Fréttablaðið - 31.05.2018, Side 8
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Nýr Renault CAPTUR
Einn vinsælasti bíllinn í sínum flokki
RENAULT CAPTUR ZEN
Verð: 2.750.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
8
0
8
5
R
e
n
a
u
lt
C
a
p
t
u
r
5
x
2
0
m
a
í
LöggæsLa Embætti ríkislögreglu-
stjóra rekur net eftirlitsmyndavéla í
Reykjavík, Garðabæ, Reykjanesbæ og
Kópavogi. Einnig eru áform uppi um
uppsetningu myndavéla á Akranesi, í
Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit auk
fjölda annarra eftirlitsmyndavéla
lögreglunnar sem ekki eru tengdar
embættinu. Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri segir eðlilegt að
allar eftirlitsmyndavélar lögreglu
séu beintengdar embætti ríkislög-
reglustjóra.
Nú eru í notkun 36 eftirlitsmynda-
vélar í Reykjavík, sex í Reykjanesbæ
og ein í Garðabæ en á næstu dögum
verða sjö nýjar vélar settar upp
í Garðabæ og ellefu í Kópavogi.
Þannig er hægt að haga eftirliti með
íbúum í gegnum þessar vélar.
Í minnisblaði Gunnlaugs Júlíus-
sonar, sveitarstjóra Borgarbyggðar,
um uppsetningu eftirlitsmyndavéla,
sem lagt var fyrir byggðarráð Borgar-
byggðar, kemur fram að ríkislög-
reglustjóri hafi stækkað vefþjón sinn
til að taka á móti meira efni:
„Upptökur úr slíkum myndavélum
eru lesnar inn á miðlægan gagna-
grunn sem ríkislögreglustjóraemb-
ættið hefur yfir að ráða. Geymslu-
rými hans var aukið verulega rétt
fyrir áramótin sem opnaði mögu-
leika á að setja slíkar eftirlitsmynda-
vélar víðar upp en gert hafði verið
þar áður. Áður hafði takmarkað
geymslurými gert það að verkum
að ekki var hægt að fjölga slíkum
vélum.“
Um mitt ár 2016 var tekin ákvörð-
un um að sameina kerfi lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu og
ríkislögreglustjóra þannig að nú er
rekið eitt öryggismyndavélakerfi
af ríkislögreglustjóra. Einnig voru
öryggismyndavélar sem Reykjanes-
bær og lögreglustjórinn á Suður-
nesjum ráku tengdar við kerfið.
Einnig er vitað um fleiri eftirlits-
myndavélar sem notaðar eru af lög-
reglu. Til að mynda eru að minnsta
kosti tvær myndavélar í miðbæ
Akureyrar sem stýrt er af lögreglu.
Þá hefur uppsetning á mynda-
vélakerfum á Suðurlandi og í Vest-
mannaeyjum ekki verið í samráði
við ríkislögreglustjóra.
Að mati Haraldar væri mun betra ef
allar vélarnar yrðu tengdar inn á mið-
lægt kerfi. „Jú, vissulega væri það til
hagsbóta að allar eftirlitsmyndavélar
sem lögregla notar við dagleg störf sín
séu á sameiginlegu kerfi. Hins vegar er
mikilvægt að slík vinnsla upplýsinga
standist lög um meðferð persónu-
upplýsinga,“ segir hann.
„Það er rétt að kerfi ríkislögreglu-
stjóra er tæknilega séð fært um að
taka við upplýsingum, í þessu tilfelli
myndefni, alls staðar að af landinu.
Embættið stækkaði gagnagrunn-
inn sinn fyrir nokkru síðan. Hins
vegar höfum við ekki fengið beiðni
frá lögreglustjórum um landið um
að tengjast kerfinu,“ segir Haraldur
ríkislögreglustjóri.
Í skriflegu svari embættisins kemur
einnig fram að möguleiki sé á því að
lesa bílnúmer bifreiða sjálfvirkt með
vefmyndavélum. Það þurfi hins vegar
að skoða í samræmi við nýja löggjöf
ESB. „Ný lög um meðferð persónu-
upplýsinga og innleiðing á tilskipun
Evrópusambandsins um vinnslu per-
sónuupplýsinga hjá löggæslu verður
viðfangsefni viðkomandi stofnana á
næstu misserum og því er ekki tíma-
bært að ákveða um upptöku á sjálf-
virkum bílnúmeraplötulestri með
öryggismyndavélum,“ segir í svarinu.
sveinn@frettabladid.is
Net eftirlitsmyndavéla verður til
Ríkislögreglustjóri stækkaði nýverið geymslurými tölvukerfis hjá sér til að taka í notkun fleiri háþróaðar eftirlitsmyndavélar. Net eftir-
litsmyndavéla er að verða til sem er streymt frá til RLS. Ríkislögreglustjóri vill að allar vélar lögregluumdæmanna fari inn í þetta kerfi.
Eftirlitsmyndavélar eru notaðar af lögregluembættum um allan heim. Mynd/HEnnInG KAISER
Haraldur
Johannessen,
ríkislögreglustjóri
61
eftirlitsmyndavél verður í
notkun hjá embætti ríkislög-
reglustjóra innan nokkurra
vikna.
3 1 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a g U R8 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a ð I ð
3
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
F
5
-2
2
3
C
1
F
F
5
-2
1
0
0
1
F
F
5
-1
F
C
4
1
F
F
5
-1
E
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K