Fréttablaðið - 31.05.2018, Page 58

Fréttablaðið - 31.05.2018, Page 58
E ins og greint var frá hér í Lífinu í mars eru hjónin Rakel Þórhallsdóttir og Jóhann Guðlaugsson búin að festa kaup á Hagavagninum, einu af táknum Vesturbæjarins, og eru á fullu að vinna við að opna þar ham- borgarastað með dyggri aðstoð frá Ólafi Erni Ólafssyni veitingamanni og rapparanum Emmsjé Gauta. Þau hafa verið að gera vagninn upp en hins vegar er komin upp sú leiðin- lega staða að vagninn er ekki hægt að laga og það þarf að reisa nýtt húsnæði á reitnum. Verður íbúum hverfisins gert viðvart um þetta í tilkynningu þar sem kemur meðal annars fram: „Með mikilli sorg í hjarta hefur sú ákvörðun verið tekin að rífa gamla Hagavagninn. Þegar við hófum breytingar á húsnæðinu kom sú staðreynd í ljós að hann er gjörónýtur og ekki er hægt að bjarga honum. Við erum bjartsýn á fram- tíðina og stefnum á að opna Haga- vagninn í júlí. Við höldum í nafnið en kveðjum gamla kofann.“ Þegar blaðamaður nær í Gauta er hann á leiðinni út úr bænum á ferðalag sitt um landið, þar sem fyrsta stopp var á Hvolsvelli. „Það er rosa stutt í að við opnum vagninn og við komin langt í ferl- inu, við erum svona í lokasmakk- inu núna. Ég er búinn að biðja þau Rakel og Óla, sem eru með mér í þessu, að senda mér hamborgara út á land. Ég fæ reyndar ekki einn sveittan í bréfi – en ég fæ hráefnin sem ég get svo eldað sjálfur og leyft strákunum að smakka.“ Gauti segir það þó í raun og veru ekki vera neitt sérstaklega mikinn skell fyrir ferlið að þurfa að byggja nýjan vagn. „Það var alltaf stefnt að því að taka vagninn alveg í gegn. Hann hefur auðvitað staðið mjög lengi og vitað var að það þyrfti að gera mikið fyrir hann. Það að byggja nýjan er í raun ekki mikið flóknara en það sem við gerðum ráð fyrir að þurfa að gera við gamla vagninn. En við reyndum allt sem við gátum til að halda gamla vagninum – þetta voru bara ekki aðstæður sem við gátum boðið upp á við matargerð. Ég veit að mörgum þykir vænt um þennan vagn og okkur líka – það var einmitt það sem heillaði til að byrja með: staðsetningin og lúkkið, þannig að þetta var erfið ákvörðun. Við vonum að nýi vagninn muni standa jafn lengi og hinn og auðvitað munum við halda áfram að nota gamla nafnið.“ Ætlunin sé að halda í svipað útlit og var á gamla góða vagninum þó svo að hann verði ekki byggður í nákvæmlega sömu mynd. „Við ætlum að hafa þetta í stíl við götuna, en hún er í mikilli uppbyggingu um þessar mundir. Það er kom- inn skemmtilegur svipur á hana – við erum með Mela- búðina, Kaffi Vest og svo nýj- asta viðbótin sem er Brauð & Co. Ég get ekki farið neitt nánar út í það en við, allir þessir fjórir staðir, ætlum að halda smá viðburð saman sem verður tilkynntur betur síðar. Markmiðið er auð- vitað bara að gera geggjaða hamborga sem fólk þráir og byggja upp hverfið.“ Svona fyrst Gauti er í símanum getur blaðamaður ekki stillt sig um að spyrja hvernig tónleikaferða- lagið fari af stað. „Íslandstúrinn er að hefjast núna bara á meðan við tölum saman. Það tók aðeins lengri tíma en við bjugg- umst við að pakka í bílana – við erum náttúrulega átta menn sem verðum á veginum í næstum tvær vikur og það er bara ákveðið mikið af rusli sem því fylgir. Það er mikil spenna og massívt prógramm fram undan – við erum að fara spila sex- tán sinnum á næstu þrettán dögum og Keli er strax orðinn óþolandi – við erum ekki komnir út úr bænum og hann er strax búinn að segja átján aulabrandara.“ stefanthor@frettabladid.is Vagninn þarf að fjúka! Nýr vagn verður reistur í staðinn og mun hann að sögn aðstandenda passa eins og flís við rass í götumynd Vesturbæjarins. Fréttablaðið/aNtoN briNk Hagavagninn verður rifinn og endurreistur Hagavagninum er verið að breyta í ham- borgarastað um þessar mundir. Ekki tókst að gera hann upp og því þarf að rífa hann og byggja nýjan. Einn aðstandenda vagnsins, Emmsjé Gauti, segir þetta sorglegt en er bjartsýnn á að nýi vagninn muni ekki valda vonbrigðum. Við rEyndum allt sEm Við Gátum til að Halda Gamla VaGninum – þEtta Voru bara Ekki aðstæður sEm Við Gátum boðið upp á Við matarGErð. Gauti fær senda hamborgara út á land þar sem hann er að túra um þessar mundir til að geta tekið síðustu lotuna af smakki fyrir opnun Hagavagnsins. MyNd/HlyNur HelGi HallGríMssoN 3 1 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R38 l í F I ð ∙ F R É T T a B l a ð I ð Lífið 3 1 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F F 5 -1 D 4 C 1 F F 5 -1 C 1 0 1 F F 5 -1 A D 4 1 F F 5 -1 9 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.