Fréttablaðið - 31.05.2018, Page 12

Fréttablaðið - 31.05.2018, Page 12
Rússland Volodímír Grojsman, for- sætisráðherra Úkraínu, sagði í gær að „alræðisvélin í Rússlandi“ bæri ábyrgð á því að rússneski blaða- maðurinn Arkadij Babsjenkó hefði verið myrtur í úkraínsku höfuð- borginni Kænugarði á þriðjudag. Óleska, eiginkona hans, fann hann samkvæmt fjölmiðlum alblóðugan við innganginn að heimili þeirra og sagði úkraínska lögreglan frá því að hann hefði dáið á leiðinni á sjúkra- hús með þrjú skotsár í bakinu. „Ég er viss um að alræðisvélin í Rússlandi hafi ekki fyrirgefið honum hreinskilni sína og afstöðu. Hann var sannur vinur Úkraínu sem sagði heimsbyggðinni allri frá árásum Rússa. Morðingjunum ætti að refsa,“ sagði Grojsman. Rússar svöruðu ásökununum um leið og sagði Sergei Lavrov utan- ríkisráðherra að ásakanirnar væru uppspuni. Vladimír Peskov, fjöl- miðlafulltrúi ríkisstjórnarinnar, sagði svo að Rússar vonuðust eftir raunverulegri rannsókn, ekki svið- settri til að koma óorði á Rússa. Alexander Bortníkov, stjórnandi alríkislögreglunnar (FSB), sagði að málið væri sambærilegt því þegar eitrað var fyrir Skrípal-feðginunum í Salisbury. Fjölmiðlar fjölluðu ítarlega um málið. Meðal annars greindi BBC frá því að Babsjenkó hefði lengi gagnrýnt yfirvöld í Rússlandi. Hann hefði hins vegar neyðst til að flýja til Úkraínu á síðasta ári eftir að hafa verið hótað lífláti fyrir stöðuuppfærslu sem hann setti inn á Face book. Í færslunni skrifaði Babsjenkó um að rússneski her- inn varpaði sprengjum á almenna borgara í Aleppo í Sýrlandi. Eftir þessi orðaskipti Rússa og Úkraínumanna, og umfjöllun fjöl- miðla, kom það því gífurlega á óvart þegar Arkadí Babsjenkó sjálfur gekk inn á blaðamannafund í Kænugarði, við hestaheilsu, í gær. Á blaðamannafundinum sagði Vasijl Hrijtsak, forsvarsmaður úkraínsku leyniþjónustunnar (SBU), frá því að leyniþjónustan hefði sviðsett morðið á Babsjenkó. Hrijtsak sagði morðið hafa verið sviðsett til þess að góma menn sem væru að reyna að koma Babsjenkó fyrir kattarnef. Rússnesk yfirvöld hefðu ráðið úkraínskan ríkis- borgara til að finna fyrir sig leigu- morðingja. Hann hefði rætt við ýmsa kunningja sína, meðal ann- ars uppgjafahermenn, og boðið rúmar þrjár milljónir króna fyrir verkið. Einn hermannanna gaf sig síðan á tal við SBU, að sögn Hrijt- saks. Fyrir liggur að einn hefur verið handtekinn í tengslum við málið en ekkert hefur verið gert opinbert um handtökuna. Júrij Lútsenkó ríkissaksóknari hélt fundinn með Hrijtsak og Babsj- enkó. Sagði hann sviðsetninguna hafa verið nauðsynlega til að sann- færa þá sem vildu Babsjenkó feigan um að þeim hefði tekist ætlunar- verk sitt. Það kom blaðamönnunum sem sóttu fundinn skiljanlega í opna skjöldu þegar þeir sáu að Babsjenkó væri risinn upp frá dauðum. Bað Babsjenkó kollega sína afsökunar og sagði: „Ég hef of oft þurft að fylgja vinum mínum og samstarfsmönn- um til grafar og ég þekki tilfinn- inguna vel.“ Að sögn Babsjenkós tók tvo heila mánuði að undirbúa þessa aðgerð. Hann hefði sjálfur fengið að vita hvað til stæði fyrir mánuði. Russia Today, ríkismiðill sem hefur verið kallaður hluti áróðursvélar Rússlandsstjórnar, greindi frá þessari óvæntu vendingu. Sagði RT að óljóst væri hvort úkraínskir stjórnmála- menn hefðu vitað af sviðsetningunni eða „einfaldlega haldið áfram að saka Moskvu um alla þá alvarlegu glæpi sem eru framdir í Úkraínu“. María Sakaróva, fjölmiðlafulltrúi rússneska utanríkisráðuneytisins, sagði í samtali við rússneska miðil- inn Interfax að morðið hefði verið sviðsett í áróðursskyni. Sagði hún Rússa þó ánægða að heyra að Babsj- enkó væri á lífi. Konstantín Kosasjev, formaður utanríkismálanefndar rússneska þingsins, sagði við sama miðil að um væri að ræða enn eina aðgerð úkraínskra yfirvalda sem beindist sérstaklega gegn rússneska ríkinu. Forseti Úkraínu, Petró Porosjenkó, sagði að nú myndi úkraínska ríkið halda varnarskildi yfir Babsjenkó. „Það er ólíklegt að yfirvöld í Moskvu róist núna. Ég hef fyrirskipað að vernda skuli Arkadij og fjölskyldu hans.“ Daily Beast sagði í umfjöllun sinni að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem atburðarás sem þessi ætti sér stað. Árið 1984 hefðu Egyptar sviðsett morð líbísks stjórnarandstæðings. „En í fjölmiðlaumhverfi nútímans er svona stórkostlegt dæmi um falsfrétt til þess fallið að rýra trúverðugleika þeirra sem að málinu standa, ekki bara þeirra sem gætu framið glæpinn í raun og veru,“ sagði í umfjölluninni. Fjöldi blaðamanna lýsti sams konar skoðun á Twitter. Natalija Vasiljeva, blaðamaður AP, sagði til dæmis að nú gætu andstæðingar fjölmiðlafrelsis notað mál Babsj- enkós sem dæmi um að fjölmiðlum væri ekki treystandi. John Sweeney, blaðamaður BBC sem hefur fjallað um Rússlandsstjórn, tók í sama streng og sagði slæmar hliðar máls- ins fleiri en þær góðu. thorgnyr@frettabladid.is Lygileg atburðarás í Kænugarði Forsætisráðherra Úkraínu kenndi Rússum um morð á blaðamanni sem hefur gagnrýnt yfirvöld í Kreml. Rússar sögðust blásaklausir og reiddust grönnum sínum. Úkraínska leyniþjónustan sviðsetti hins vegar morðið og maðurinn birtist óvænt á blaðamannafundi. spánn Spænska utanríkisráðu- neytið hefur tilkynnt um ný verð- laun sem verða veitt þeim erlenda blaðamanni sem gerir mest til þess að bæta orðspor Spánar út á við. Frá þessu greindi katalónski mið- illinn El Nacional. „Sem sagt, ráðuneytið mun líta sérstaklega til þeirra skoðana sem koma fram í umfjölluninni og er því um að ræða verðlaun fyrir að tala vel um spænsku ríkisstjórn- ina og stefnumál hennar,“ sagði í umfjöllun Katalóníumiðilsins en sá blaðamaður sem hlýtur þessi verðlaun fær í vasann nærri eina og hálfa milljón króna. El Nacional setur verðlaunin í samhengi við katalónsku sjálf- stæðisbaráttuna og heldur því fram að spænska ríkisstjórnin líti svo á að alþjóðapressan hafi ekki verið nægilega gagnrýnin á hreyf- inguna. Graham Keeley, blaðamaður The Times á Spáni, sagði í skoð- anagrein í gær að þessi tilraun Spánverja myndi ekki ganga upp. „Blaðamenn elska að vinna verð- laun, þau bæta okkar viðkvæmu sjálfsmynd. En nú berast fréttir af verðlaunum sem hvorki ég né nokkur annar blaðamaður með vott af sjálfsvirðingu ætti að vilja, hljóta þrátt fyrir verðlaunaféð.“ Styr stendur nú um Mariano Rajoy forsætisráðherra og ríkis- stjórn hans vegna sakfellingar tuga flokksmanna í spillingar- málum. Atkvæðagreiðsla um van- traust á Rajoy fer fram á morgun. Þó er ólíklegt að vantraust verði samþykkt þar sem Ciudadanos- flokkurinn mun standa með Rajoy. Ciudadanos-menn hafa þó farið fram á að boðað verði til kosninga sem fyrst. Miðað við kannanir myndi flokkur Rajoys, Partido Popular, fá um 20 prósent atkvæða en fékk 33 prósent í kosningunum 2016. – þea Verðlauna jákvæða umfjöllun um Spán Það sló viðstadda út af laginu þegar Vasijl Hrijtsak, stjórnandi SBU, (t.v.) kynnti Arkadij Babsjenkó til leiks á blaðamannafundi í gær. NordicpHotoS/AFp Skráning stendur yfir í síma 564 4030 og á tennishollin.is BYRJENDANÁMSKEIÐ Í TENNIS FYRIR FULLORÐNA eru að hefjast Upplýsingar & skráning í síma 564 4030 og á tfk.is TENNISÆFINGAR FYRIR 13-18 ÁRA byrjendur í sumar virka daga kl. 16.30-18 Tennisfélag Kópavogs Nærri 1,5 milljónir eru í boði fyrir þá sem fjalla um Spán á jákvæðan hátt. GEFÐU HÆNU gjofsemgefur.is 9O7 2OO3 Mariano rajoy, forsætisráðherra Spánar. 3 1 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U d a G U R12 F R é T T I R ∙ F R é T T a B l a ð I ð 3 1 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F F 5 -0 9 8 C 1 F F 5 -0 8 5 0 1 F F 5 -0 7 1 4 1 F F 5 -0 5 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.