Feykir


Feykir - 23.11.2016, Qupperneq 17

Feykir - 23.11.2016, Qupperneq 17
1 72 01 6 skipuleggja allt vel og hafa gott aðstoðar- fólk. Þetta er líklega ellefti aupair-inn sem er hjá okkur núna,“ bætir Tóti við og vísar þar til Þjóðverjans Paul Grigo sem hefur dvalið hjá þeim síðan í haust. „Ég sagði við Siggu, þegar við vorum að taka saman, að þetta væri nú meiri vitleysan hjá okkur, hún prestur og ég hestamaður,“ segir hann. „Það er oft mikið álag hjá okkur báðum um helgar, mót og námskeiðahald lendir mikið á helgum og þá er Sigga líka upptekin.“ Prestsstarfið er annasamt, flestar messur um helgar og allflestar athafnir eru einnig um helgar. Í miðri viku er annarskonar safn- aðarstarf í gangi og þá er einnig verið að undirbúa helgarnar, sækja fundi, kenna fermingarbörnum, sinna barnastarfi og ýmsu sem til fellur. Þá fer tími í sálgæslu og viðtöl en Sigga segir þörfina fyrir slíkt mikla og að fólk leiti til sóknarprestsins með ýmis mál. „Þetta er eins manns vinnustaður, skrifstofa prestsins, og maður þarf að halda vel áfram, enda enginn annar sem gengur í störfin,“ segir Sigga. Hún tekur þó fram að það sé gott samstarfsfólk í kirkjunni, þeir Bald-vin Kristjánsson meðhjálp- ari og Rögnvaldur Val- bergsson organisti. Þá sé samstarf prestanna á svæðinu mjög gott. „Þess ber að geta að við eigum óskaplega marga góða að og heilmikið net á bak við okkur í fjölskyldunum. Þær eru nú betri en engar, ömmurnar og allir hinir sem eru í kringum okkur. Börnin eru oft send í sveit um helgar,“ segir Sigga og Hjördís Halla, sem hefur dundað sér skammt frá og sungið meðan viðtalið er tekið, tekur undir það. Bræður Siggu, þeir Einar, Árni og Kári Gunnarssynir, búa allir í Skagafirði. Foreldrar hennar, þau Gunnar Oddson og Helga Árnadóttir, búa í Flatatungu. Þá býr Heiðrún, systir Tóta í Saurbæ, en Hallgrímur bróðir hans og hálfsystir hans, Ástríður, í Reykjavík. Faðir hans, Eymundur Þórarinsson, býr á Sauðárkróki og einnig móðir hans, Sigríður Halldóra Sveinsdóttir. „Við lærðum fljótt að það þýðir ekkert fyrir okkur að missa okkur í smáatriðum hér og þar, þá værum við ekki hér,“ segir Tóti. Þau vitna í ömmu Siggu sem sagði einhvern tímann að það eina sem hún sæi eftir í lífinu væri allur tíminn sem fór í að þrífa. „Þetta snýst líka um hver eru aðalatriðin og hvað eru svo aukaatriði. Við teljum okkar orðin býsna góð í að sortera það úr og förum ekki á taugum hátíðleg og góð, og þau fara ekki inn í skáp,“ bætir Sigga við. Þá er svo ótrúlegur friður yfir bænum Á Þorláksmessu er saltfiskur á borðum í Barmahlíðinni, en skatan fellur ekki í kramið hjá húsráðendum. Á aðfangadag er svo borðað í áföngum og ber þar fyrst að nefna möndlugraut í hádeginu. „Um kvöldið er borðaður forréttur og síðan farið í messu. Þá getum við gert aðalréttinum skil í rólegheitum eftir aftansönginn, sem er klukkan sex. Börnin eru reyndar orðin verulega langeygð eftir pökkunum þegar kemur að því. Svo fer ég aftur út og messa undir miðnætti. Þá er svo ótrúlegur friður yfir bænum,“ segir Sigga. Hún segir messusókn yfirleitt góða og alltaf svipaða frá ári til árs, en veðrið skiptir þar mestu máli. Jólamaturinn er í nokkuð föstum skorð- um, þó forrétturinn sé reyndar breytilegur. Aðalrétturinn á aðfanga- dag er léttreyktur lamba- hamborgarhryggur, bor- inn fram með jólasalati, laufabrauði, malti og appelsíni og tilheyrandi. „Svo kemur jóla- dagur og þá fer ég með börnin í jólaboð. Um kvöldmatarleytið kem ég svo heim og hitti þreyttu konuna mína,“ segir hún. „Okkur finnst líka mjög gaman að ferðast og reynum að gera það þegar tækifæri gefast,“ segja þau, en þegar viðtalið er tekið eru þau nýlega komin frá Róm, ásamt syninum. Þar var margt skoðað, enda er Eymundur afar áhugasamur um ítalska menningu og sögu. „Hann pískaði okkur foreldrunum út á listasöfnum,“ segir Sigga og glottir. Þau hjónin segja mjög ánægjulegt að hafa fengið tækifæri til flytja aftur í Skagfjörð. Það er oft líf og fjör á heimilinu, eins og nærri má geta þar sem eru þrjú börn og báðir foreldrar vinna óreglulegan vinnutíma. „Það er dálítil „óregla“ á heimilinu en við reyn- um nú að hafa reglu í óreglunni. Þetta er oft heilmikið púsluspil,“ segir hún. „Það þarf að þó það sé ekki allt í röð og reglu á heimilinu,“ segja þau. Sigga segir desember afar annasaman mánuð. „Það er allt að gerast í desember, meðal annars ýmsir jólafundir og mikið um að vera í skólunum. Þá verður Tóti eins og ofvirk húsmóðir,“ segir hún og hlær. Tóti segist þó lítið koma að bakstri en hann reynir að halda aðalatriðunum gangandi meðan hún er í vinnunni. „Þegar ég var að byrja í starfinu voru nokkrar eldri konur sem vorkenndu mér óskaplega og færðu okkur smákökur og lagkökur en það hefur nú heldur dregið úr því,“ segir Sigga og enn er stutt í hláturinn. Tóti segist halda þeirri jólahefð að fara með börnin í skóginn á Hólum til að höggva jólatré. „Jólin eru í hjartanu og verða Feðgarnir á góðri stundu. Móðir Tóta, hægra megin við Siggu, úti að borða ásamt tengdabörnum og afkomendum. Í Flórída 2015. Með fjölskyldunni er (lengst til vinstri) Davíð Einarsson, bróðursonur Siggu. MYNDIR: ÚR EINKASAFNI Systkinin bregða á leik. Hjördís Halla, Þórgunnur og Eymundur Ás. Sigga ásamt stöllum sínum, Döllu og Höllu. Tóti og Þóra frá Prestbæ á Landsmóti 2011. MYND: JÓN BJÖRNSSON Frá vinstri: Sigríður Gunnarsdóttir amma Siggu, Sigríður A. Pálmadóttir, Ásta Sigríður Knútsdóttir og Sigga. Tóti á yngri árum.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.