Morgunblaðið - 19.12.2017, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017
Styrmir Gunn-
arsson, fyrrverandi
ritstjóri Morgunblaðs-
ins, er einn þeirra
áhrifamanna, sem hafa
komist á þá skoðun og
opinberlega rökstutt
það sjónarmið sitt að
glapræði sé að gera
frekari mannvirki á
miðhálendi Íslands
vegna gildis þess sem
einstæðs náttúrufyrirbrigðis á
heimsvísu, sem sé ósnortið með
svipað efnahagslegt gildi fyrir
ímynd landsins og ferðaþjónustuna
eins og fiskimiðin í kringum landið.
Á sama tíma og stofnun mið-
hálendisþjóðgarðs hefur verið í
stjórnarsáttmála tveggja síðustu
ríkisstjórna eru hins vegar enn á
ferli nátttröll fyrri tíma, sem boða
fagnaðarerindi þess að gera svo-
nefnd „mannvirkjabelti“ hrað-
brauta, virkjana og háspennulína
þvers og kruss um hálendið.
Í grein Guðjóns Sigurbjartssonar
um dýrð hálendisvega í Morgun-
blaðinu eru viðhafðar einhverjar
stórkostlegustu reiknikúnstir sem
lengi hafa sést á prenti um gróða-
dýrð slíkra vega, og því haldið
fram að vegna gríðarlegrar arðsemi
verði að gefa „hópi áhugasamra ... í
einkaframkvæmd“ veiðileyfi á lagn-
ingu hálendisvega, sem verði „opnir
nánast allt árið.“ Þá er skautað
framhjá því að á miðhálendinu eru
mestu snjóalög og illviðri landsins
enda vegastæðin í 600 til 800 metra
hæð yfir sjávarmáli.
Skondnast er þó að sjá
tölurnar um styttingu
vegalengda, sem eru
undirstaða stórbrot-
inna talna um gróða
„hóps áhugasamra“.
Greinarhöfundur telur
að mestur verði ábat-
inn á leiðinni frá
Reykjavík til Egils-
staða og að 60 prósent
umferðar á milli þess-
ara staða muni fara
um nýjan hálendisveg
á milli þeirra, sem stytti leiðina um
256 kílómetra, eða sem svarar til
þriggja klukkustunda aksturs.
Styttingin verði á við það að fólk á
leið milli Reykjavíkur og Egils-
staða sleppi við að aka svipaða
vegalengd og er milli Egilsstaða og
Akureyrar eða á milli Reykjavíkur
og Blönduóss. En hámark draum-
óranna og skýjaborganna er þó
það, að landleiðin milli Egilsstaða
og Reykjavíkur geti orðið 4 kíló-
metrum styttri en stysta flugleiðin
á milli þessara staða. Halló! Jú,
stysta flugleið milli Reykjavíkur og
Egilsstaða er og verður 378 kíló-
metrar. En núna er stysta aksturs-
leiðin um Öxi 630 kílómetrar og
Öxi er mjög stuttur fjallvegur og
mun lægri en hálendisleiðirnar. En
kílómetradæmi Guðjóns kemur
svona út: 630 mínus 256 eru 374
kílómetra landleið, en stysta flug-
leið er 378. Til þess að dæmið
gangi upp verður að færa Egils-
staði um fjóra kílómetra til suð-
vesturs og leggja leiðina eins og
með reglustiku alla leið frá Reykja-
vík til Egilsstaða sömu leið og flog-
in er yfir Þingvelli, fjalllendið norð-
an Laugarvatns, meðfram
Kerlingarfjöllum, um Dyngjuháls
(1000 metra yfir sjó), tugi kíló-
metra norðan Kárahnjúka o.s.frv.
Ef Guðjón segist hafa reiknað með
norðurhluta hringvegarins, 650 km,
í samanburðinum, verður drauma-
leið hans samt aðeins 394 kílómetr-
ar, – örlitlu styttri en leiðin milli
Reykjavíkur og Akureyrar er nú,
og það þarf ekki nema líta snöggt á
landakort til að sjá að það er fjarri
öllu lagi að hægt sé að finna svona
stutta vegalengd þess hugar-
flugsvegar sem Guðjón telur verða
fjölfarnastan. Tillaga Guðjóns varð-
andi þessa lykilleið gerir að vísu
ráð fyrir nýjum upphleyptum hrað-
vegi frá Vatnsfellsvirkjun til Kára-
hnjúka. En þar með verður fullyrð-
ingin um 256 km styttingu enn
fjarstæðari. Frá Reykjavík til
Vatnsfells eru núna 168 kílómetrar
og frá Kárahnjúkum til Egilsstaða
100 kílómetrar, eða 268 kílómetrar
samtals. Til þess að dæmi Guðjóns
um 256 km styttingu gangi upp má
hálendisvegurinn milli Vatnsfells og
Kárahnjúka ekki verða meira en
106 kílómetra langur, (120 km ef
miðað er við norðurleið þjóðvegar
1,) en loftlínan á milli Vatnsfells og
Kárahnjúka er miklu lengri, um
174 km! Og loftlínan liggur yfir
sjálfa Bárðarbungu! Guðjón telur
til kosta þess að allir hans skýja-
borga-hálendisvegir verði lagðir, að
það muni spara viðhald. Alveg ný
kenning: Því lengri sem vegir
verða, því minna viðhald. Ekki er
minnst á að byggja þurfi upp neina
„innviði“ í sambandi við drauma-
leiðirnar, svo sem gisti- og þjón-
ustustaði og tækjakost til viðhalds,
snjómoksturs, leitar og björgunar.
Því síður er minnst á stóra atriðið,
sem hinn glöggi fyrrverandi Morg-
unblaðsritstjóri hefur áttað sig á,
ómetanlegt gildi kyrrðar, friðar
ósnortins víðernis hins einstæða
miðhálendis, sem forsenda þess
grundvallaratriðis að geta dregið
erlenda aðdáendur Íslands, lands
og þjóðar, til landsins.
Getur landleið milli staða
orðið styttri en stysta loftleið?
Eftir Ómar
Ragnarsson »Hámark draum-
óranna er að land-
leiðin milli Egilsstaða
og Reykjavíkur geti
orðið styttri en stysta
flugleið milli þessara
staða.
Ómar Ragnarsson
Höfundur er áhugamaður um
náttúru Íslands og jafnrétti
borinna og óborinna kynslóða.
omarr@ruv.is
Það þarf ekki nána
skoðun til að sjá hve
mörgum mannslífum,
tjóni og hörmungum
bókstafstrúarmenn
hinna ýmsu trúar-
bragða hafa valdið í
heiminum. Í þeirra
huga er trúin, og
virðingin og sam-
kenndin sem hún
kann að boða löngu
hætt að skipta máli en bókstafur-
inn er túlkaður samkvæmt þeirra
eigin kreddum og þröngsýni. Ég
vil ganga lengra og segja að því
miður leynist bókstafstrúarmað-
urinn víða meðal okkar þó að hann
valdi allajafna ekki manntjóni.
Ofsatrúarmenn eru stundum kall-
aðir talíbanar með tilvísan í öfga-
hóp íslamista í Afganistan, en bók-
stafstrú er því miður ekki
einskorðuð við þá.
Lög eru hugsuð til að búa til
góðar samskiptavenjur manna á
milli til að allir þegnar geti búið
við öryggi til eignarréttar, tján-
ingar, skoðana, trúar eða hvers
annars sem menn telja til hags-
bóta í mannlegu samfélagi. Lög
eru sett af fólki fyrir fólk, ekki
gegn fólki. Lög eru sett á
lýðræðislegan hátt á Alþingi að
framangengnum umræðum sem
endurspegla tilgang og markmið
laganna. Síðan eru settar reglu-
gerðir við lögin til að hnykkja á
einstökum þáttum þeirra til að þau
geti orðið grundvöllur sakfellingar
þeirra sem brjóta, gott og vel.
En nú ber svo við að skyndilega
er reglugerðin og eigin túlkanir
orðnar aðalatriði, tilgangur laga
og markmið skipta minna máli,
bókstafstrúin er allsráðandi. Þarna
skríða talíbanarnir fram og veifa
þeim bókstaf sem hentar þeim og
svo apa embættismenn hinna
ýmsu eftirlitsstofnana ríkisins eftir
og hrifsa smásaman til sín völdin á
grundvelli reglugerðar og/eða
starfsreglna sem þeir setja sjálfir
með vísan í lögin og eftirlitsiðn-
aðurinn tútnar út. Engu skiptir þó
að tilgangur og hugsun laganna
hafi verið allt önnur í upphafi og
framfylgd þeirra í mörgum til-
fellum afskræming.
Þetta er auðvitað fulldökk mynd
sem ég dreg hér upp og sem betur
fer eru reglugerðir og stjórnvalds-
ákvarðanir oftast í takt við tilgang
laga, en alltaf leynast talíbanar
innanum og valda skaða.
En það er ekki bara í lagaum-
hverfinu eða stjórnkerfinu sem
bókstafstrúin blossar upp. Bók-
stafstrúarmaðurinn gengur um
meðal samborgara sinna sæll og
glaður í sinni bókstafstrú og í heil-
agri vandlætingu á skoðunum ann-
arra. Þá gildir einu hvort sannfær-
ingin snýr að stjórnmála-
skoðunum, barnaskemmtunum,
stóriðju, flugvallar-
málinu, náttúruvernd,
refaveiðum, katta-
haldi, svo fátt eitt sé
nefnt.
Þar eiga skoðanir
annarra engan rétt á
sér og sjálfsagt að ata
þær auri og svívirð-
ingum enda sannleik-
urinn og rétttrún-
aðurinn hans eigin.
Það umburðarlyndi
og virðing sem
mamma kenndi í æsku er að
mestu gleymd.
Talíbaninn er svo sjálfhverfur
og rétthár að honum finnst sífellt
á sér brotið, tré nágrannans er of
hátt, sjónvarpsdagskráin léleg,
öskukarlinn í alltof góðu skapi,
fatlaðir fá bestu stæðin, skattarnir
of háir, annarra of lágir, og svo
illu heilli er Sigmundur Davíð enn
á þingi (um þessa hörmung virð-
ast margir talíbanar sammála).
Því miður virðist orðræða ís-
lenskra talíbana eiga greiðastan
aðgang í fjölmiðla að ég tali nú
ekki um netmiðlana. Það virðist
talið vænlegast til árangurs að
slengja fram sleggjudómum, út-
úrsnúningum og hálfsannleik og
sá sem mestum árangri nær í
slíkri list fær mesta „lækið“.
Auðvitað er þetta ekki svona
svart og ég hef reyndar mun meiri
trú á mannkyninu en ætla mætti
af þessari grein og held raunar að
heimurinn fari stöðugt batnandi
þrátt fyrir allt. Ég heyrði Vigdísi
Finnbogadóttur lýsa því í viðtali
að einn af göllum Íslendinga væri
að þá skorti kennslu og kunnáttu í
rökræðu og þar er ég henni inni-
lega sammála. Mikið skelfing væri
nú gaman að fólk færi að tala
saman af smá skynsemi og ræða
málin frá öllum hliðum, velta upp
sjónarmiðum og sameiginlegum
lausnum og hætti að láta talib-
anann byrgja sér sýn.
En til þess þarf hver og einn að
líta í eigin barm og reyna að sjá
málin frá fleiri hliðum og umfram
allt að bera virðingu fyrir sjálfum
sér og náunga sínum, ná valdi á
talíbananum í sjálfum sér. Ég hef
oft staðið sjálfan mig að því að
vera talíbani, en er að vinna í því.
Ert þú talíbani?
Ert þú talíbani?
Eftir Sigurð
Ragnarsson
Sigurður Ragnarsson
ȃg hef reyndar mun
meiri trú á mann-
kyninu en ætla mætti af
þessari grein og held
raunar að heimurinn
fari stöðugt batnandi
þrátt fyrir allt.
Höfundur er framkvæmdastjóri
á Egilsstöðum.
sigurdur@manatolvur.is
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Ljósmyndir
Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli