Fréttablaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 4
JEEP GRAND CHEROKEE TRAILHAWK
TORFÆRUÚTGÁFAN AF ÞESSUM
FRÁBÆRA JEPPA
®
Quadra-DriveTM fjórhjóladrif, driflæsing að aftan, loftpúðafjöðrun, 18” álfelgur,
grófari dekk, 8,4” snertiskjár, lykillaust aðgengi og ræsing, rafdrifin sport
sæti frammi í með hita og kælingu, leður/rúskinnsáklæði, rafdrifinn afturhleri,
Bi-Xenon og LED framljós, bakkmyndavél, hiti í stýrishjóli, íslenskt
leiðsögukerfi, hlífðarplötur undir vél, kössum og eldsneytistönkum o.fl.
DÍSEL 3.0L V6 250 HÖ.
8 GÍRA SJÁLFSKIPTING HÁTT OG LÁGT DRIF
TRAILHAWK VERÐ FRÁ: 9.990.000 KR.
Grand Cherokee Laredo verð frá: 8.690.000 kr.
UMBOÐSAÐILI JEEP • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.JEEP.IS • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r
Kjaramál Ásgerður Halldórsdóttir,
bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar,
fékk 1.939 þúsund krónur á mán-
uði í laun í fyrra og hækkuðu laun
hennar um 150 þúsund krónur á
mánuði milli ára. Minnihlutinn
í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar
hefur kallað eftir því að launakjör
bæjarstjórans verði endurskoðuð
þar sem þau séu allt of há fyrir svo
lítið bæjarfélag.
Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi
fékk í fyrra greiddar 1.711.159
krónur á mánuði fyrir að gegna
starfi bæjarstjóra, 208 þúsund
krónur rúmar fyrir setu í bæjar-
stjórn og tæpar 20 þúsund krónur
á mánuði fyrir setu í nefndum
bæjarins. Alls rúmlega 1.939 þús-
und krónur samanborið við 1.790
þúsund krónur árið 2016. Frétta-
blaðið hefur að undanförnu óskað
eftir sundurliðun á launalið bæjar-
stjórnenda á höfuðborgarsvæðinu
og á Akureyri.
Þótt laun Ásgerðar hafi ekki
hækkað jafnmikið og margra ann-
arra bæjarstjóra milli ára, þá er hún
enn á meðal þeirra launahæstu á
landinu. Aðeins bæjarstjórar Kópa-
vogs, Garðabæjar og borgarstjóri
Reykjavíkur eru með hærri laun.
Bæjarstjórar Seltjarnarnesbæjar og
Mosfellsbæjar eru á nánast sömu
launum. Algeng bæjarstjóralaun
á Íslandi eru annars á bilinu 1,5
til 1,7 milljónir á mánuði. Hæstu
launin eru í mörgum tilfellum
hærri en hjá borgarstjórum stór-
borga úti í heimi.
Samfylkingin á Seltjarnar-
nesi gagnrýndi launakjör bæjar-
Gagnrýna laun bæjarstjóra í
jafn litlum bæ og Seltjarnarnesi
Bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar fær rúmlega 1,9 milljónir króna í mánaðarlaun. Bæjarfulltrúar minnihlut-
ans gagnrýndu nýverið launin sem væru allt of há fyrir svo lítið bæjarfélag, sem telur rúmlega 4.500 íbúa.
Ásgerður Halldórsdóttir meðal launahæstu bæjarstjóra landsins sem eru með laun á við stórborgarstjóra.
Launin sem Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, fær þykja ótæk. FréttabLaðið/GVa
stjórans á fundi bæjarráðs fyrr í
þessum mánuði. Bentu bæjarfull-
trúar flokksins á að laun bæjar-
stjórnenda hefðu hækkað um
rúm 30 prósent á kjörtímabilinu
öllu. Bæjarfulltrúar hafi afþakkað
launahækkun kjararáðs og tengt sig
við almenna launavísitölu. Launa-
kjör bæjarstjórans tækju þó áfram
mið af launum ráðuneytisstjóra.
Bókuninni fylgdi áskorun á nýja
bæjarstjórn, sem nú liggur fyrir að
verður óbreyttur meirihluti Sjálf-
stæðisflokks, að endurskoða þessa
launatengingu.
„Enda teljum við ótækt að fram-
kvæmdastjóri í jafn litlu sveitar-
félagi og Seltjarnarnesbæ sé með
rúmlega sexföld laun lægst launaða
starfsmanns sveitarfélagsins ásamt
bílastyrk og annarra stjórnar-
launa,“ sögðu Guðmundur Ari
Sigurjónsson og Sigurþóra Bergs-
dóttir, bæjarfulltrúar Samfylkingar,
í bókun sinni. Íbúar á Seltjarnar-
nesi eru um 4.500 talsins. Ásgerður
svaraði því og sagði að engin tillaga
hefði komið frá minnihlutanum á
kjörtímabilinu um að endurskoða
launin, fyrr en þarna, rúmum
tveimur vikum fyrir kosningar.
Laun bæjarstjórnar Seltjarnar-
nesbæjar hækkuðu sömuleiðis lítið
eitt milli áranna 2016 og 2017 sam-
kvæmt upplýsingum frá bænum.
Laun bæjarstjórnar námu alls 19,4
milljónum í fyrra samanborið við
18,5 milljónir árið áður.
mikael@frettabladid.is
Guðmundur ari
Sigurjónsson,
bæjarfulltrúi.
Heilbrigðismál Fyrirsjáanlegt
er að draga þurfi úr þjónustu hjá
heimahjúkrun og félagslegri heima-
þjónustu Reykjavíkurborgar þar
sem illa hefur gengið að manna
stöður fyrir sumarið. Þetta segir
Berglind Magnúsdóttir, skrifstofu-
stjóri öldrunar- og húsnæðismála
hjá Reykjavíkurborg, sem nýverið
sendi landlækni, Landspítalanum,
ráðuneytinu, sjúkratryggingum og
heilsugæslunni erindi þar sem hún
varaði við þessu.
„Það þýðir í raun að það myndast
biðlistar í heimahjúkrun, sem alla
jafna er ekki yfir árið. Við reynum
að stýra þessu þannig að léttari
verkefni fari yfir á félagslegu heima-
þjónustuna tímabundið,“ segir
Berglind.
Hún segir að undanfarin sumur
hafi þetta verið tilfellið í þessari
þjónustu. Álagið á heimaþjónust-
una alla, bæði heimahjúkrun og
félagslegu heimaþjónustuna verði
meira, þar sem Landspítalinn loki
mörgum af sínum deildum.
„Þetta fer ekki vel saman, þegar
álagið eykst hjá okkur og við bæt-
ast erfiðleikar við að manna stöður
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða
auk almennra starfsmanna í félags-
lega heimaþjónustu,“ segir Berglind.
„Það jákvæða við hrunið var að
þá áttum við auðveldara með að
fá starfsfólk. Nú bætist við að það
er meira um lokanir á Landspítal-
anum en áður. Við sjáum því fram á
erfiðara sumar hvað það varðar að
skortur á hjúkrunarfræðingum á
Landspítalanum hefur afleiðingar.
Staðan hjá okkur í að manna stöður
er ekki endilega verri en síðasta
sumar.“
Berglind vísar því á bug að vegna
stöðunnar sem upp sé komin sé
verið að vísa aðstandendum og
fjölskyldu á einkarekna möguleika
á borð við Sinnum ehf. að fyrra
bragði.
„Það gerum við ekki og höfum
ekki heimild til, en auðvitað þegar
fólk spyr okkur hvert það geti leitað
þá upplýsum við það um fyrir-
tæki sem sinna þessu. Ef fólk er að
spyrja.“ – smj
Gengið illa að manna og biðlistar yfirvofandi í heimahjúkrun
Skortur á hjúkrunarfræðingum hefur
víða áhrif. FréttabLaðið/ViLHeLm
Kjaramál Forstjóri Hörpu tilkynnti
í dag á stjórnarfundi Hörpu að kjör
þjónustufulltrúa yrðu leiðrétt og
taka mið af þeim samningum sem
voru í gildi á síðasta ári.
Í tilkynningu frá Hörpu kemur
fram að stjórnin telji að þannig
sé komið til móts við þá gagnrýni
sem Harpa hefur sætt í tengslum
við rekstrarhagræðingu, en eins og
greint var frá í Fréttablaðinu voru
laun þjónustufulltrúa lækkuð á
sama tíma og laun forstjóra voru
hækkuð.
Breytingin tekur gildi 1. júní og
verður tímakaup þá 26,1 prósenti
yfir taxta stéttarfélagsins eða að
meðaltali 2.935 krónur á klukku-
stund í yfirvinnu, en stærstur hluti
þjónustufulltrúanna, eða 85 pró-
sent þeirra, vinnur á kvöldin og um
helgar. – la
Harpa leiðréttir
laun starfsfólks
ViðsKiPTi Hagnaður HB Granda
dróst saman á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs. Hagnaðurinn nam 3,3
milljónum evra en á sama tímabili
í fyrra var hagnaðurinn 3,7 millj-
ónir evra.
Rekstrartekjur voru 50,2 millj-
ónir á fyrstu mánuðum ársins 2018
en voru á fyrsta ársfjórðungi 2017
42 milljónir evra. EBITDA fyrir-
tækisins var 7,8 milljónir í ár en 7,4
milljónir á sama tímabili í fyrra.
Í tilkynningu frá HB Granda segir
að einungis hafi verið fryst 1.265
tonn af loðnuhrognum nú á móti
3.736 tonnum árið 2017. – khn
Hagnaður
HB Granda
dregst saman
3 1 . m a í 2 0 1 8 F i m m T U D a g U r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð
3
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
F
4
-F
A
B
C
1
F
F
4
-F
9
8
0
1
F
F
4
-F
8
4
4
1
F
F
4
-F
7
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K