Morgunblaðið - 19.12.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.12.2017, Blaðsíða 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017 ///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Foreldrar hafa sterkar skoðanir á því hvað börnin eiga að taka sér fyrir hendur í dag. Að skiptast á einhverju við systkin getur verið sérstaklega umbun- andi. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er ekki nóg að vita hvað er manni fyrir bestu heldur er nauðsynlegt að tileinka sér það. Sjálf/sjálfur þarft þú að leita kjarnans í sjálfri/sjálfum þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Reyndu að sýna samstarfsfólki þínu skilning og þolinmæði í dag. Láttu ekki hugfallast og mundu að hver er sinn- ar gæfu smiður. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er engin minnkun í því að leita ráða hjá öðrum. Taktu það ekki óstinnt upp þótt vinir og vandamenn vilji sýna þér ást sína og umhyggju í verki. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur fyllstu ástæðu til þess að vera ánægð/ur með framlag þitt ef þú bara varast að láta ofmetnað ná tökum á þér. Sýndu fjölskyldu þinni þolinmæði. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Til að geta gripið tækifæri verður þú að hugsa fram í tímann. Sendu ör upp í himininn og gáðu hvort hún festist. 23. sept. - 22. okt.  Vog Að vita örlítið meira en aðrir gerir þér kleift að taka virkilega innblásnar ákvarðanir. Kannski hlusta ekki allir í heiminum, en alla vega þrjár mikilvægar manneskjur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að halda vel á spöð- unum eigi þér að takast að ljúka við allt í tæka tíð. Seinna muntu líta aftur til dags- ins í dag og hugsa: Gerðist þetta? 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Stundum verður þú að sætta þig við að aðrir stjórni ferðinni. Forðastu ákvarðanir í stórum málum og umfram allt reyndu að ná jarðsambandi aftur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hláturinn lengir lífið svo þú skalt láta það eftir þér að eiga glaðar stundir með vinum og vandamönnum. Börnin krefjast athygli þinnar núna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það liggur einhver svartsýni í loftinu í dag en hlutirnir ættu strax að líta betur út á morgun. Gættu þín í öllu sem snýr að fjármálum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Sannleikurinn birtist í mörgum myndum. Gefðu þér tíma til að rækta sál- arlíf þitt en gættu þess að forðast allar öfgar í þeim efnum. Hlaðborð hjá tröllum á fjöllum“er yrkisefni Helga R. Ein- arssonar: Á aðventunni þau eta eins og þau frekast geta. Síðan þau æla, öskra og væla, emja, bölva og freta. Síðan koma „tvær hyskislimrur“: Leppalúði dó í lífsins ólgusjó. Af heimskunni og hræsninni hann hafði fengið nóg. Vesalings gamla Grýla sig gleymdi að teygja og hvíla. Ég segi það satt, því sundlaði’ og datt er á rólunum var hún að príla. Anton Helgi Jónsson raular á Boðnarmiði: Það á að gefa börnum bók að blaða í á jólunum leyfa þeim að látast klók í letikeppastólunum. Lestur hressir haus á blók jafnt heima sem í skólunum. Nú verður ekkert aulamók yfir símatólunum. Og nú er rétt að fara með erindið eftir Jórunni Viðar: Það á að gefa börnum brauð að bíta í á jólunum, kertaljós og klæðin rauð, svo komist þau úr bólunum,. Væna flís af feitum sauð, sem fjalla gekk á hólunum. Nú er hún gamla Grýla dauð, gafst hún upp á rólunum. Ólafur Stefánsson er áttræður í dag. Afmælis- og heillaóskum Vísnahorns fylgir þessi staka: Eitt var það sem upp úr stóð og enginn getur forsómað: yrkja gúrkur eða ljóð – ævistarfið fór í það. Guðmundur Arnfinnsson yrkir: Jólagjafir, glys og prjál, gleði litla veita, ef það vantar yl í sál og alla bugar streita. „Senn líður að jólum,“ segir Ing- ólfur Ómar: Hátíð senn í hönd nú fer, helgistundin bjarta. Ljúfan fögnuð færir mér frið og von í hjarta. Hugur kætist harmur þver hlýnar mínu geði. Jólaandinn bljúgi ber birtu yl og gleði. Sigmundur Benediktsson segir: Hátíð nálgast hugans inni, hlýja birtu nálgast finn. Jólaljósin út́og inni öllum gefa ljóma sinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af tröllum, Grýlu og jólunum „ÞESSI VERK ERU FRÁ PUNKTATÍMAPUNKTINUM Í LÍFI HANS“ „HVERNIG ÆTLARÐU AÐ KOMAST TIL VINNU ÞEGAR EKKI GEFUR BYR“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar lagstúfur vekur ljúfar minningar Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ERTU EIN? EF ÉG VÆRI SVO HEPPIN …OG AUGU ÞEIRRA MÆTTUST YFIR RYÐFRÍA SKOÐUNARBORÐIÐ HERRA ÁRDAL ER MEÐ KÖTTINN SINN Í STOFU 2 ÞAÐ HLJÓMAR EINS OG ÞAÐ SÉ HÆNA ÞAR GÓÐAN DAG HERRA ÁR- DAL Jólin eru að ganga í garð, það erekki um að villast. Víkverji hef- ur líkt og margir aðrir ekki farið varhluta af jólastressinu sem fylgir og miklað fyrir sér það sem út af stendur og þarf að klára. Ekki bæt- ir úr skák að skylduverkefni þessa jólaundirbúnings eru mun fleiri en í meðalári. Stóri munurinn er að nú liggur að baki um það bil árs und- irbúningur. x x x Óráðsían sem fylgir jólunum erað mati Víkverja að ná sömu hæðum og hún var í á árunum 2005 til 2007 og þó að vissulega séu aðr- ar forsendur fyrir velgenginni nú en voru þá þurfum við að huga að því hvaða áhrif samfélagslegar kröfur, beinar og óbeinar, hafa á fólk. Það eru nefnilega ekki allir sem eiga jafn auðvelt með að gleðj- ast á þessum tíma. Víkverja er þessi tími til að mynda erfiðasti tími ársins. x x x Lexían sem lærst hefur er að þósvo að jólin séu hátíð ber að varast að taka þau of hátíðlega. Þó að smá kusk sé í hornunum, ekki til 17 sortir í skápunum og jafnvel gleymist ein gjöf munu alveg örugglega koma jól. Það sem þarf að gera er að einbeita sér að því sem mestu máli skiptir. Ekki er það Víkverja að prédika hvað það er sem skiptir mestu máli en í hans tilfelli er það að líða vel. x x x Óskin er sú að sem flestir finnisína leið til að láta sér líða vel. Til að mynda komu eitt árið í lífi Víkverja, jól þar sem jólaskapið var í lágmarki og skammdegisþung- lyndið í hámarki. Helsta óskin var að fá að vera einn með sjálfum sér en utanaðkomandi þrýstingur varð til þess að hætt var við þau fyrir- heit. Fyrir vikið fóru allnokkrar vikur í að vinna úr jólavanlíðaninni. Skiptir það nokkru máli þótt fólk sé eitt á jólunum ef það kýs það frekar? Ég held ekki. Við, sam- félagið, verðum að hætta að dæma einstaklinga út frá okkar eigin for- sendum og leyfa fólki að nálgast jólin á sínum eigin. vikverji@mbl.is Víkverji Ég er ljós í heiminn komið svo að eng- inn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri. (Jóh.12:46)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.