Fréttablaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 38
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Sumarið er sá tími sem svörtu fötin fara í frí og litríkur og léttari fatnaður fær að njóta sín. Tískustraumar sumarsins eru því allt annað en leiðinlegir þetta árið. Fíngert blúnduefni og stórar blúndur til skrauts verða áberandi og ljóst er að kjólar með blóma- mynstri eru eitt af því allra heitasta í sumar. Mynstrið er ýmist fínlegt eða gróft og hægt að klæða sig ýmist upp eða niður eftir því hvernig fylgihlutirnir eru. Jakkar yfir kjóla og háir skór í stíl munu sjást víða. Síddin á kjólunum er í lengri kantinum og þeir eru fremur víðir og frjálslegir. Það lítur því út fyrir að sumartískan sé á róman- tískari nótum en oft áður. Röndóttir bolir og buxur Rendur verða einnig mjög áber- andi í sumartískunni en þær gefa frekar svalt útlit. Röndóttir jakkar, bolir, peysur og jafnvel buxur eiga eftir að sjást á hverju götuhorni. Jakkar með einni rönd á bakinu og þverröndóttir jakkar verða í tísku, líkt og þverröndóttir bolir í hvítu og rauðu eða bláu eða jafn- vel grænu. Langröndóttar buxur með víðu sniði eru svo sannarlega komnar í tísku bæði fyrir dömur og herra. Þær eru fremur stuttar og í ljósum lit með dökkum, mjóum röndum. Pastellitir og ljósir tónar Dökkir litir víkja fyrir pastellitum og ljósum tónum. Sterkir, djúpir litir eins og djúpfjólublár og fagur- grænn, verða líka vinsælir, sérstak- lega í jökkum og einnig skóm. Aukahlutir eru auðvitað ómiss- andi í sumar sem endranær. Fremur stór, kringlótt sólgleraugu með fíngerðum ramma og jafnvel glerjum í ýmsum litum halda velli og töskur koma einna helst í svörtu eða í því nýjasta nýja: basti. Sumartískan er mjög blómleg Léttir og síðir kjólar með blómamynstri verða áberandi í sumar og röndóttar, víðar buxur í ljósum litum hámóðins. Tískan í sumar er umfram allt rómantísk, litrík og lífleg. Viktoría, krón- prinsessa Svía, var klædd eftir nýjustu tísku þegar hún mætti á samkomu í Stokkhólmi fyrr í þessari viku, þar sem barnabók- menntaverðlaun til minningar um Astrid Lind- gren voru veitt. Grænu skórnir setja mikinn svip á heildarút- litið. MyndiR/nORdiC­ PHOTOS/GETTy Götutískan í París sýnir glöggt að gallaefni fer aldrei úr tísku, sem hentar íslensku veðurfari einmitt mjög vel. Töff sólgleraugu, hvít skyrta, gallabuxur og smart blazer- jakki er skotheld samsetning í sumar. Hvítar, langröndóttar buxur hafa aldrei verið jafnvinsælar og nú. Þær eru vin- sælar bæði hjá dömum og ungum herrum. Einlitur efri partur passar vel við og íþróttaskórnir setja svo punktinn yfir i-ið á þessari svölu samsetningu. Það er sama hvert litið er þessa dagana, blómakjólar eru greinilega málið í sumar. Í svölu veðri er hægt að vera í þeim utan yfir þröngum buxum og háir hælar setja svo sparilegt yfirbragð á heildarútlitið. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Flott sumarföt, fyrir flottar konur Stærðir 38-58 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15 Kíkið á myndir og verð á Facebook Toppur á 11.900 kr. - einn litur - stærð 34 - 48 8 KynninGARBLAÐ FÓLK 3 1 . M A Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 3 1 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F F 5 -1 8 5 C 1 F F 5 -1 7 2 0 1 F F 5 -1 5 E 4 1 F F 5 -1 4 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.