næsta ári, ef Guð lofar,“ segir Pawel í lokin og óskar öllum gleðilegra jóla. Jólaskraut sem sýnir fæðingu Jesú. Mynd frá Póllandi en þar er jólasveinn sem alltaf kemur með jólagjafirnar. Dæmigert pólskt jólahlaðborð Jólin á Íslandi. Við endann situr bróðir Pawels og foreldrar hans hægra megin.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.