Morgunblaðið - 19.12.2017, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017
Eitt kort
34 vötn
7.900 kr
Frelsi til að veiða!
00000
www.veidikortid.is
www.veidikortid.is
JÓLAGJÖF
VEIÐIMANNSINS!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
FRÉTTASKÝRING
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Þrír pólskir karlmenn hafa verið úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald hér á
landi grunaðir um að standa fyrir
stórfelldum innflutningi og fram-
leiðslu á fíkniefnum, fjársvikum og
peningaþvætti. Mennirnir voru
handteknir í kjölfar sameiginlegrar
aðgerðar lögreglunnar, tollstjóra og
hollenskra og pólskra yfirvalda, auk
Europol og Eurojust.
Mennirnir þrír voru handteknir í
aðgerð sérsveitar ríkislögreglu-
stjóra klukkan sex að morgni 12.
desember sl., en alls voru 20 manns
handteknir þann dag í samræmdum
aðgerðum lögregluyfirvalda á Ís-
landi, Póllandi og Hollandi. Íslenska
lögreglan lagði hald á fimm bíla,
innistæður í bönkum og eignarhluti
í fyrirtækjum ásamt því að kyrr-
setja fasteignir í eigu hinna hand-
teknu.
Grímur Grímsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn segir í samtali við
Morgunblaðið að grunur leiki á að
kyrrsettu eignirnar og haldlagt
lausafé sé allt tilkomið vegna gróða
af ólöglegri starfsemi. Aðspurður
segir hann að um sé að ræða íslensk
fyrirtæki sem mennirnir áttu hlut í.
Spurður hvenær eftirlit með mönn-
unum þremur hafi hafist hér á landi
segir Grímur það hafa verið haustið
2016.
„Þá var fundað með pólskum lög-
regluyfirvöldum, en íslenskir lög-
reglustjórar og tollstjórinn hér
funduðu með pólskum lögreglu-
stjóra hjá Europol í Haag.“ Grímur
vildi ekki svara því um hvers konar
eftirlitsaðgerðir væri að ræða. Þá
segir hann lögregluyfirvöld í lönd-
unum þremur ánægð með gott sam-
starf.
Í takt við skýrslu deildar RLS
Lögreglurannsókn í tengslum við
málið hófst í Póllandi árið 2014.
Karl Steinar Valsson, fulltrúi Ís-
lands hjá Europol, hefur unnið að
rannsókninni á undanförnum árum
og verið lögreglu- og tollyfirvöldum
til aðstoðar. „Það sem Europol og
Eurojust gera er í raun að aðstoða
við rannsóknina eins og kostur er.
Það eru auðvitað ýmsar erlendar
tengingar sem þarna koma upp. Ef
þessar stofnanir ákveða að veita að-
stoð sína þá er búin til umgjörð til
að vera í alþjóðlegum samskiptum.
Þetta er allt meira og minna gert af
Europol og ákveðin lagaatriði sem
eru skoðuð af Eurojust,“ segir Karl.
Hann segir þetta mál sérstakt að
mörgu leyti, en brotastarfsemin er
algjörlega í takt við skýrslu grein-
ingardeildar ríkislögreglustjóra frá
því í haust. „Þessi brotahópur og
það sem hann er grunaður um, þ.e.
peningaþvætti, svikastarfsemi og
fíkniefnabrot, þetta er það sem hef-
ur verið bent á og er mest áberandi
í Evrópu í dag – hópar sem eru með
margþætta brotastarfsemi.“
Fjárfest í fjölda fyrirtækja
Spurður um sérstöðu þessa máls
bendir Karl á hversu mikið af eign-
um lögreglan leggur hald á.
„Þetta hefur aldrei gerst áður.
Við teljum að götuverðmæti þessara
fíkniefna sé um 400 milljónir króna
en eignirnar hátt í 200 milljónir.
Þetta er hlutfall sem við höfum aldr-
ei séð á Íslandi áður. Við höfum lagt
hald á einhverja tugi milljóna áður,
en þetta eru fasteignir, lausafé,
hlutafé og ýmislegt annað. Hlutaféð
var meira að segja hærra á sínum
tíma en það er núna,“ bendir Karl á.
Aðspurður segir hann að um sé að
ræða bæði fyrirtæki sem hinir
handteknu hafi stofnað til hér og ís-
lensk fyrirtæki sem voru fyrir og
þeir fjárfestu í. Karl segir einnig að
Europol hafi verið mjög ánægt með
hvernig íslensk yfirvöld unnu fjár-
málarannsóknina samhliða annarri
rannsókn málsins.
Tíu aðrir svipaðir hópar
Spurður hvort líklegt sé að finna
megi aðra starfsemi í líkingu við
þessa hér á landi kveður Karl já við.
„Já, ég myndi segja það. Grein-
ingardeild RLS hefur bent á að það
sé í gangi og þeir telja að það séu
tíu skipulagðir svona hópar á Ís-
landi. Hvort þeir séu allir nákvæm-
lega á þessu sviði má velta fyrir sér.
Staðreyndin er hins vegar sú að það
er nauðsynlegt fyrir íslensk yfirvöld
að hafa það í huga að brotastarf-
semi, sem tengist Íslandi með ein-
hverjum hætti, getur verið marg-
vísleg. Það sem við verðum að
spyrja okkur er: Hvers vegna kusu
þeir að vera með sína brotastarf-
semi á Íslandi og hvernig ætlum við
að bregðast við því?“
Eignarhaldið einstakt á Íslandi
Þrír pólskir menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi
Lögreglan lagði hald á eignir fyrir 200 m.kr. Höfðu fjárfest í fasteignum og íslenskum fyrirtækjum
Morgunblaðið/Eggert
Lögreglan Karl Steinar Valsson (t.v.) og Grímur Grímsson greina fjölmiðlamönnum frá umfangi rannsóknarinnar sem teygir sig til þriggja landa Evrópu.
Umfangsmikil lögregluaðgerð
Lögreglan lagði hald á:
Um 90 starfsmenn lögreglu
og tollgæslu tóku þátt í
aðgerðunum hérlendis
3 pólskir menn handteknir
12. desember
Eignir fyrir hátt
í 200 miljónir
króna
MDMA duft
sem hefði mátt
gera 26 þúsund
e-töflur úr
Amfetamínbasa
sem hefði mátt
framleiða úr
50-80 kg
af amfetamíni
Á blaðamannafundinum í gær
sagði Grímur Grímsson yfirlög-
regluþjónn að hann teldi inn-
flutning á amfetamínbasa gefa
vísbendingar um framleiðslu á
amfetamíni á Íslandi. Slíkur
framleiðslustaður væri hins
vegar ófundinn. Mikið magn af
amfetamínbasa hefur verið flutt
inn til Íslands á þessu ári, en í
ágúst sl. lagði lögreglan hald á
1,3 lítra af amfetamínbasa sem
kom til landsins með Norrænu.
Fjórir pólskir menn voru þá
ákærðir vegna málsins.
Í október voru einnig tveir
pólskir ríkisborgarar handteknir
grunaðir um að hafa smyglað 11
lítrum af amfetamínbasa með
Norrænu. Í apríl á þessu ári voru
tveir menn handteknir með þrjú
kíló af MDMA-dufti í fórum sín-
um og voru þeir dæmdir í þess-
um mánuði til fjögurra ára fang-
elsisvistar. Úr duftinu hefði
verið hægt að framleiða 26 þús-
und e-töflur. Á blaðamanna-
fundinum var Grímur spurður
hvort málin þrjú tengdust þeim
handtökum sem áttu sér stað í
síðustu viku en hann vildi ekki
staðfesta það.
Efnin líklega
framleidd
hér á landi
FRAMLEIÐSLUSTAÐUR
FÍKNIEFNANNA ÓFUNDINN
Skip Mikið magn fíkniefna hefur
komið til landsins með Norrænu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg