Morgunblaðið - 19.12.2017, Page 21

Morgunblaðið - 19.12.2017, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017 Gusugangur Vatn gusast frá bíl á Kringlumýrarbraut í rigningu sem var víða á landinu gær. Spáð er úrkomu næstu daga, skúrum, éljum og síðan snjókomu í flestum landshlutum á laugardag. Hari Undanfarna daga hefur verið að hlað- ast upp spenna þar sem ekkert gekk í að koma á nýjum kjarasamningi á milli flugvirkja hjá Icelandair og SA. Verkfall flugvirkja hófst kl. 6 að morgni 17. desember aðeins einni viku fyrir jól. Þetta verkfall er skýrt dæmi um það hve verk- föll geta bitnað harkalega á þriðja aðila sem hefur enga að- komu að kjaradeilunni. Verk- fallið er að sjálfsögðu mjög bagalegt fyrir Icelandair en ekki síður fyrir ferðaþjón- ustuna, innlenda og erlenda ferðamenn og já bara íslenskar fjölskyldur, námsmenn og al- menning sem fyllir allar flug- vélar og er ýmist að fljúga til sinna nánustu hvort heldur sem er erlendis eða hér heima. Það er ótrúlega erfitt að horfa á tímasetningu verkfallsins sem er sjö dögum fyrir jól og ætla að láta eins og það sé bara eðlilegt. Það má telja fullvíst að lög- gjafinn mun ekki bíða í marga daga með að setja lög á verk- fall flugvirkja því hagsmun- irnir sem eru undir eru það miklir fyrir utan það sem áður var sagt um þessa ótrúlegu tímasetningu. Það er einfald- lega ekki hægt að heimila 300 manna stétt að valda ómældu tjóni hjá þeirri atvinnugrein uppi eru nú í kjaradeilu flug- virkja hjá Icelandair og SA. Í þriðja lagi væri ráðlegt að gera meiri kröfur til vandaðra vinnubragða þeirra stétta sem líklegar eru til verkfalla eða þegar reikna má með miklu tjóni ef til verkfalla þeirra kæmi. Hér undir mætti t.d. setja alla aðila sem tengjast fluginu. Hægt væri t.d. að gera kröfur um að slík stéttarfélög byrji viðræður sínar fyrr og fela ríkissáttasemjara að skipuleggja og stýra samn- ingafundum alveg frá upphafi. Í þessu sambandi má geta þess að á Norðurlöndunum ræða samningsaðilar stöðugt saman og hittast þannig og skiptast á skoðunum og gögnum, líka á friðarskyldutímanum. Þannig væri hægt að koma á ótíma- bundnum sístarfandi sam- starfsnefndum eða verkefn- isstjórn sem skipaðar væru fulltrúum samningsaðila sem hittist reglulega og skiptist á skoðunum og leggi línur til framtíðar. Rétt er að taka fram að ég er alls ekki talsmaður þess að skerða eða takmarka hinn helga rétt stéttarfélaga til verkfalla heldur áhugasamur um góð vinnubrögð við gerð kjarasamninga þar sem reynt er að ná sem bestri niðurstöðu fyrir samningsaðila og þá helst án þess að aðrir þurfi að bíða tjón í leiðinni. hendi ríkissáttasemjara á fyrstu stigum samningaferl- isins og að ákvæði um viðræ- ðuáætlun væru góð og gild en það vantaði þetta spark í rass- inn strax í byrjun til að aðilar byrjuðu að ræða saman af krafti og festu. Í öðru lagi er nauðsynlegt að lögfesta heimild til handa rík- issáttasemjara til að fresta fyr- irhuguðu sem og byrjuðu verk- falli um einhvern tiltekinn tíma. Ísland sker sig úr að þessu leyti frá hinum lönd- unum á Norðurlöndum því rík- issáttasemjarar þar geta frest- að verkföllum. Í Noregi mega þeir fresta verkfalli um allt að 14 daga og það sama á við um Svíþjóð. Ríkissáttasemjarinn í Finnlandi getur frestað verk- falli á almenna markaðnum um 7 daga á almenna vinnumark- aðnum og um 7 daga til við- bótar hjá opinberum starfs- mönnum. Í Danmörku má fresta verkföllum í tvígang um 14 daga í hvort skipti. Slík heimild til handa rík- issáttasemjara hefði komið sér afar vel við þær aðstæður sem sem halar inn mestu gjaldeyr- istekjum allra atvinnugreina á Íslandi. En hvað er hægt að gera til þess að koma í veg fyrir eða að minnsta kosti til að minnka líkurnar á að slík verkföll, sem hafa svona mikil áhrif á þriðja aðila, þurfi að koma til. Síðastliðið vor gerði ég rann- sókn á þessu þegar ég skrifaði meistararitgerð við Háskóla Íslands sem ber heitið „Getur bætt verklag við gerð kjara- samninga fækkað verkföllum og komið í veg fyrir tjón vegna þeirra?“ Það er a.m.k. þrennt sem hægt væri að gera til þess að minnka líkurnar á slíkum verkföllum. Í fyrsta lagi þarf að auka vægi ríkissáttasemjara í byrj- un samningaviðræðna og veita honum aukið verkstjórnarvald allt frá upphafi þeirra. Veita honum vald til þess að kalla aðila á fundi og skikka þá til þess að vera undirbúna með gögn og kröfur tímanlega. Í spurningakönnun sem ég lagði fyrir nokkra aðila sem allir áttu það sameiginlegt að koma að gerð kjarasamninga úr sitt hvorri áttinni, ýmist sem fulltrúar SA, almennra stétt- arfélaga eða opinberra stétt- arfélaga, kom í ljós að þeim þótti öllum vanta verkstjórn af Eftir Jón Tryggva Jóhannsson »Nauðsynlegt er að veita ríkis- sáttasemjara aukin völd bæði í aðkomu að kjarasamnings- viðræðum í byrjun sem og heimild til þess að fresta verkfalli. Jón Tryggvi Jóhannsson Höfundur er lögfræðingur og BS í mannauðsstjórnun. jon.tryggvi.johanns- son@gmail.com Var verkfall flugvirkja óumflýjanlegt? Þann 23. nóvember, daginn fyrir lokafrest sem ráðherra hafði gefið stjórn Pressunnar til að halda hluthafafund samkvæmt réttmætri kröfu meirihluta hluthafa pressunnar, sendi Björn Ingi Hrafnsson mér hótun um að ef ný stjórn yrði kosin í Pressunni myndi hann fara í fjölmiðla- herferð til að rægja mig og Róbert Wessmann. Þetta var reyndar ekki í fyrsta sinn sem Björn Ingi sendi mér hótun um slíkt en í þetta skiptið var þetta nánar útlistað í löngu skriflegu máli. Þau greinaskrif sem hann stendur í núna koma mér því ekki á óvart, enda maðurinn í mínum huga, eftir kynni mín af honum sem stjórnanda Pressunnar, siðlausasti einstaklingur sem ég hef haft afskipti af. Það kemur mér hins vegar á óvart að Morgunblaðið og mbl.is hafi ákveðið að verða birtingarform einhliða níðgreina Björns Inga. Pressumál af minni hálfu er ekki flókið mál. Ég og fleiri töpuðum talsverðum fjármunum á félaginu og ekkert sem við getum gert í því nema séð eftir þátttökunni. Félagið var ógjaldfært og þegar sú er staðan er rétt að fá opinberan sýsl- unarmann að málum til að gæta þess að rétt sé að öllu staðið. Málinu hefur nú verið komið í þann rétta farveg en þeir sem hafa hagsmuni af því að ekki sé rétt að öllu staðið geta orðið ósáttir við slíkt. Sú er því miður staðan nú en vonandi ber skiptastjóri gæfu til að finna út úr þeim málum á réttmætan hátt. Ég nenni hins vegar ekki að elta ólar við Björn Inga í fjölmiðlum og óska honum gleðilegrar jólahátíðar. Árni Harðarson Yfirlýsing vegna greinaskrifa Björns Inga Hrafnssonar Höfundur er lögfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.