Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 4
er vinnuþjarkur sem njóta mun
sín á óhefðbundnum veg-
arslóðum.
2019 Suzuki Jimny
Ljósmyndir af Suzuki
Jimny láku út á netið í
ágústmánuði og ollu tals-
verðu umtali í aðdraganda
sýningarinnar í Tókýó. Þyk-
ir athyglisvert hvað Suzuki legg-
ur áfram mikla áherslu á að þróa
þennan litla bíl sem þykir dugleg-
ur utanvegar. Næsta kynslóð
Jimny er væntanleg 2019 en jepp-
inn knái hefur verið að vaxa að
vinsældum.
Honda Sports EV
Spyrja má sig hvers vegna
Honda er ekki löngu búið að smíða
þennan bíl. Orðrómur segir að hér
sé um að ræða arftaka annaðhvort
S2000-bílsins eða Honda Prelude.
Hvort sem verður þá er hér um að
ræða lítinn, skemmtilegan og kná-
an sportbíl svo fremi sem hann
fær ögn af innspýtingu frá Civic
Type-R við útfærsluna.
agas@mbl.is
A
lþjóðlega og árlega bíla-
sýningin í Tókýó er á
næstu grösum, hefst í
næstu viku og þar munu
14 japanskir bílaframleiðendur láta
ljós sitt skína. Yfirskrift sýning-
arinnar í ár er „eftir daga vél-
arinnar“ og munu bílsmiðir freista
þess að svara spurningunni um
hvernig farartæki framtíðarinnar í
ört vaxandi stafrænni samgöngu-
veröld verða.
Tvinnaflrásir í Tókýó
Að undanförnu hafa fyrirtæki
eins og Honda, Toyota og Subaru
verið að mjatla út upplýsingum um
hvað þau muni koma með til sýn-
ingarinnar. Mikið er rætt um tvin-
naflrásir í því sambandi. Þær eru
ekki lengur væskilslegar og til
marks um það hafa bílsmiðir hálf-
vegis verið að fela skilvirka og öfl-
uga tvinntækni í sportbílum og
farartækjum þar sem snöggt snún-
ingsvægið frá rafgeymunum kem-
ur að góðum notum. Því eru
spennandi tímar fram undan og
víst þykir að Tókýó-sýningin muni
veita bestu innsýn í bílaframtíðina
til þessa. Eftirfarandi bílar eru
meðal nokkurra spennandi far-
artækja sem þar verða á sýning-
arpöllum.
Subaru Viziv
Subaru Viziv Performance-
tilraunabíllinn gæti verið vísbend-
ing um næstu kynslóð WRX en
hann er ekki væntanlegur á göt-
una fyrr en 2020. Það er raunhæft
þar sem núverandi kynslóð bílsins
kom til sögunnar í fyrra. Það sem
Subaru vill fyrst og fremst sýna
með Viziv er þróun hönnunar bíls-
ins og hjálpartækni hvers konar
sem ökumaður nýtur góðs af.
Toyota GR HV Sports
Það sem þessi bíll boðar fyrst
og fremst er að hann er
kraftbirtingarform þeirrar stefnu
sem Toyota ætlar að taka í smíði
sportbíla. Við hönnunina nutu hug-
myndafræðingar japanska bíl-
smiðsins innblásturs frá Le Mans-
kappakstursbílnum, svo sem varð-
andi aðalljósin, loftaflsfleti og að
sjálfsögðu nýjustu útgáfu tvinn-
aflrásarinnar svo fátt eitt sé nefnt.
Deila má um útlitið en ekki af-
kastagetu bílsins.
Toyota TJ Cruiser
Ævintýralegir bílar hafa verið
að festa rætur á almennum bíla-
markaði og hyggst Toyota ekki
láta það fram hjá sér fara, heldur
vera þátttakandi í þessari þróun.
Býður fyrirtækið fram TJ Cruiser-
hugmyndabílinn; nokkuð hrjúfan
fák að sjá en hið sama verður sagt
um t.d. Land Rover Defender og
Jeep Wrangler. Framlag Toyota
Toyota TJ Cruiser er
nokkuð grófur að út-
liti og vöxtum.
Subaru Viziv
er tilvísun til
framtíðar.
Fimm vænlegir á Tókýó-sýningunni
Lítill en knár Honda
Sports EV Concept verð-
ur frumsýndur í Tókýó.
Ný kynslóð Suzuki
Jimny er vænt-
anleg 2019.
Toyota GR HV Sports vísar til þess
hvernig sportbílar japanska bílrisans
munu þróast í framtíðinni.
4 | MORGUNBLAÐIÐ