Feykir


Feykir - 18.04.2013, Side 17

Feykir - 18.04.2013, Side 17
15/2013 Feykir 17 þegar fram líða stundir. Á Alþingi Róberts fara fram alvöru þingfundir þar sem hann talar fyrir þingmennina og stundum er tekist á. Fara þeir oftast fram samfara þeim á Austurvelli. Nú er þinghlé á báðum stöðum. Róbert sýnir blaðamanni margar blaðsíður sem hann hefur skrifað þar sem þingfundir eru skráðir. Á borðinu liggur líka lítil bók, Þingsköp Alþingis, sem geymir mikinn fróðleik fyrir þingmenn. –Þetta eru reglur um ræðutíma og ýmis störf á Alþingi, segir Róbert sem þekkir þær flestar og eiga eflaust eftir að koma að góðum notum í framtíðinni. En þrátt fyrir brennandi áhuga á pólitíkinni er ýmislegt annað sem Róbert fæst við. –Ég er líka oft með vinum mínum, leik mér í tölvunni og er í tónlistarskólanum. Þar læri ég á píanó hjá Jóhönnu Marín og svo syng ég í skólakórnum hjá Írisi, segir Róbert en ekki er allt upptalið því einnig stundar hann söngnám hjá Helgu Rós Indriðadóttur og tekur þátt í uppfærslu Leikfélags Sauðárkróks á Tifar tímans hjól sem sýnt er í Sæluviku. Sannarlega hæfileikaríkur strákur hér á ferð og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni. Á Sauðárkróki býr ungur drengur sem á sér sérstakt áhugamál, sé tekið tillit til ungs aldurs. Hann heitir Róbert Smári Gunnarsson og er þrettán ára gamall, í 7. bekk Árskóla, en áhugamálið er þingmennska og þingstörf almennt. Á skrifborðinu í herbergi sínu hefur hann staðsett líkan af Alþingi og raðað upp playmo - köllum sem sitja þingið. Allir bera þeir nöfn þeirra sem sátu nýliðið Alþingi og þekkir Róbert þá alla með nöfnum. Á forsíðu Feykis í dag er mynd af Alþingi Róberts og forvitnaðist Feykir lítillega um tilurð þess og áhuga þessa unga manns á þingstörfunum. Róbert er sonur þeirra Elvu Björk Guðmundsdóttur og Gunnars Baga Sveinssonar og segir hann að þetta hafi byrjaði þegar pabbi hans fór á þing árið 2009 en áhugann fékk hann fyrir alvöru árið 2010. –Ég byrjaði að raða köllunum upp og síðan þróaðist þetta meira og á endanum bjó ég til líkan til að gera þetta raunverulegt, segir Róbert og áhuginn leynir sér ekki í andliti hans. Hann þekkir alla þingmennina 63 með nöfnum og segist hafa gaman af því að fylgjast með störfum Alþingis og hlustar og horfir á þau í sjónvarpinu. Líklega, segir hann, að áhugann megi rekja til þess að pabbi hans er þingmaður og sjálfur stefnir hann á þingmennsku Róbert Smári Gunnarsson Ætlar að verða þingmaður VIÐTAL Páll Friðriksson Á borðinu má sjá sérsmíðaða þingbjöllu sem er ómissandi við þingfundi og Þingsköp Alþingis er einnig innan seilingar. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra Margverðlaunaður gestakennari Kvikmyndatökustjórinn Bergsteinn Björgúlfsson var gestakennari hjá kvikmyndagerðanemum við FNV sl. föstudag. Kennslan fór fram allan daginn og var eins konar „krasskúrs“, eins og Bergsteinn orðaði það. Nemarnir drukku í sig alla þá þekkingu sem hann hafði fram að færa og voru alsælir með kennsluna. Bergsteinn er einn færasti kvikmyndatökustjóri landsins en í starfi hans felst að vera yfirmaður allra sem vinna að myndatökum, lýsingu og þess háttar. Í samvinnu við leikstjóra stjórnar hann augum áhorfandans, velur hvert hann lítur, hvernig, hvenær og hversu mikið hann sér og skapar jafnframt umgjörð og stemningu í öllu því sem áhorfandinn sér. Bergsteinn hefur fengið sex Edduverðlaun fyrir störf sín en þær myndir sem hann hefur unnið að eru m.a. Mýrin, Djúpið, Reykjavík-Rotterdam, Svartur á leik, Hross og mörgum fleirum. Í næsta mánuði útskrifast fyrsti hópurinn í kvikmyndagerð við FNV en nemendur deildarinnar koma víðs- vegar af landinu og má þar nefna úr Skagafirði, Húnavatnssýslum, Akur- eyri og frá höfuðborgarsvæðinu. /BÞ Bergsteinn og Árni Gunnarsson ásamt áhugasömum kvikmyndagerðarnemum.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.