Fréttablaðið - 17.05.2018, Page 4
Ný ljóðabók
frá Kára Tulinius
Einnig fáanleg sem rafbók!
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–19 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Kjaramál Laun Ármanns Kr. Ólafs-
sonar, bæjastjóra Kópavogs, hækk-
uðu um 32,7 prósent milli áranna
2016 og 2017 eða sem nemur ríf-
lega 612 þúsund krónum á mánuði.
Ármann fékk alls tæpar 2,5 milljónir
á mánuði í fyrra fyrir bæjarstjóra-
starfið, setu í bæjarstjórn, nefndum
og bílastyrk. Laun fulltrúa í bæjar-
stjórn og bæjarráði Kópavogsbæjar
hækkuðu sömuleiðis um 30 prósent,
og námu alls tæpum 74 milljónum
króna í fyrra samanborið við 56,7
milljónir árið 2016.
Fréttablaðið óskaði eftir sundur-
liðun á launakostnaði stjórnenda
Kópavogsbæjar en Geir Þorsteins-
son, oddviti Miðflokksins í bænum,
gagnrýndi hækkanir og ógagnsæi í
framsetningu launaliðar ársreikn-
ings bæjarins í grein í Morgunblað-
inu á dögunum.
Þegar kjararáð hækkaði laun þing-
manna hraustlega í afar umdeildri
ákvörðun 1. nóvember 2016 hafði
það áhrif á sveitarstjórnarstigið, þar
sem víðast hvar fengu bæjarfulltrúar
greitt hlutfall af þingfararkaupi fyrir
setu í bæjarstjórnum.
Í Kópavogi, líkt og víðar, var tekin
ákvörðun um að frysta laun bæjar-
fulltrúa meðan endurskoðað væri
hvernig laun þeirra skyldu reiknuð.
Niðurstaða í þeirri vinnu fékkst
í febrúar 2017 og var ákveðið að
laun bæjarfulltrúa tækju mið af
þróun launavísitölu, grundvallað
á uppreiknaðri upphæð frá 2006.
Samkvæmt upplýsingum frá Kópa-
vogsbæ eru laun bæjarstjórans nú
einnig tengd þróun launavísitölu.
Bæjarstjórnendur í Kópavogi
fengu því ekki jafnmikla hækkun
og ef við ákvörðun kjararáðs um 44
prósent hefði verið unað, en tals-
verða þó og afturvirka frá 1. mars
2017 aftur til nóvember 2016. Það
gerði það að verkum að afturvirkar
greiðslur fyrir þessa tvo mánuði árið
2016 voru bókfærðar 2017 í ársreikn-
ingi og gáfu heildarupplýsingar um
greiðslur til kjörinna fulltrúa því ekki
rétta mynd. Í útreikningum á þeim
upplýsingum sem Fréttablaðið ósk-
aði eftir um launagreiðslur bæjar-
stjórnenda hefur verið leiðrétt fyrir
þessari skekkju.
Í svari Kópavogsbæjar kemur fram
að árslaun bæjarstjóra árið 2016,
að launatengdum gjöldum undan-
skildum og að viðbættum afturvirku
greiðslunum, hafi numið 22,4 millj-
ónum, eða sem nemur 1.867 þúsund
krónum á mánuði.
Árið 2017 námu árslaun bæjar-
stjóra, að launatengdum gjöldum
undanskildum og frádregnum aftur-
virku greiðslunum, 29,7 milljónum
króna, eða sem nemur 2.479 þúsund
krónum á mánuði. Inni í þessum
upphæðum eru sem fyrr segir laun
Ármanns sem bæjarstjóri og bæjar-
fulltrúi auk launa fyrir nefndarsetu
og bílastyrks frá bænum.
Laun bæjarfulltrúa og bæjarráðs-
fulltrúa árið 2016, að launatengdum
gjöldum undanskildum, námu 56,6
milljónum króna árið 2016 en voru
73,9 milljónir 2017. Er það um 30 pró-
senta hækkun. mikael@frettabladid.is
Mánaðarlaun bæjarstjórans
hækkuðu um 612 þúsund
Laun kjörinna fulltrúa Kópavogsbæjar hækkuðu umtalsvert á milli áranna 2016 og 2017 þrátt fyrir að þeir
hafi ekki þegið hækkun kjararáðs. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri fékk tæpar 2,5 milljónir í laun á mán-
uði í fyrra og laun bæjarstjórnar- og bæjarráðsfulltrúa hækkuðu um 30 prósent á milli ára.
Svona hækkuðu launin
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri
2016:
Árslaun: 22.411.897 kr.
Mánaðarlaun: 1.867.658 kr.
2017:
Árslaun: 29.756.501 kr.
Mánaðarlaun: 2.479.708 kr.
Hækkun: 32,7%
Bæjarstjórn/bæjarráð
2016: 56.673.056 kr.
2017: 73.944.424 kr.
Hækkun: 30%
persónuvernd Ábendingahnappur
á heimasíðu Tryggingastofnunar rík-
isins sem hægt er að nota til að senda
inn nafnlausar ábendingar um meint
brot einstaklinga samrýmist lögum
um persónuvernd og meðferð per-
sónuupplýsinga. Þetta er niðurstaða
Persónuverndar í máli kæranda sem
taldi óviðunandi að unnt sé að senda
inn slíkar nafnlausar ábendingar.
„Þann ábendingahnapp sem
hér um ræðir tilgreinir vefsíða TR
ekki sem gátt fyrir viðkvæmar per-
sónuupplýsingar,“ segir Persónu-
vernd. Stjórnvöldum geti borist
viðkvæmar upplýsingar um ein-
staklinga óumbeðið eftir hvaða leið
fyrir skrifleg samskipti sem er, meðal
annars um ábendingahnappa á vef-
síðum eða í tölvupósti. – gar
Klöguhnappur
TR er löglegur
Kjörnir fulltrúar í Kópavogsbæ fengu hraustlega launahækkun á síðasta ári þrátt fyrir að hafa valið aðra leið en að
þiggja enn hærri hækkun kjararáðs. Bæjarstórinn er með tæpar 2,5 milljónir á mánuði eftir hækkun. FréttaBlaðið/Eyþór
danmÖrK Borgaryfirvöld í Kaup-
mannahöfn og Árósum ráðleggja
ungum konum sem óttast að verða
þvingaðar í hjónaband erlendis
að fela mynt í nærfötunum.
Með málmleitartæki á flugvöllum
verði þannig hægt að koma í veg
fyrir ferð þeirra úr landi. Sífellt fleiri
leita sér hjálpar í Danmörku vegna
deilna sem tengjast svokölluðum fjöl-
skylduheiðri.
Árið 2015 bárust 242 erindi vegna
nauðungarhjónabanda auk annars,
að því er segir í svari félagsmálaráðu-
neytisins til danska þingsins. Árið
2017 voru erindin 307.
Á sama tíma fjölgaði dvalargestum
hjá Red-Savehouses úr 108 í 151. Um
er að ræða athvarf fyrir ungt fólk sem
vill komast úr nauðungarhjónabönd-
um og flýja ofbeldi tengt fjölskyldu-
heiðri. – ibs
Konur bjargi
sér með mynt í
nærfötunum
Með málmleitartæki er
hægt að stöðva för kvenna.
dómsmál Karlmaður var í Héraðs-
dómi Austurlands í liðinni viku
sýknaður af ákæru um líkamsárásir
gegn fyrrverandi sambýliskonu
sinni. Maðurinn játaði brot sín en
var sýknaður þar sem brotin töldust
fyrnd.
Í mars 2015 kærði konan mann-
inn fyrir ítrekaðar líkamsárásir
og kynferðisbrot. Maðurinn var
búsettur á Höfn í Hornafirði og fór
lögreglan á Suðurlandi (LRSu) með
rannsókn málsins. Í skýrslutökum
hjá lögreglu tjáði brotaþoli sig lítið
en maðurinn neitaði sök.
Héraðssaksóknari felldi niður
mál er vörðuðu hluta kynferðis-
brota sem áttu að hafa átt sér stað
árið 2014 en fyrirskipaði frekari
rannsókn á meintu broti frá í mars
2015. Sá hluti málsins var síðan
felldur niður í september 2017.
Eftir stóðu líkamsárásirnar en
málið var flutt fyrir Héraðsdómi
Austurlands þar sem Höfn er innan
umdæmamarka hans. Umdæmi
LRSu teygir sig hins vegar inn í
umdæmi dómstólsins.
Sem fyrr segir kom maðurinn
fyrir dóm og játaði sök. Ekki þótti
unnt að sakfella manninn fyrir brot
í nánu sambandi þar sem brotin
áttu sér stað áður en það ákvæði
hegningarlaganna var lögfest. Hátt-
semin taldist því vera líkamsárás.
Dómari málsins taldi fyrningar-
frest brotsins hafa rofnað þegar
rannsókn málsins hófst en hins
vegar hefði rannsókn þeirra brota
stöðvast meðan lögregla rannsak-
aði hin meintu kynferðisbrot. Því
hefði sök mannsins fyrnst meðan
málið var til rannsóknar og hann
sýknaður.
Málskostnaður, tæpar 1,7 millj-
ónir króna vegna launa verjanda
og réttargæslumanns brotaþola,
greiðist úr ríkissjóði. – jóe
Rannsókn kynferðisbrots rauf ekki fyrningarfrest líkamsárásar
Dómari málsins taldi
fyrningarfrest brotsins hafa
rofnað þegar rannsókn
málsins hófst en hins vegar
hefði rannsókn þeirra brota
stöðvast meðan lögregla
rannsakaði hin meintu
kynferðisbrot.
1 7 . m a í 2 0 1 8 F I m m T u d a G u r4 F r é T T I r ∙ F r é T T a B l a ð I ð
1
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
D
-4
E
4
C
1
F
C
D
-4
D
1
0
1
F
C
D
-4
B
D
4
1
F
C
D
-4
A
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K