Morgunblaðið - 19.12.2017, Blaðsíða 28
28 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017
Ég er ekki mikið af-mælisbarn og þettaer ekki besti tími
ársins til að halda afmæli.
Það var annar sem fæddist
um þetta leyti sem hefur
skyggt á mig og fleiri sem
eiga afmæli á þessum tíma,“
segir Guðlaugur Þór Þórð-
arson utanríkisráðherra, en
hann á 50 ára afmæli í dag.
„Afmælisdagurinn hefst á
ríkisstjórnarfundi og svo
geri ég nú eitthvað í tilefni
dagsins en ég ætla að fresta
afmælisveislunni fram í jan-
úar og gefa mér betri tíma
til að undirbúa hana. Þessi
tími hefur alltaf verið anna-
samur hjá mér í þeim störf-
um sem ég hef verið í og ég
vissi að engin breyting yrði
á því í ár.“
Þrátt fyrir mikið umrót í
stjórnmálunum á þessu ári
gegnir Guðlaugur Þór sama embætti og í síðustu ríkisstjórn og því
hafa ekki orðið miklar breytingar hjá honum. „Eðli starfsstjórna er
auðvitað þannig að ýmsar ákvarðanir þurfa að bíða, einkum þegar
þingið situr ekki. Það hefur því verið í mörg horn að líta eftir að ný
ríkisstjórn var mynduð. Annars er í utanríkismálunum ágæt þver-
pólitísk samstaða og það voru engar deilur um þau á þessum stutta
starfsferli síðustu stjórnar áður en hún sprakk. Í sumar kláruðum við
vinnu með 150 tillögum um utanríkismál og hvernig ætti að fram-
fylgja stefnunni. Við erum búin með 30 tillögur af þeim og vonumst til
að klára hátt í 90 á næstunni.“
Áhugamál Guðlaugs Þórs eru margvísleg og má nefna útivist, skot-
veiði, ferðalög, íþróttir, skák, tónlist, leikhús og matargerð. „Þau eiga
það öll sameiginlegt að ég hef haft mjög lítinn tíma til að sinna þeim
fyrir utan matargerðina því ég borða á hverjum degi og hef gaman af
að elda sjálfur. Stjórnmál eru náttúrlega líka áhugamál hjá mér og ég
hef verið svo lánsamur að vera treyst fyrir því að sinna þeim í starfi.
Svo stendur fjölskyldan mér nærri.“
Eiginkona Guðlaugs Þórs er Ágústa Johnson framkvæmdastjóri og
börn hennar af fyrra hjónabandi eru Anna Ýr og Rafn Franklín og
saman eiga þau Guðlaugur Þór tvíburana Þórð og Sonju. „Rafn var
svo að eignast prinsessu sem verður skírð á Þorláksmessu,“ segir
Guðlaugur Þór að endingu.
Utanríkisráðherra Guðlaugur Þór.
Frestar veislunni
fram í janúar
Guðlaugur Þór Þórðarson er fimmtugur
S
igríður Valdimarsdóttir
fæddist á Sauðárkróki
19.12. 1937 og ólst þar
upp. Hún var í Barna-
skóla Sauðárkróks og í
Gagnfræðaskólanum þar, lauk þar
gagnfræðaprófi, stundaði síðan nám
við Samvinnuskólann og útskrifaðist
þaðan 1957 í fyrsta árganginum sem
útskrifaðist frá Bifröst eftir að skól-
inn flutti úr Reykjavík og upp í
Borgarfjörð.
Á unglingsárunum sinnti Sigríður
m.a. barnapössun, vann eitt sumar á
Hótel Tindastóli og starfaði við Kaup-
félagið á Sauðárkróki.
Eftir námið við Samvinnuskólann
fór Sigríður til Nottingham í Bret-
landi þar sem hún var „au pair“ að
gæta barna og aðstoða við heim-
ilisstörf í fimm mánuði. Eftir að hún
kom heim hóf hún aftur störf hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga og vann þar
við verslunar- og skrifstofustörf til
1959.
Sigríður hóf búskap með manni
sínum á Flugumýri í Skagafirði 1959
og hefur verið þar húsfreyja og bóndi
síðan. Þau hjónin voru lengi með
Sigríður Valdimarsdóttir, fv. bóndi og húsfr. á Flugumýri – 80 ára
Ljósmynd/Gunnhildur Gísladóttir
Stór hópur Sigríður og Jón með börnunum sínum, tengdabörnunum, barnabörnum og langafa- og ömmubörnum.
Vinnur í garðinum frá
vori og fram á haust
Hjónin Jón Ingimarsson og Sigríður Valdimarsdóttir.
Seltjarnarnes
Hrefna Sif Elías-
dóttir fæddist 3.
janúar 2017 kl.
11.43. Hún vó 3.705
g og var 50 cm
löng. Foreldrar
hennar eru Ásdís
Helgadóttir og
Elías Sigurþórsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift aðMorgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.