Morgunblaðið - 19.12.2017, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég fer yfir textann á meðan ég
hræri í kökurnar því tónlist og
bakstur er það sem kemur mér í
jólaskap,“ segir söngkonan, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Diddú.
Diddú og drengirnir hennar
halda í hefðina með sínum árlegu
Hátíðarjólatónleikum 20. árið í röð
í Mosfellskirkju í Mosfellsdalnum
annað kvöld kl. 20.
„Þetta eru afmælistónleikar hjá
okkur. Við erum búin að spila sama
í 20 ár ég og drengirnir mínir. Það
er ekki til mikið af tónlist fyrir sex
blásara og sópran. Ég held að það
sé bara til eitt verk og það er eftir
Hayden,“ segir Diddú.
Jólatónleikar í sveitakirkju
Með Diddú spila klarinettuleik-
ararnir Sigurður Snorrason og
Kjartan Óskarsson, á fagott spila
þeir Björn Th. Árnason og Brjánn
Ingason og á horn leika þeir Emil
Friðfinnsson og Þorkell Jóelsson.
„Það er allt honum Þorkeli að
kenna að við syngjum í Mosfells-
kirkju í Mosfellsdalnum. Hann er
fæddur og uppalinn í dalnum og fer
ekki þaðan,“ segir Diddú hlæjandi
og bætir við litla sveitakirkjan sé
kjörin fyrir þá notalegu tónlist sem
flutt verði í kirkjunni en markmiðið
sé að færa fólki frið í sálina.
„Að sjálfsögðu verða einhverjar
bombur líka. Lögin verða öll í há-
tíðlegri kantinum við tökum meðal
annars Ó helga nótt, sem er ómiss-
andi, svo á ég bunka af Ave María í
alls konar útsetningum. Fastagest-
irnir okkar sem koma víða að vilja
heyra færeyska jólalagið sem við
tökum alltaf og svo endum við alla
tónleika á því að syngja saman tón-
listarmennirnir og gestirnir upp-
runalegu útgáfuna af Heims um
ból.
Diddú og drengirnir hafa sungið
saman bæði hér á landi og erlendis
og segir Diddú að Sigurður og
Kjartan hafi þurft að útsetja
ógrynni af lögum fyrir hópinn.
Kjartan sem er sérlega mikill
gramsari hefur gramsað í bóka-
söfnum víða um heiminn í leit að
lögum.
Hófst allt í Reykholti
Þegar Diddú er spurð hvernig
hugmyndin að hátíðartónleikum í
Mosfellskirkju hafi komið til segir
hún að það sé svo langt síðan að
hún muni það varla. En Diddú til
happs var Kjartan við hlið hennar
með svarið við spurningunni.
,,Árið 1997 vorum við beðin um
að syngja í Reykholtskirkju og þá
kviknaði hugmyndin að halda hátíð-
artónleika í Mosfellskirkju,“ segir
Kjartan og tekur undir það með
Diddú að lítið sé til af útsetningum
fyrir sex blásara og sópran.
Það er nóg að gera hjá Diddú á
aðventunni. Hún brá undir sig betri
fætinum um síðustu helgi og söng á
fernum tónleikum Friðriks Ómars,
Jólin heima, á Akureyri.
„Á tónleikunum söng ég allt frá
jólapopplögum og upp í stórar
bombur eins og Ó helga nótt og
flott ítalskt jólalag með Agli Ólafs-
syni.
Uppáhaldslag Diddúar þessa
dagana er sænskt jólalag sem heit-
ir Koppången.
„Lagið fjallar um jólastemn-
inguna í Koppången og það verða
allir hugfangnir af laginu sem
heyra það. Þetta lag er nýjasta
dellan. Það er alltaf gaman að
heyra eitthvað nýtt sem heillar
mann upp úr skónum. En á aðvent-
unni er ekki hægt að sleppa því að
syngja eða hlusta á, Ó helga nótt,
Heims um ból, Í dag er glatt og
Hin fegursta rós,“ segir Diddú sem
hlakkar til tónleikanna á morgun
sem hefjast kl. 20. Miðasala er við
innganginn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jólalög og bombur Diddú og drengirnir hennar halda árlega jólatónleika í Mosfellskirkju annað kvöld.
„Fer yfir textann á með-
an ég hræri í kökurnar“
Hátíðarjólatónleikar Diddú og drengjanna 20 ára
um, bæði hjá
þeim sem deyr
og þeim sem eft-
ir lifa.
Ásta ætlar sér
stóra hluti í
framtíðinni, að
komast út í
geiminn og fara
í fyrstu ferðina
til Mars. Þegar
líður að endalokum hjá móður Ástu
biður hún hana um að hjálpa sér við
að smíða eldflaug og skjóta öskunni
að sér látinni upp til stjarnanna.
Ásta lofar móður sinni að gera það
en ekki eru allir á einu máli um
hvernig skal standa að útför Sól-
eyjar. Því þarf Ásta, ásamt vinum
sínum Hrefnu og Togga, að leggja á
sig ýmislegt ævintýralegt til að
standa við loforðið sem hún gaf móð-
ur sinni.
Ferðin til Mars er unglingabók.
Sagan er sögð af sögumanni sem
hefur sankað að sér helstu stað-
reyndum málsins og segir söguna
eins og hann veit best. Sagan bygg-
ist mikið til upp á vangaveltum um
Ásta er 14 ára stúlka sembýr í Mosfellsbæ ásamtforeldrum sínum og lítillisystur. „Einn daginn voru
allir kátir og áhyggjulausir og þann
næsta var Sóley, mamma Ástu, orð-
in veik. Alvarlega veik. Hún greind-
ist með illvígt krabbamein og ver-
öldin hrundi“ (bls. 16). Ásta þarf að
kljást við annan veruleika en flestir
jafnaldrar hennar þegar Sóley
mamma hennar veikist. Veikindin
hafa mikil áhrif á fjölskyldulífið; bið-
in eftir dauðanum, undirbúning-
urinn fyrir hann og vangavelturnar
um hvað tekur við að honum lokn-
tilgang lífsins, um hlutverk okkar og
hvað tekur við eftir dauðann. Það er
einstaklega vel gert með smá heim-
spekilegu og sagnfræðilegu ívafi.
Nálgunin er mannleg og fær lesand-
ann kannski til að hugsa öðruvísi en
hann hefur gert. Ásta og Hrefna fá
þrátt fyrir allt líka að vera unglingar
í sögunni með sín vandamál.
Ferðin til Mars er einstök ung-
lingabók. Vel hugsuð og vel skrifuð.
Mér fannst hlutverki sögumannsins
ofaukið til að byrja með, fannst hann
flækja söguna heldur mikið og að
það væru of margar raddir í gangi.
Því auk sögunnar eru innskot úr við-
tölum sem sögumaðurinn tekur við
persónur og leikendur og innskot
þar sem draumum, eða vitrunum, er
lýst. Það hefði kannski mátt einfalda
framsetninguna aðeins en tilgangur
sögumannsins er fullkomnaður í lok
bókar.
Ferðin til Mars er hjartnæm og
skemmtileg saga sem vekur margt
upp innra með lesandanum og því
fullkomin fyrir hugsandi unglinga
og þá sem þurfa kannski smá áminn-
ingu um hvað skiptir máli í lífinu.
Hjartnæm og skemmtileg
Skáldsaga
Ferðin til Mars bbbbn
Eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur og Helga
Sverrison.
Bjartur 2017. Innbundin. 164 bls.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Þri 26/12 kl. 20:00 41. s Sun 7/1 kl. 20:00 55. s Lau 27/1 kl. 20:00 61. s
Mið 27/12 kl. 20:00 42. s Fös 12/1 kl. 20:00 56. s Lau 3/2 kl. 20:00 64. s
Fim 28/12 kl. 20:00 43. s Fös 19/1 kl. 20:00 57. s Sun 4/2 kl. 20:00 65. s
Fös 29/12 kl. 20:00 44. s Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Fös 9/2 kl. 20:00 66. s
Lau 30/12 kl. 20:00 aukas. Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Lau 10/2 kl. 20:00 67. s
Fös 5/1 kl. 20:00 53. s Fim 25/1 kl. 20:00 59. s
Lau 6/1 kl. 20:00 54. s Fös 26/1 kl. 20:00 60. s
Stjarna er fædd!
Medea (Nýja sviðið)
Fös 29/12 kl. 20:00 Frums. Fim 4/1 kl. 20:00 3. s Lau 6/1 kl. 20:00 5. s
Mið 3/1 kl. 20:00 2. s Fös 5/1 kl. 20:00 4. s Fim 11/1 kl. 20:00 6. s
Ástir, svik og hefndarþorsti.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Mið 27/12 kl. 20:00 20. s Fös 5/1 kl. 20:00 aukas.
Fös 29/12 kl. 20:00 22. s Lau 6/1 kl. 20:00 aukas.
Draumur um eilífa ást
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Þri 26/12 kl. 13:00 56. s Sun 14/1 kl. 13:00 aukas. Sun 28/1 kl. 13:00 aukas.
Sun 7/1 kl. 13:00 aukas. Sun 21/1 kl. 13:00 aukas.
Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Þri 26/12 kl. 13:00 aukas.
Tilnefnd sem Barnasýning ársins á Grímunni. Eingöngu sýnd á aðventunni.
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Fim 11/1 kl. 20:00 Frums. Þri 16/1 kl. 20:00 4. s Sun 21/1 kl. 20:00 7. s
Lau 13/1 kl. 20:00 2. s Mið 17/1 kl. 20:00 5. s Mið 24/1 kl. 20:00 8. s
Sun 14/1 kl. 20:00 3. s Fim 18/1 kl. 20:00 6. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s
Saga íslensku þjóðarsálarinnar.
Skúmaskot (Litla sviðið)
Lau 6/1 kl. 13:00 Frums. Sun 7/1 kl. 13:00 2. s Lau 13/1 kl. 13:00 3. s
Búðu þig undir dularfullt ferðalag!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Lau 30/12 kl. 13:00 Lau 13/1 kl. 13:00 Sun 28/1 kl. 13:00
Sun 7/1 kl. 13:00 Sun 21/1 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Faðirinn (Kassinn)
Lau 30/12 kl. 19:30 18.sýn Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn
Lau 6/1 kl. 19:30 Auka Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn
Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Hafið (Stóra sviðið)
Þri 26/12 kl. 19:30 Frum Fös 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 19/1 kl. 19:30 7.sýn
Mið 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 13/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn
Fim 4/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 14/1 kl. 19:30 6.sýn
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fös 29/12 kl. 19:30 14.sýn Fös 12/1 kl. 19:30 16.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn
Lau 6/1 kl. 19:30 15.sýn Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Mið-Ísland að - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 4/1 kl. 20:00 Lau 6/1 kl. 22:30 Lau 13/1 kl. 20:00
Fös 5/1 kl. 20:00 Fim 11/1 kl. 20:00 Lau 13/1 kl. 22:30
Fös 5/1 kl. 22:30 Fös 12/1 kl. 20:00 Sun 14/1 kl. 20:00
Lau 6/1 kl. 20:00 Fös 12/1 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Efi (Kassinn)
Lau 13/1 kl. 19:30 Frum Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn
Sun 14/1 kl. 19:30 2.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka
Mið 17/1 kl. 19:30 Auka Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn
Fim 18/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn
Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 Auka
Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 7/1 kl. 15:00 Frums Sun 14/1 kl. 15:00 2.sýn Lau 20/1 kl. 15:00 3.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Íslensku þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?