Morgunblaðið - 19.12.2017, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.12.2017, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Stýrðu birtunni heima hjá þér MYRKVA GLUGGATJÖLD Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is 19. desember 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 105.33 105.83 105.58 Sterlingspund 141.29 141.97 141.63 Kanadadalur 82.55 83.03 82.79 Dönsk króna 16.688 16.786 16.737 Norsk króna 12.712 12.786 12.749 Sænsk króna 12.496 12.57 12.533 Svissn. franki 106.52 107.12 106.82 Japanskt jen 0.9386 0.944 0.9413 SDR 148.87 149.75 149.31 Evra 124.25 124.95 124.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.4342 Hrávöruverð Gull 1258.65 ($/únsa) Ál 2035.5 ($/tonn) LME Hráolía 63.39 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Evrópusam- bandið hefur hafið rannsókn á skatt- greiðslum sænska stórfyrirtækisins IKEA. Með rann- sókninni hyggst framkvæmdastjórn ESB kanna nánar notkun IKEA á hol- lensku dótturfélagi í þeim meinta til- gangi að draga úr skattlagningu á tekjum stórverslana víða um heim. Málið er hið umfangsmesta af þessari gerð sem ESB hefur farið í gagnvart alþjóðlegu evrópsku stórfyrirtæki, að því er fram kemur í frétt AFP, og kemur í kjölfar sambærilegra rannsókna sam- bandsins á bandarísku risafyrirtækj- unum Apple, Amazon og McDonald’s. ESB hefur ekki gefið upp um hve háa fjárhæð er að tefla en samkvæmt skýrslu Græningja til Evrópuþingsins kann fjár- hæðin að nema um milljarði evra á ár- unum 2009 til 2014. ESB með skattgreiðslur IKEA til rannsóknar STUTT BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Gengi hlutabréfa Icelandair Group lækkaði um 3% í gær. Rekja má lækkunina til þess að flugvirkjar félagsins fóru í verkfall á sunnudag. Undanfarinn mánuð hafa hlutabréf félagsins lækkað um 11%. Sveinn Þórarinsson, hlutabréfa- greinandi hjá Hagfræðideild Lands- bankans, rekur lækkunina undan- farið til þess fjárfestar hafi haft áhyggjur af því að blásið yrði til verkfalls. „Áhyggjurnar hafa byggst upp hægt og rólega,“ segir hann. Elvar Möller, hlutabréfagrein- andi hjá greiningardeild Arion banka, segir að í ljósi sögu Icelanda- ir Group sé hætt við að starfsemin raskist verulega um skeið vegna verkfalla starfsmanna. „Frá árinu 2009 hafa flugvirkjar að meðaltali boðað verkfall á 18 mánaða fresti,“ segir hann. Verkföll algeng í flugi Sveinn segir að verkföllum fylgi orðsporsáhætta fyrir Icelandair. „Um helmingur farþega Icelandair eru erlendir ferðamenn sem fljúga yfir Atlantshafið og millilenda hér á leið sinni á áfangastað,“ segir hann. Elvar nefnir að til skamms tíma hafi verkföll líkt og þessi vafalaust áhrif á orðspor félagsins meðal við- skiptavina, en nefnir sömuleiðis að verkföll séu almennt nokkuð algeng meðal flugfélaga í heiminum. Því megi velta fyrir sér hvort það hafi áhrif á og dragi úr langtímáhrifum aðgerða sem þessara. Aðspurður hvaða afleiðingar það geti haft að verkfallið dragist á langinn, segir Elvar að líta megi til ársins 2014 sem dæmis en þá fóru flugmenn félagsins í verkfall. „Þá varð að fella niður 157 flug og breyta bókunum hjá 22 þúsund far- þegum. Tekjutap og beinn kostn- aður Icelandair Group vegna þessa nam um 3,5 milljónum dollara eða um 370 milljónum króna á gengi dagsins í dag. Til samanburðar stefnir Icelandair Group á að EBITDA félagsins verði 165-175 milljónir dollara í ár,“ segir hann. Rétt er að vekja athygli á að verk- fall flugmanna árið 2014 byggðist á yfirvinnubanni. Aftur á móti er verkfall flugvirkja ótímabundið. Sveinn bendir á að flugmenn og flugfreyjur félagsins séu líka með lausa samninga og fari þau einnig í verkfall gæti það verið kostnaðar- samt fyrir félagið. Lög sett á verkföll Elvar rifjar upp að frá árinu 2010 hafi nokkrum sinnum verið sett lög á verkföll starfsmanna Icelandair. „Árið 2010 voru sett lög á flugvirkja, árið 2014 á flugmenn og sama ár stefndi í lagasetningu á aðgerðir flugvirkja en þá var hætt við fyr- irhugað verkfall,“ segir hann. Þrátt fyrir að félagið hafi lækkað um 37% það sem af er ári er gengið ekki í lægsta gildi ársins, en það er nú 14 krónur á hlut. Elvar segir að á árinu hafi gengið sveiflast frá því að vera 13 til 16 krónur á hlut. „Gengi hefur fundið stuðning í 13 og átt erf- itt með að fara upp fyrir 16,“ segir hann og nefnir að frá því flugvirkjar boðuðu til verkfalls 17. desember síðastliðinn hafi markaðsvirði fé- lagsins lækkað um rúma fimm millj- arða króna. Sveinn segir að framtíðarhorfur félagsins séu betri nú en við upphaf árs en samt hafi fjárfestar ekki treyst sér til að „hoppa á vagninn“. Icelandair lækkaði um fimm milljarða frá boðun verkfalls Morgunblaðið/Árni Sæberg Hlutabréf Framtíðarhorfur Icelandair eru betri nú en við upphaf árs en samt hafa fjárfestar ekki treyst sér til að „hoppa á vagninn“, segir greinandi. Tapaði 370 milljónum á verkfalli 2014 » Árið 2014 tapaði Icelandair Group 3,5 milljónum dollara eða um 370 milljónum vegna verkfalls flugmanna. » Rétt er að vekja athygli á að verkfall flugmanna árið 2014 byggðist á yfirvinnubanni. » Aftur á móti er verkfall flug- virkja sem hófst á sunnudag ótímabundið.  Óvíst um langtímaáhrif á orðspor flugfélagsins, segir sérfræðingur í hlutabréfum Gengi hlutabréfa Icelandair Group 40 30 20 10 0 2013 2014 2015 2016 2017 2.1. 2013 - 18.12. 2017 8,28 14,1 Heimild: NasdaqOMX 28.4. 2016 38,9 Sameining Nýherja við dótturfélög- in TM Software og Applicon mun verða að veruleika hinn 5. janúar næstkomandi, en félagið greindi upprunalega frá því í afkomutilkynn- ingu með uppgjöri þriðja ársfjórð- ungs að sameiningin stæði fyrir dyr- um. Á sama tíma verður sagt frá því undir hvaða nafni sameinað fyrir- tæki mun starfa. Tempo áfram sjálfstætt Dótturfyrirtækið Tempo, sem Ný- herji hyggst selja um helmingshlut í á næstu misserum, mun áfram starfa sem sjálfstætt félag. Eins og fram hefur komið er markmið Nýherja að selja verulegan eignarhlut í Tempo og fá að félaginu samstarfsaðila með reynslu og þekkingu í uppbyggingu á alþjóðlegri hugbúnaðarstarfsemi og styðja þannig við vöxt þess og verðmætasköpun. Finnur Oddsson forstjóri Nýherja segir í samtali við Morgunblaðið að sameining Nýherja og dótturfélaga muni leiða til einföldunar og hagræð- is í rekstri, með það að markmiði að veita viðskiptavinum heildstæðari lausnaframboð og betri þjónustu en áður, allt á einum stað, hvort sem um er að ræða sérhæfðan hugbúnað, vél- búnað eða tæknirekstur. Ársniðurstaða birt í lok janúar Heildarhagnaður Nýherja nam á fyrstu níu mánuðum ársins 266 millj- ónum króna en sala á vöru og þjón- ustu nam liðlega 11 milljörðum króna á sama tímabili. Félagið birtir afkomu fjórða árs- fjórðungs 2017 þann 31. janúar næstkomandi. tobj@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Nýherji Sameiningin er gerð til ein- földunar og hagræðis. Sameining hjá Nýherja 5. janúar  Greint frá nafni sameinaðs fyrir- tækis á sama tíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.