Morgunblaðið - 19.12.2017, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 9. D E S E M B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 298. tölublað 105. árgangur
Bjúgnakrækir kemur í kvöld
5
jolamjolk.is
dagar
til jóla
Hresstu upp á minnið !
SagaMemo
SÖGURNAR
GÆÐA ÆTT-
FRÆÐINA LÍFI JÓLAPOPP OG BOMBUR
ÍTARLEG ÚT-
TEKT Á OLÍS-
DEILD KVENNA
DIDDÚ OG DRENGIRNIR 33 HANDBOLTI ÍÞRÓTTIRSAGNAÞÆTTIR GUÐFINNU 12
Sigurður Bogi Sævarsson
Helgi Vífill Júlíusson
Fundur stóð enn seint í gærkvöldi
hjá Ríkissáttasemjara í kjaradeilu
flugvirkja hjá Icelandair og viðsemj-
enda. Engar fréttir var að hafa um
gang mála, en fyrir liggur þó að flug-
virkjar halda ekki lengur í fyrri
kröfu um 20% launahækkun enda
hafi forsendur í viðræðunum breyst
síðan sú krafa var uppi á borðum.
Hjá Icelandair reyna menn nú að
gera það besta úr annars erfiðum að-
stæðum. Verkfall flugvirkja leiðir til
þess að nokkrar vélar komast ekki í
loftið, en átta áttu þó að vera til taks
nú í morgunsárið og fara til Evrópu.
Yrði þeim þá beint til þeirra áfanga-
staða félagsins sem vinsælastir eru;
London, Kaupmannahafnar, Parísar
og Amsterdam svo nokkrir séu
nefndir.
Elvar Möller hjá greiningardeild
Arion banka segir að í ljósi sögu Ice-
landair Group sé hætt við að starf-
semin raskist verulega um skeið
vegna verkfalla starfsmanna.
„Frá árinu 2009 hafa flugvirkjar
að meðaltali boðað verkfall á 18 mán-
aða fresti,“ segir Elvar og tiltekur að
til skemmri tíma litið hafi verkföll
eins og þetta vafalaust áhrif á orð-
spor félagsins meðal viðskiptavina.
Þó beri að geta þess að verkföll séu
almennt nokkuð algeng í starfsemi
flugfélaga í heiminum. Því megi
velta fyrir sér hvort það hafi áhrif á
og dragi úr langtímáhrifum aðgerða
sem þessara. Elvar rifjar sömuleiðis
upp að árið 2010 voru sett lög á flug-
virkja, árið 2014 á flugmenn og sama
ár stefndi í lagasetningu á aðgerðir
flugvirkja en þá var verkfallið blásið
af. »4 og 18
Fundað í gærkvöldi og
átta vélar fljúga í dag
Flugvirkjaverkfall Icelandair Getur haft áhrif á orðspor
Alls hefur um 600 tonnum af
tindabikkju verið landað í höfnum
landsins á árinu en lóðskatan – eins
og tindabikkjan er nefnd – verður
víða á borðum í þessari viku og þá
sérstaklega á Þorláksmessu.
Hvergi eru stundaðar beinar
veiðar á skötu, en sjómenn fá hana
oft á öngla sína. Á fiskmörkuðum í
haust hefur gangverð fyrir skötu
verið 94 kr. kílóið og nokkuð er um
að fisksalar safni að sér skötu yfir
árið til þess að eiga í vikunni fyrir
jól en þá er salan jafnan mest. Að
gæða sér á skötu á Þorláksmessu
er siður úr kaþólskum sið á Íslandi
en er nú orðið veraldleg hefð og
tíska. »16
Morgunblaðið/Ernir
Skata Kæst börðin eru herramannsmatur
en margir kunna þó ekki að meta þau.
Skötuveislur eru
nú veraldleg tíska
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Við teljum að götuverðmæti þess-
ara fíkniefna sé um 400 milljónir
króna en eignirnar hátt í 200 millj-
ónir. Þetta er hlutfall sem við höfum
aldrei séð á Íslandi áður. Við höfum
lagt hald á einhverja tugi milljóna
áður en þetta eru fasteignir, lausafé,
hlutafé og ýmislegt annað,“ segir
Karl Steinar Valsson, fulltrúi Ís-
lands hjá Europol, og vísar í máli
sínu til umfangsmikillar aðgerðar
lögreglu sem leiddi til handtöku
þriggja pólskra karlmanna hér á
landi. Mennirnir voru handteknir í
aðgerð sérsveitar ríkislögreglu-
stjóra 12. desember síðastliðinn og
úrskurðaðir í gæsluvarðhald grunað-
ir um stórfelldan innflutning og
framleiðslu á fíkniefnum, fjársvik og
peningaþvætti.
Grímur Grímsson yfirlögreglu-
þjónn staðfestir við Morgunblaðið
að meðal eigna sem lagt var hald á
séu bréf í íslenskum fyrirtækjum.
„Það eru nokkur atriði við þetta
mál sem eru óvenjuleg og aðallega
það hversu mikið var tekið af pen-
ingum. Sérstaðan er þessi tenging á
milli fjárhagslegu rannsóknarinnar
og fíkniefnainnflutningsins. Við er-
um að reyna að horfa á báða hluti
samtímis og elta peningana,“ segir
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lög-
reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu,
en samkvæmt skýrslu greiningar-
deildar ríkislögreglustjóra frá því í
haust eru starfandi um tíu skipu-
lagðir glæpahópar hér á landi.
„Það sem við verðum að spyrja
okkur er: Hvers vegna kusu þeir að
vera með sína brotastarfsemi á Ís-
landi og hvernig ætlum við að bregð-
ast við því?“ segir Karl.
Morgunblaðið/Eggert
Blaðamannafundur Lögreglan boðaði til fundar klukkan 16 í gær þar sem greint var frá alþjóðlegu lögregluaðgerðinni sem fram fór fyrir skemmstu.
Aldrei sést hér á landi
Þrír menn grunaðir um stórfelld fíkniefnabrot og peningaþvætti Lögreglan
kyrrsetti fasteignir og lagði hald á lausafé, hlutabréf og bíla að verðmæti 200 m.kr.
MEignarhaldið einstakt »2
Cyril Rama-
phosa, fyrrver-
andi aðalræðis-
maður Íslands í
Jóhannesarborg,
var í gær kjörinn
leiðtogi Afríska
þjóðarráðsins,
ANC. Þykir hann
líklegur til að
taka við embætti
forseta Suður-
Afríku af Jacob Zuma þegar kosið
verður þar árið 2019.
Ramaphosa hlaut alls 2.440 at-
kvæði en mótherji hans, Nkosazana
Dlamini-Zuma, fyrrverandi eigin-
kona Jacobs Zuma, fékk 2.261 at-
kvæði í leiðtogakjöri ANC.
Fv. aðalræðismaður
Íslands leiðtogi ANC
Cyril
Ramaphosa