Morgunblaðið - 17.10.2017, Side 22
Mercedes-Benz B-
Class reyndist fara
allra bílanna 30
best með sopann.
Hvaða dísilkúnir einrúmungar
(monospaces) af minni gerðinni
þurfa minnst eldsneyti á hrað-
brautunum?
Þessi spurning var lögð fyrir
rannsóknarsveit franska bílablaðs-
ins Auto Plus og biðu þeir ekki
boðanna heldur leituðu svara við
henni.
Bílaframleiðendur hafa verið að
þróa og betrumbæta bíla sína í
þessum flokki og segja framfarir
til sín í lækkandi eyðslutölum. Í
mælingum Auto Plus á yfir 30 bíl-
um reyndist Mercedes B-Class
minnst þurfi. Var sú útgáfa með
109 hestafla 180-d vél sem fengin
er frá franska bílsmiðnum Re-
nault. Fór hann með aðeins 5,3
lítra á hundraðið.
Í öðru sæti varð 150 hesta BMW
218d Gran Tourer og í því þriðja
Renault Scenic með 110 hesta 1,5
dCi Hybrid Assist-aflrás. Báðir
fóru þessir tveir með 5,6 lítra á
hundraðið. Níu bílar af 30 voru
með eyðslu undir 6,0 lítrum og sjö
á sex lítrum sléttum, svo mun-
urinn er ekki ýkja mikill.
Meira að segja 190 hestafla og
sjö manna fjórhjóladrifni bíllinn
BMW 220d xDrive Grand Tourer
lét sér duga 6,4 lítra. Listinn yfir
bílana 30 er annars sem hér segir
og er hestaflafjöldi þeirra í sviga:
agas@mbl.is
Benzinn bruðlar ekki með eldsneytið
B-Class fer vel með sopann
Eldsneytiseyðsla, lítrar/100 km
hestöfl lítrar
Mercedes B-Class 180 d 109 5,3
BMW218d Gran Tourer 150 5,6
Renault Scenic 1,5 dCi HA 110 5,6
BMW216d Active Tourer 116 5,8
Ford C-Max 1,5 TDCi 120 5,8
Citroën C4 Picasso
2,0 BlueHDi 150 5,9
Ford Grand C-Max
1,5 TDCi 120 5,9
Peugeot 5008
2,0 BlueHDi 150 5,9
VWGolf Sportsvan 2,0 TDI 150 5,9
Citroën C4 Picasso
1,6 BlueHDi 120 6,0
Citroën C4 Picasso
1,6 BlueHDi 100 6,0
Citroën Grand C4
Picasso 2,0 BHDi 150 6,0
Renault Grand
Scenic 1,6 dCi 130 6,0
Renault Scenic 1,6 dCi 130 6,0
Renault Scenic 1,5 dCi 110 6,0
Toyota Verso 1,6 D-4D 112 6,0
BMW218d Active Tourer 150 6,1
Citroën Grand C4
Picasso 1,6 BHDi 120 6,1
Mercedes B-Class B160d 90 6,1
Peugeot 5008 1,6 BlueHDi 100 6,1
VWTouran 1,6 TDI 115 6,1
BMW220d xDrive AT BVA 190 6,2
Kia Carens 1,7 CRDi 115 6,2
Renault Grand
Scenic 1,5 dCi 110 6,2
Renault Scenic 1,5 dCi 95 6,2
BMW220d xDrive
Grand Tourer 190 6,4
Dacia Lodgy 1,5 dCi 110 6,4
Dacia Lodgy 1,5 dCi 90 6,4
Mercedes B-Class
200 d BVA 136 6,4
VWTouran 2,0 TDI 150 6,4
Tuttugu ár eru liðin frá því að
Hekla hóf innflutning á metanbílum
en það var árið 1997 sem innflutn-
ingur hófst á metanknúnum
Volkswagen Caddy og Volkswagen
Touran. Síðan þá er mikið vatn
runnið til sjávar og Hekla býður í
dag upp á fjölbreytt úrval bíla sem
ganga bæði fyrir metani og bensíni.
Má þar nefna Skoda Octavia,
Volkswagen Caddy, Volkswagen
Golf, Volkswagen up!, Volkswagen
Polo, Audi A3 og Audi A5. 1.246
metanbílar hafa selst síðustu fimm
ár og frá ársbyrjun 2016 er búið að
nýskrá 648 metanbíla, eða 24% af
öllum nýskráðum vistvænum bílum,
eins og fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Heklu.
„Leiðandi í vistvænum farkostum
á bílamarkaði“
„Við höfum góða reynslu af sölu
metanbíla sem og annarra vist-
vænna bíla. Þeir bíleigendur sem
prófa metanbílana eru almennt
mjög ánægðir og það bætast sífellt
fleiri í þann hóp ánægðra við-
skiptavina. Hekla er leiðandi í vist-
vænum farkostum og við munum
halda áfram að bjóða upp á fjöl-
marga og fjölbreytta kosti á sviði
vistvænna bíla. Við hlökkum til að
bjóða upp á nýja kosti á komandi
misserum,“ segir María Jóna Magn-
úsdóttir, framkvæmdarstjóri sölu-
sviðs hjá Heklu.
Í þessu sambandi má geta þess að
þrír af tíu vinsælustu fólksbílunum
sem seldir voru á landinu í sept-
ember frá Heklu en bílar frá Mit-
subishi, Skoda og Volkswagen raða
sér þar á lista. Mitsubishi Out-
lander PHEV er þar í fararbroddi
en gríðarlega góð sala hefur verið á
þessum vinsæla tengiltvinnbíl á 100
ára afmælisári Mitsubishi. Þá kom-
ast hinir sívinsælu Skoda Octavia
og Volkswagen Golf einnig á topp-
tíu-listann. Vistvænir bílar seldir
frá Heklu eru nú orðnir 953 það
sem af er ári og er það 15% fjölgun
miðað við allt árið í fyrra. Það er
því ljóst að þegar árið verður gert
upp hafa Íslendingar sýnt það í
verki að þeim sé umhugað um nátt-
úruna þegar þeir horfa til vist-
vænna kosta í bílakaupum, segir
ennfremur í tilkynningunni.
jonagnar@mbl.is
Metanbílar hjá Heklu í 20 ár
Skoda Octavia
G-Tec er grænn
valkostur í um-
ferðinni.
Aldrei vinsælli né umhverfisvænni
22 | MORGUNBLAÐIÐ
Hvað tekur það smábíla með bens-
ínvél – undir 150 hestöflum – lang-
an tíma að leggja að baki einn kíló-
metra úr kyrrstöðu? Hver er þeirra
fljótastur?
Þessari spurningu er velt upp í
franska bílablaðinu Auto Plus. Og
ekki nóg með það, henni er einnig
svarað.
Tæknimenn blaðsins stefndu tug-
um bíla til æfingabrautarinnar við
Montlhery skammt frá París. Er
þar um að ræða aflagða kappakst-
ursbraut sem brúkuð er til reynslu-
aksturs hvers konar. Mæla skyldi
hröðun úr kyrrstöðu og þar til
numið var staðar eftir að kílómetr-
anum var náð.
Menn þurfa ekki að aka sportbíl-
um til að láta sér ekki leiðast því
smábílarnir reyndust glettilega
sprækir og fljótir í förum. Flestir
aðeins rétt ríflega 30 sekúndur.
Jafnir í fyrsta sæti urðu Audi A3
Sportback 1,5 TFSI 150 hestafla og
VW Golf 1,5 TSI, einnig 150 hest-
afla, en þeir voru 30,4 sekúndur að
leysa þrautina.
Fyrsti franski bíllinn, 130 hest-
afla Peugeot 308 1,2 PureTech, var
ekki langt undan með sínar 30,8
sekúndur. Listinn yfir fljótustu bíl-
ana varð annars sem hér segir, en í
hægri dálki er tíminn í sekúndum
sem það tók viðkomandi að ljúka
þrautinni og hestaflafjöldi viðkom-
andi bíls í sviga:
agas@mbl.is
Audi A3 fljótastur með verkið
Smábílar reyna með sér í hraðakstri
Hinn 150 hestafla
Audi A3 Sportback
leysti verkið af
hólmi á skemmst-
um tíma.
Brautartími í sek.
hestöfl sek.
Audi A3 Sportback
1,5 TFSI COD
150 30,4
VWGolf 1,5 TSI 150 30,4
Alfa Giulietta 1,4
MultiAir Turbo
150 30,5
Hyundai i30 1,4 T-GDi 140 30,5
Seat Leon 1,4 TSI ACT DSG 150 30,5
VWBjalla 1,4 TSI DSG7 150 30,5
BMW 116i Steptronic 136 30,6
Opel Astra 1,4 Turbo 150 30,6
Peugeot 308 1,2 PureTech 130 30,8
Renault Megane
1,2 TCe EDC
130 31,2
Citroën C4 1,2
PureTech EAT6
130 31,6
Mini Clubman Cooper 136 31,6
DS 4 1,2 PureTech 130 31,7
Hyundai Ioniq tvinnbíll 141 31,7
VWGolf 1,4 TSI DSG7 125 31,7
Opel Astra 1,4 Turbo 125 31,8
Mazda 3 2,0 SkyActiv-G 120 32,1
Seat Leon 1,0
EcoTSI DSG7
115 32,2
Toyota Auris 1,2 T 116 32,2
VWGolf 1,0 TSI 110 32,2
Seat Leon 1,2 TSI 110 32,3
Citroën C4 1,2 PureTech 110 32,4
Ford Focus 1,0 Ecoboost 125 32,4
Hyundai Ioniq Hybrid 141 32,4
Mercedes A 160 102 32,4
Honda Civic 1,0
i-VTEC CVT
129 32,5
Nissan Pulsar 1,2 DIG-T 115 32,5
Fiat Tipo 1,4 T-Jet 120 32,6
Audi A3 Sportback
1,0 TFSI
115 32,8
Volvo V40 T2 122 32,9
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Rúðuþurrkur,
rúðuvökvi og
bílaperur
á hálfvirði
hjá okkur í október
HAUSTT I L BOÐ
Hollensk
vetrar- og
heilsársdekk
á frábæru verði
Apollo Alnac 4G Winter – 175/65R14
– 38.800 kr. undir komið
Apollo Alnac 4G Allseason – 195/65R15
– 46.250 kr. undir komið
Apollo Alnac 4G Winter – 205/55R16
– 49.300 kr. undir komið
General Grabber
jeppa- og
jepplingadekk
á frábæru verði
General Grabber AT3 – 245/65R17
– 99.900 kr. undir komið
General Grabber AT3 – 265/70R17
– 104.800 kr. undir komið
General Grabber AT3 - LT285/70R17
– 149.900 kr. undir komið
DÆMIDÆMI
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) 200 Kópavogi | Sími 587 1400 |motorstilling.is