Morgunblaðið - 19.12.2017, Side 29
blandaðan búskap en nálega ein-
göngu kúabú síðustu árin en þau
brugðu búi árið 1999 er sonur þeirra
tók við búskapnum. Þau hjónin eiga
þó enn heima á Flugumýri og una þar
hag sínum hið besta.
Sigríður starfaði lengi með kven-
félagi Akrahrepps og var ritari fé-
lagsins um skeið, sat í sóknarnefnd
Flugumýrarsóknar og var ritari
hennar.
Sigríður segist ekki eiga nein
áhugamál en við nánari eftir-
grennslan kemur í ljós að hún sinnir
garðinum sínum af mikilli alúð: „Jú,
jú. Þegar þú minnist á það verð ég
líklega að viðurkenna að ég er mikið
að dunda mér í garðinum frá því
snemma á vorin og fram á haust og
hef gert það lengi. Maður getur alltaf
á sig blómum bætt og verður líklega
alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni!“
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar er Jón Ingi-
marsson, f. 19.1. 1937, bóndi á Flugu-
mýri. Hann er sonur Ingimars Jóns-
sonar, bónda á Flugumýri, og k.h.,
Sigrúnar Jónsdóttur frá Víðivöllum.
Börn Sigríðar og Jóns eru: 1)
Hrönn, f. 23.10. 1959, hjúkrunar-
fræðingur við Sjúkrahúsið á Sauð-
árkróki, búsett á Hólum en maður
hennar er Einar Svavarsson fiski-
fræðingur og eru börn þeirra Tjörvi
Björnsson (stjúpsonur Einars), Bríet
og Valþór. 2) Herdís, f. 23.10. 1960,
leikskólakennari á Sauðárkróki, og
eru börn hennar Árndís og Hafliði
Árnabörn. 3) Sigrún, f. 29.12. 1961,
starfsmaður hjá bæjarskrifstofunum
í Hafnarfirði, og eru synir hennar Jón
Karl, Hinrik og Grétar Örn Grét-
arssynir. 4) Sigurlaug Helga, f. 23.12.
1965, verslunarmaður á Akureyri, og
eru börn hennar Sirrý Sif Sigurlaug-
ardóttir og Rúnar Ingi Grétarsson en
maður Sigurlaugar er Grétar Ás-
geirsson. 5) Ingimar, f. 26.12. 1968,
bóndi á Flugumýri, en kona hans er
Margrét Óladóttir. Sonur hans og
Brynju Þórarinsdóttur er Dagur
Már, en börn Ingimars og Margrétar
eru Katarína, Rakel Eir, Jón Hjálm-
ar og Matthildur.
Systkini Sigríðar eru Rut, f. 20.1.
1940, fyrrv. bóndi í Tunguhlíð í Lýt-
ingsstaðahreppi, nú búsett á Sauðár-
króki, og Pétur, f. 22.7. 1950, versl-
unarmaður á Sauðárkróki.
Foreldrar Sigríðar voru Valdimar
Pétursson, f. 2.4. 1911, d. 5.4. 1968,
verkamaður á Sauðárkróki, og k.h.,
Herdís Sigurjónsdóttir, f. 25.12. 1914,
d. 29.9. 1999, húsfreyja á Sauðár-
króki.Falleg jörð í íslenskri sveit Flugumýri í Skagafirði á björtum sumardegi.
Sigríður Valdimarsdóttir
Helga Sigurlaug Stefánsdóttir
húsfr. á Helgustöðum
Jóhann Jónasson
b. á Helgustöðum í Flókadal
Sigurlaug Jóhannsdóttir
húsfr. á Siglufirði
Sigurjón Björnsson
skipstj. á Siglufirði
Herdís Sigurjónsdóttir
vökuk. við Sjúkrahúsið á Sauðárkróki
Engilráð Einarsdóttir
húsfr. á Sigríðarstöðum
Björn Hafliðason
b. á Sigríðarstöðum í Flókadal í Fljótum
Hannína Guðbjörg Hannesdóttir
búsett á Sauðárkróki
Ingibjörg Jónína
Ingvarsdóttir
húsfr. á Siglufirði
Heiðar Ástvaldsson
danskennari
Sveinn Hannesson
hagyrðingur frá Elivogum
Auðunn Bragi Sveinsson
kennari og hagyrðingur
Jón Jóhannsson skipstj. á SiglufirðiBjörk Jónsdóttir starfsm.bæjarskrifstofanna á Siglufirði
Unnur Guðjónsdóttir
sjúkraliði í Rvík
Hlín Guðjónsdóttir
iðjuþjálfi í Rvík Ester Sigurjónsdóttir
húsfr. í Rvík
Ása Finnsdóttir
fyrsta af tveimur
sjónvarpsþulum
Sjónvarpsins
Hermína Sigurjónsdóttir
húsfr. í Bandaríkjunum
Svanhildur Jónsdóttir
frá Kollugerði á Skagaströnd
Jón Pálsson,
var víða í Húnavatnssýslu
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. á Þröm og víðar
Pétur Hannesson
b. á Þröm og farandverkam. í Skagafirði
Sigurbjörg Kristjánsdóttir
húsfr. á Melum í Svarfaðardal
Hannes Kristjánsson
b. á Hryggjum í Staðarfjöllum
Úr frændgarði Sigríðar Valdimarsdóttur
Valdimar Pétursson
verkam. og form. Verkam.f.
Fram á Sauðárkróki
ÍSLENDINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017
LITLIR PAKKAR
GLEÐJA MEST
Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is
Þórarinn Björnsson fæddist áVíkingavatni í Kelduhverfi19.12. 1905. Hann var sonur
Björns Þórarinssonar, bónda þar, og
Guðrúnar Hallgrímsdóttur hús-
freyju.
Björn var bróðir Jónínu, móður
Björns, alþingismanns á Víkinga-
vatni, afa Björns Þórhallssonar, við-
skiptafræðings og varaforseta ASÍ,
föður Karls, fyrrv. bæjarstjóra Ár-
borgar. Faðir Björns á Víkingavatni
var Þórarinn á Víkingavatni, bróðir
Ólafar, ömmu Benedikts Sveins-
sonar alþingismanns, föður Bjarna
forsætisráðherra, föður Björns,
fyrrv. ráðherra, og Valgerðar al-
þingismanns, en bróðir Bjarna var
Sveinn framkvæmdastjóri, afi
Bjarna Benediktssonar fjármála-
ráðherra.
Eiginkona Þórarins var Margrét
Eiríksdóttir píanóleikari og eign-
uðust þau tvö börn, Guðrúnu Hlín,
kennara og verslunarmann, og
Björn yfirlækni.
Þórarinn stundaði nám við Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og lauk þar
stúdentsnámi en varð að taka prófið
í Reykjavík 1927 því enn hafði
Menntaskólinn á Akureyri ekki ver-
ið stofnaður. Hann stundaði nám við
Sorbonne-háskólann í París sam-
kvæmt tillögu Sigurðar Guðmunds-
sonar skólameistara og lauk licen-
ceés-lettres-prófi í frönskum
bókmenntum og málfræði, latínu og
uppeldisfræði.
Þórarinn var kennari í latínu og
frönsku við Menntaskólann á Akur-
eyri frá 1933. Hann varð snemma
Sigurði skólameistara til aðstoðar og
var sjálfur skólameistari frá 1948.
Þórarinn var röggsamur stjórn-
andi, skapríkur og gat verið þung-
orður, en tilfinningaríkur og hjarta-
hlýr. Hann bar mjög hag nemenda
sinna fyrir brjósti og leit fyrst og
fremst á menntun sem þroska og
kennslu sem listgrein, var virtur
skólameistari og flestum sínum
nemendum minnisstæður enda flug-
mælskur, víðsýnn og andríkur.
Þórarinn lést 28.1. 1968.
Merkir Íslendingar
Þórarinn
Björnsson
90 ára
Sigríður Sveinbjarnardóttir
85 ára
Gyða Guðmundsdóttir
80 ára
Elsa María Valdimarsdóttir
Gréta Halldórsdóttir
Ingimar Jónsson
Jónatan Þórmundsson
Kristbjörg Þórðardóttir
Magnús Þorfinnsson
Margrét S. Helgadóttir
Ólafur Stefánsson
Rögnvaldur Jónsson
Sigríður Valdimarsdóttir
75 ára
Jón Emanúel Júlíusson
70 ára
Eygló Eymundsdóttir
Jóhanna H. Óskarsdóttir
Jósef G. Ingólfsson
Kolbrún Svala Hjaltadóttir
Ragnheiður E. Björnsdóttir
Regina Jedryka
60 ára
Baldvin Þ. Kristjánsson
Dagbjartur Ari Gunnarsson
Hildur Magnúsdóttir
Ingibjörg Jóna Birgisdóttir
Kristín Guðmundsdóttir
Marek Moszczynski
Ryszard Moszczynski
Sigfinnur Jónsson
Unnur Valgeirsdóttir
Víðir Sigurjónsson
50 ára
Aðalheiður Gunnarsdóttir
Agnar Sverrisson
Aivaras Kieras
Andrzej Szwaba
Aurel Storcel
Björn S. Vilhjálmsson
Björn Örlygsson
Einar Ögmundsson
Friðrika Marteinsdóttir
Guðlaugur Þór Þórðarson
Inga Lára Þórisdóttir
Ingibjörg Árnadóttir
Magnús Valdimarsson
Sigfús Örn Óttarsson
40 ára
Andrea J. Helgadóttir
Ármey G. Sigurðardóttir
Brynhildur Ólafsdóttir
Dariusz S. Krawczuk
Elvar Þór Ólafsson
Guðmundur V. Pétursson
Guðrún Jónsdóttir
Hafþór Rafn Benediktsson
Ingunn Stefánsdóttir
Kristín S. Ólafsdóttir
Margrét B. Tryggvadóttir
Nicole Simone Keller
Wendy Cecilia Curiel Cruz
30 ára
Adrian M. Gasiorowski
Almar Freyr Ragnarsson
Andrea H. Þorsteinsdóttir
Andrzej Dariusz Baran
Atli Jónsson
Ellen H. Steingrímsdóttir
Guðrún T. Steinþórsdóttir
Haraldur Karlsson
Heiður Björk
Friðbjörnsdóttir
Helen Elizabeth Bateman
Lukasz Rafal Grudel
Maciej Majda
Marta Auðunsdóttir
Ronnarong
Wongmahadthai
Sigurður Ólafur
Friðbjarnarson
Sindri Magnason
Viktor Steinar Þorvaldsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sindri býr í Kópa-
vogi, lauk MSc-prófi í
verkfræði frá DTU í Kaup-
mannahöfn og starfar hjá
Marel.
Maki: Sunna Magnús-
dóttir, f. 1986, lögmaður.
Sonur: óskírður, f. 15.12.
2017.
Foreldrar: Magni Þór
Geirsson, f. 1960, sjávar-
útvegsfræðingur og Fjóla
Kristín Halldórsdóttir, f.
1962, lífeindafræðingur
við LSH.
Sindri
Magnason
30 ára Heiður ólst upp í
Garði, býr í Hafnarfirði,
lauk viðskiptafræðiprófi
og MBA-prófi og starfar
hjá Arion banka.
Maki: Karen Sævarsd., f.
1973, golfkennari.
Synir: Sören Cole, f.
2006, og Victor Nóel, f.
2011.
Foreldrar: Friðbjörn Júl-
íusson, f. 1967, vélstjóri,
og Sveinbjörg Gunnlaugs-
dóttir, f. 1969, skrifstofu-
maður.
Heiður Björk
Friðbjörnsdóttir
30 ára Guðrún ólst upp í
Reykjavík, býr í Hafnar-
firði, lauk prófi sem
sjúkraliði og starfar á
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Börn: Kristján Bergmann
Einarsson, f. 2011; Stein-
þór Máni Þórhallsson, f.
2015, og Guðný Helga
Þórhallsdóttir, f. 2017.
Foreldrar: Dagbjört Þór-
unn Þráinsdóttir, f. 1968,
búsett í Reykjavík, og
Steinþór Kristjánsson, f.
1961, d. 2015.
Guðrún Tinna
Steinþórsdóttir