Morgunblaðið - 17.10.2017, Page 20

Morgunblaðið - 17.10.2017, Page 20
F lestir sem þekkja eitthvað til fatatísku þekkja nafn tísku- hönnuðarins Ralph Lauren. Hann telst vera „gamalt brýni“í bransanum enda búinn að vera í fremstu röð um áratuga skeið. Bílaáhugamenn vita eflaust líka að Ralph karlinn á eitt almagnaðasta bílasafn í einkaeigu sem fyrirfinnst í víðri veröld enda mun samanlagt virði safnsins í nágrenni við 300 millj- ónir Bandaríkjadala, eða sem nemur rúmlega 31,5 milljörðum íslenskra króna. Bílasafninu hefur hann sank- að að sér á löngum tíma og grípur oftar en ekki gæsina þegar fágætar perlur skjóta upp kollinum á upp- boðum. Lauren veit vart aura sinna tal og segir verðmiðann engu skipta þegar sígild hönnun fágætra bíla er annars vegar. Hverjar voru í raun stjörnurnar? Í mánuðinum sem leið efndi Ralph Lauren svo til tískusýningar þar sem hann kynnti fyrir blaðamönnum og ljósmyndurum fatalínu sína fyrir haustið 2018. Það er frétt út af fyrir sig en hér var um stórmál að ræða því Lauren bauð sýningargestunum til Bedford í New York-ríki, í stað þess að nota hvern annan sal í mið- borg New York eins og vant er, og það sem meira er, hann raðaði upp nokkrum ótrúlegum dýrgripum úr bílasafni sínu víðs vegar um salinn. Þegar allt kemur til alls má spyrja sig hvort bílarnir voru til að ýta undir lúxustilfinninguna eða hvort þeir hreinlega stálu senunni og nokkur sýningargesta muni neitt eftir fatn- aðinum eða fallega fólkinu sem gekk um salinn og sýndi hann? Að öllu gamni slepptu var gerður gríðarlega góður rómur að sýning- unni og var mál manna að vel hefði tekist til með að spila þessu tvennu saman. Hér á myndunum gefur að líta hvernig salurinn kom út og við látum lesendum eftir að meta hvern- ig þeim finnst þetta allt saman líta út. jonagnar@mbl.is Fólk fékk heldur ekki að borða í friði fyrir ólýs- anlega fallegum bílum – Ralph á klassíska dýr- gripi í tugatali. Hausttíska og himneskir bílar Ofurfyrirsætur hjá Ralph Lauren – og sumar á fjórum hjólum Röð gullfallegra fyr- irsæta gengur framhjá kolsvörtum Ferrari LaFerrari. Þannig leit salurinn út þar sem tískusýningin var haldin. Maður veit vart hvert skal helst horfa. Hér er allt með allra fallegasta móti og Ralph á heiður skilinn fyrir að slá tvær flug- ur í einu höggi – sýna haust- og vetrartísku sína og leyfa gestum að virða fyrir sér óvið- jafnanlegt bílasafn hans. Fötin þurfa að vera býsna fal- leg til að maður hafi augun af þessum ótrúlega fallega Ferrari 250 GTO. 20 | MORGUNBLAÐIÐ Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.