Morgunblaðið - 19.12.2017, Síða 32

Morgunblaðið - 19.12.2017, Síða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Við ákváðum fyrir löngu að gefa út fallegan sérhannaðan kubb sem hægt væri að stinga inn í skemmti- legum aðskotahlutum og upplýs- ingum sem væru prentaðar inn í vegg kubbsins,“ segir Jakob Frí- mann Magnússon Stuðmaður um nýútkominn Astraltertukubb sem inniheldur 11 lög í nýju lagasafni Stuðmanna, sem hlotið hefur nafnið Ásgeir Óskarsson. „Ástæða þess að Stuðmenn völdu þá leið að gefa út kubb þar sem fjórir píramítar birtast við opnun er sú að píramítarnir eru fullir af dulúðlegum og forvitnilegum efnisþáttum. Inn í einn píramítann setjum við síðan smáskífu sem minnir á gamla vínil- plötu,“ segir Jakob. Kosmískir kraftar Astaltertukubburinn inniber 11 lög eða kosmíska krafta, að sögn Jakobs. „Á kubbnum er meðal ann- ars lagið „Vor fyrir vestan“ sem við gáfum út í vor. Lagið æfðum við og fluttum á Úlfarsfelli á 90 ára afmæli Ferðafélagsins. Annað lag kom út í haust og heitir „Örstutt lag“ og það vill svo til að þetta er lengsta lag lagasafnsins.“ Jakob segir kubbinn taka við af geisladiskinum sem tók við af vín- ilplötunni sem tók við af vaxhólkn- um. „Kubburinn er ný birtingarmynd umbúða sem gefur hlustandanum tækifæri á að rifja upp þá gömlu góðu upplifun að fara heim með grip- inn, taka hann úr umslaginu og setja í tækið. Halla sér í hægindastólinn og sökkva sér djúpt í tónlistina. Allt þetta jafngildir djúpri slökun, hug- leiðslu og upplifun. Það er ekkert sem jafnast á við það að fara inn í tónlistina og kafa ofan í hana,“ segir Jakob með dreymandi röddu. Andbúnaður í stað landbúnaðar Jakob segir kubbinn vera andbún- að sem svar tónlistarmanna við land- búnaði og uppvegur í stað útvegs. „Lagasafninu Ásgeiri Óskarssyni er ætlað að gleðja, örva og kveikja hug- myndir. Þegar líður á og þú ert kom- inn vel inn í kubbinn, muntu rísa upp úr hægindastólnum og byrja að hrista þig alla/n og skaka ótæpi- lega.“ Hugmyndina að nafninu Astral- tertukubbur segir Jakob komna frá Samúel Jóni Samúelssyni. En nafn sjálfs lagasafnsins, Ásgeir Ósk- arsson, sé tilkomið vegna þess að Ás- geir komist næst því allra Stuð- manna að geta talist óumdeilanlegur og í raun yfirskilvitlegur. „Hann mætir fyrstur, fer síðastur og nostrar af kostgæfni við öll sín verefni stór sem smá. Hann er ótrú- legur að líkamskröftum sem virðast vaxa með árunum. Inniber í senn óútskýranlegan hrynþokka og í raun guðlega eiginleika.“ Fjölþætt fótamennt Jakob segir að Stuðmenn séu menn hins andlega seims en samt af hnausþykku holdi og blóði sem aldr- ei fyrr. Lögin á kubbnum spegli áhuga sveitarinnar á fjölþættri fóta- mennt, danstegundir á borð við tófu- tölt, frugg, bolabít, tvöfalt bít, pólbít (skautbít), slipphopp og hið sér- íslenska Stuðmannahopp. Jakob segir Stuðmenn hafa dottið í lukkupottinn þegar kom að upp- tökustjóra en Printz Board stjórnaði upptökum á lagasafninu Ásgeiri Ósk- arssyni sem kemur formlega út í dag, þriðjudaginn 19. desember. „Píramítarnir eru fullir af dulúðleg- um og forvitnilegum efnisþáttum“  Sérhannaður 11 laga Astraltertu- kubbur Stuðmanna kemur út Ljósmynd/Saga Sig. Upplifun „Kubburinn er ný birtingarmynd umbúða sem gefur hlustandanum tækifæri á að rifja upp þá gömlu góðu upplifun að fara heim með gripinn, taka hann úr umslaginu og setja í tækið,“ segir Jakob Frímann sem hér sést með öðrum Stuðmönnum á glæsilegri kynningarmynd fyrir hinn nýútkomna grip, Astraltertukubbinn. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Kammerhópurinn Camerarctica heldur hina árlegu kertaljósa- tónleika í fjórum kirkjum nú fyrir jólin. Fyrstu tónleikarnir verða í Hafnarfjarðarkirkju í kvöld, þriðju- dag, og þá verða tónleikar í Kópa- vogskirkju á miðvikudagskvöldið, í Garðakirkju á fimmtudagskvöld og þeir síðustu verða í Dómkirkjunni í Reykjavík á föstudagskvöldið kem- ur, tveimur dögum fyrir jól. Tón- leikarnir eru allir um klukkustund- ar langir og hefjast klukkan 21. Kammerhópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Wolfgang Ama- deus Mozart á þessum tónleikum undanfarin 24 ár og verður þetta því í tuttugasta og fimmta skiptið sem tónleikaröðin er haldin og segir Ár- mann Helgason, einn félaga Camer- arctica, að mörgum tónleikagestum þyki ómissandi að koma úr jólaös- inni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu og hlýða í ró á fallega tón- listina. Að þessu sinni skipa kammerhóp- inn þau Ármann, sem leikur á klar- inett, fiðluleikararnir Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Páls- dóttir, Svava Bernharðsdóttir víólu- leikari og Sigurður Halldórsson, sellóleikari. Þá er sérstakur gestur á tónleikunum Emelía Rós Sigfús- dóttir flautuleikari. Á efnisskránni eru tvö kunn verk eftir Mozart, kvintett fyrir klarinettu og strengi og kvartett fyrir flautu og strengi. Eins og fyrri ár lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jóla- sálminn „Í dag er glatt í döprum hjörtum,“ sem er úr Töfraflautu Mozarts. Hringja inn jólin Þegar Ármann er spurður út í aðdáunarvert úthaldið við tónleika- röðina, að halda þá í 25. skipti, þá segir hann brosandi að þegar fólk sækir tónleika þá sé það flytjendum hvatning til að halda áfram. „Það er alltaf góð aðsókn og gest- ir kunna auðheyrilega að meta þetta. Margir hafa sagt tónleikana hringja inn jólin hjá sér, ár eftir ár. Þetta er því orðin hefð, bæði hjá okkur og tónleikagestum,“ segir hann. „Þá er tónlist Mozarts í miklu uppáhaldi hjá mörgum og okkur finnst líka gott að koma að þessari tónlist aftur og aftur. Marga fasta- gestanna sjáum við ekki á öðrum tónleikum, á öðrum tímum ársins“ Ármann hefur komið fram á tón- leikunum í flest af hinum 24 skipt- um, en tvö áranna var hann bundinn í öðrum verkefnum. „Og ég held að enginn hafi alltaf verið með en við byrjuðum að halda þessa tónleika strax eftir að við komum heim úr námi. Við þekktum svona tónleika erlendis en þetta hafði ekki verið gert hér áður. Alltaf höfum við leik- ið Mozart en einstaka sinnum hafa einhverjir vinir fengið að kíkja með honum á efnisskrána. Núna leikum við sömu tvö verkin og við fluttum á allra fyrstu tónleikunum. Við höfum áður endurtekið þau á afmælistón- leikum eins og núna. Þetta eru máttarstólpar verka sem skrifuð hafa verið fyrir þessi hljóðfæri.“ Músík Mozarts vinnur alltaf á Þegar spurt er hvað geri þessi tónverk svo góð þá svarar Ármann kíminn með spurningu: „Hvernig skýrir maður snilligáfu Mozarts? Músíkin hans er einstök og ólýs- anleg. Það er bæði léttleiki og dýpt, þesi angurværð; það er allt í þessari tónlist. Svo reynir maður bara að fara vel með hana og skapa stemn- ingu, sem tekst oft svo vel í þessu rökkri og við kertaljós. Svo er gaman að fá að flytja verk- in fjórum sinnum, endurtaka þau aftur og aftur, þetta er einstakt tækifæri til þess hér á landi. Mús- íkin hans Mozarts vinnur alltaf á og þetta er sífellt ný áskorun, í hvert sinn. Við þroskumst öll með hverju árinu og komum að verkunum á nýjan hátt á hverju ári. Þá eru kirkjurnar frábær tónleikahús og gott andrúmsloft í þeim öllum.“ Aðventan litar flutninginn. „Já, þessi dimmi árstími, svona rétt fyrir jólin. Í lokin leikum við svo alltaf sálminn „Í dag er glatt í döprum hjörtum,“ til að hleypa gestum í réttum anda inn í jólin,“ segir Ár- mann. Og að síðustu tónleikum loknum kveðst Ármann alltaf vera kominn í jólaskapið. „Þá fær maður sér piparkökur og mandarínur, eins og hinir, og kaupir jólagjafirnar á síð- ustu stundu!“ Leika verk eftir Mozart við kertaljós  Kertaljósatónleikar Camerarctica haldnir 25. árið  Í fjórum kirkjum Camerarctica Flytjendurnir á tónleikunum í kirkjunum fjórum nú í vik- unni: Emelía Rós, Hildigunnur, Bryndís, Svava, Ármann og Sigurður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.