Fréttablaðið - 17.05.2018, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 1 5 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 1 7 . M a Í 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
skoðun Sigurður Hannesson
skrifar um fjárfestingu í líf- og
heilbrigðistækni 16
sport Bjarki Már Elísson og
Berlínarrefirnir hafa í nógu að
snúast þessa dagana. 22
lÍFið Don Johnson vildi of margar
milljónir fyrir að koma. 40
plús sérblað l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
heia norge!
tilboðsdagar 14 – 27 maí
allt að 75%
afsláttur
saMFélag Nokkur tilvik ofbeldis-
hótana grunnskólabarna hafa komið
upp á höfuðborgarsvæðinu á undan-
förnum vikum. Í síðustu viku tók lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu meinta
skotárásarhótun barns í Salaskóla í
Kópavogi til rannsóknar og mun
það vera þriðja ofbeldishótun gagn-
vart nemendum grunnskóla á höfuð-
borgarsvæðinu á nokkrum vikum
en samkvæmt öruggum heimildum
Fréttablaðsins munu tilvikin vera
allnokkur á undanförnum tveimur
mánuðum.
Lögreglan hefur ekki viljað tjá sig
um þessi tilvik og heimildir Frétta-
blaðsins herma að ótti við hermiáhrif
ráði því að ekki hafi verið tilkynnt
um tilvikin opinberlega utan þessa
eina tilviks sem tilkynnt var um í síð-
ustu viku. Heimildir blaðsins herma
að umræddar hótanir í hafi verið
settar fram á samfélagsmiðlum en
séu misalvarlegar.
Í þeirri tilkynningu segir að rann-
sókn lögreglu hafi verið unnin í sam-
starfi við foreldra viðkomandi barns,
barnaverndaryfirvöld og skólastjórn-
endur viðkomandi skóla. Málið sé í
farvegi hjá barnaverndaryfirvöldum.
„Það er full ástæða til að taka
svona hótanir alvarlega,“ segir Helgi
Gunnlaugsson, prófessor í félags-
fræði. Hann segir hermiáhrifin
þekkt fyrirbrigði sem dregið hafi
verið fram í rannsóknum erlendis.
Börn séu viðkvæmur hópur og
áhrifagjarnari en aðrir. Þá geri
greitt aðgengi að samfélagsmiðlum
einnig að verkum að mjög auðvelt
sé að varpa alvarlegum hótunum
fram.
Helgi segir að þótt ekki sé endi-
lega gott að þagga umræðu um mál
af þessum toga niður sé mikilvægt
að fara varlega í opinberri umræðu
um þessi mál bæði vegna hermi-
áhrifanna og til að forðast uppnám
meðal nemenda, foreldra og starfs-
fólks skóla. – aá
Þriðja ofbeldishótunin
á undanförnum vikum
Nokkrar hótanir grunnskólabarna um ofbeldi í garð samnemenda sinna hafa
komið upp á nokkrum vikum. Lögregla verst allra frétta til að forðast hermi-
áhrif. Full ástæða til að taka hótanir alvarlega segir prófessor í félagsfræði.
Það er full ástæða
til að taka svona
hótanir alvarlega.
Helgi Gunnlaugsson,
sérfræðingur í
afbrotafræðum
heilbrigðisMál Tuttugu þúsund
manns höfðu skráð sig á vefinn arf-
gerd.is um klukkan fimm í gær og
óskað eftir upplýsingum um það
hvort þeir eru með svokallað BRCA2
gen og 999del5 erfðabreytu. Þóra
Kristín Ásgeirsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar,
sagði við Fréttablaðið í gærkvöldi að
hún byggist við því að sú tala myndi
hækka með kvöldinu.
Í aðsendri grein í Fréttablaðinu í
dag segist Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar, telja að
sú niðurstaða starfshóps heilbrigðis-
ráðherra að það væri lögbrot að hafa
samband við arfbera BrCA2 sé furðu-
leg túlkun og nýstárleg.
„Þegar manneskja
er í bráðri lífshættu
vörum við hana
við ef við getum og
reynum að forða
henni frá hættunni
án tillits til laga,“
segir Kári. – jhh
/ sjá síðu 18
Tuttugu þúsund
hafa skráð sig
Kári Stefáns-
son, for-
stjóri ÍE.
Stríð, sem er nýtt verk eftir Ragnar Kjartansson og Kjartan Sveinsson, var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í gær. Uppsetningin er samstarfsverkefni Þjóð-
leikhússins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þetta er í þriðja sinn sem þeir Ragnar og Kjartan vinna sviðsverk í sameiningu. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
1
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
C
D
-3
5
9
C
1
F
C
D
-3
4
6
0
1
F
C
D
-3
3
2
4
1
F
C
D
-3
1
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K