Morgunblaðið - 19.12.2017, Qupperneq 44
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 353. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Þurfti að létta sig fyrir kynleiðréttingu
2. Viðamikil alþjóðleg lögregluaðgerð
3. Krafan komin „verulega frá“ 20%
4. Ekki bjartsýnn á að verkfallið leysist …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fimm klassískir tónlistarrýnar The
New York Times hafa valið 25 bestu
útgáfur ársins sem er að líða og er
plata Víkings Heiðars Ólafssonar
með etýðum Philips Glass á listan-
um. Rýnirinn Joshua Barone skrifar
að etýður Glass hafi verið gagn-
rýndar fyrir að vera ómúsíkalskar,
jafnvel leiðinlegar, en flutningur Vík-
ings á tíu þeirra búi yfir djúphugulli
túlkun og óvæntum vendingum og
birti nýja sýn á verkin.
Á facebooksíðu sinni kveðst Vík-
ingur Heiðar mjög ánægður með að
vera í góðum félagsskap á lista
blaðsins, með hljómplötum annarra
listamanna sem hann hafi á árinu
notið að hlýða á. Þá þakkar hann út-
gáfu sinni, Deutsche Grammophon,
og tónskáldinu Philip Glass.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Plata Víkings valin
ein af þeim bestu
Hin árlegu Litlu-Kexdjassjól verða
haldin hátíðleg á Kex hosteli, Skúla-
götu 28, í kvöld kl. 20.30. Feðginin Sig-
urður Flosason saxófónleikari og Anna
Gréta Sigurðardóttir píanóleikari munu
leiða jóladjasssveit Flosason-
fjölskyldunnar sem auk þeirra er að
þessu sinni skipuð Þorgrími Jónssyni
og Gunnlaugi Briem. Þau
munu fara misvel með
ýmsa jólasmelli, bæði
innlenda og erlenda,
gamla og nýja,
smelli á borð við
„Ég hlakka svo til“
og „Þú komst með
jólin til mín“. Að-
gangur er ókeypis
að tónleikunum.
Litlu-Kexdjassjól
haldin hátíðleg
Á miðvikudag Suðvestanátt, víða 13-18 m/s og él, en þurrt og
bjart norðaustan- og austanlands. Hiti kringum frostmark.
Á fimmtudag Allhvöss suðvestanátt og él framan af degi en dreg-
ur úr vindi og éljum eftir hádegi. Léttskýjað eystra. Frost 0-4 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 13-18 m/s og skúrir í fyrstu, síðar
él. Bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hiti 0 til 5 stig.
VEÐUR
Stjarnan og Fram hafa
sannarlega ekki stungið
önnur lið af í úrvalsdeild
kvenna í handknattleik eins
og margir héldu. Stjarnan
situr í fimmta sæti og verð-
ur ekki með í úrslitakeppn-
inni um Íslandsmeist-
aratitilinn í vor, ef
Eyjólfur hressist ekki.
Íslandsmeistarar Fram
sitja í þriðja sæti en
styrkjast væntanlega
á næstunni. »2
Hafa ekki stungið
önnur lið af
Breiðablik og Valur áttu flesta leik-
menn sem komu við sögu í Pepsi-
deild kvenna í knattspyrnu keppn-
istímabilið 2017 og Íslandsmeistarar
Þórs/KA voru með hæsta hlutfall
uppalinna leikmanna í
sínu liði. Þetta kem-
ur í ljós þegar farið
er yfir
bak-
grunn
allra
leik-
manna sem
spiluðu í
deildinni á
árinu. Ít-
arlega er
farið yfir
liðin í
Pepsi-deild
kvenna í
íþróttablaðinu og
hvaðan leikmennirnir
koma. »1
Breiðablik og Valur
áttu flestar í deildinni
Segja má að FH-ingar hafi byrjað
jólahátíðina strax í gær þegar þeim
tókst að vinna hádramatískan sigur á
erkifjendum sínum í Haukum, 30:29,
í næstsíðasta leik Olís-deildar karla í
handbolta á þessu ári. Óðinn Þór Rík-
harðsson skoraði sigurmarkið með
vippu yfir landsliðsmarkvörðinn
Björgvin Pál Gústavsson á lokasek-
úndu leiksins. »4
Hátíðlegur blær í alvöru
Hafnarfjarðarslag
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Alexander Magnússon er 12 ára hálf-
íslenskur strákur sem býr í Dan-
mörku. Hann fer með hlutverk Willi-
ams í dönsku fjölskyldumyndinni Jeg
er William sem verður frumsýnd á
fimmtudaginn í Danmörku. Um er að
ræða jólamyndina þar í landi í ár.
Alexander hafði aldrei komið ná-
lægt leiklist þegar hann sá auglýst
eftir strákum í prufur fyrir myndina
og ákvað að sækja um. „Mér hefur
alltaf fundist kúl að leika í kvikmynd
og ég hélt að það yrði skemmtilegt
því mér finnst skemmtilegt að horfa á
myndir,“ segir Alexander sem fór í
gegnum tíu niðurskurði áður en ljóst
var að aðalhlutverkið var hans.
„Það var mjög skemmtilegt að
leika í myndinni en þetta var aðeins
erfiðara en ég hélt að það yrði. Ég
hafði ekki séð fyrir hvað það þurfti að
gera hlutina mörgum sinnum.“
Jarðbundinn og rólegur
Jeg er William er gerð eftir sam-
nefndri barnabók eftir Kim Pupz
Aakeson. Faðir Williams er dáinn og
móðir hans með geðsjúkdóm svo
hann býr hjá móðurbróður sínum
Nils sem er braskari af guðs náð.
Hann skuldar glæpamönnum pen-
inga og þegar kemur að skuldadögum
þarf William að stíga fram. William
er mjög óheppinn en reynir að breyta
því. Leikstjóri myndarinnar er Jonas
Elmer sem er mjög þekktur í Dan-
mörku og með hlutverk móðurbróð-
urins fer Rasmus Bjerg, einnig fer
Frank Hvam úr Klovn með hlutverk í
myndinni.
Spurður hvernig strákur William
sé segir Alexander hann vera hugul-
saman og að hann gefist ekki upp þótt
á móti blási.
Alexander var ásamt fjölskyldu
sinni á forsýningu myndarinnar fyrir
leikara og aðra aðstandendur í fyrra-
kvöld. Hann hafði séð myndina áður í
stúdíói þegar hún var klippt en ekki í
stóru kvikmyndahúsi. „Ég fann miklu
meira fyrir stemningunni í salnum og
hvaða áhrif myndin hafði á áhorf-
endur. Mér fannst ég ekki endilega
vera að horfa á sjálfan mig á tjaldinu,
en William gerir stundum hluti sem
ég myndi líka gera,“ segir Alexander.
Faðir hans, Eyjólfur Magnús
Kristinsson, var líka viðstaddur sýn-
inguna og segir myndina skemmti-
lega og fulla af dönskum húmor. „Ég
er kannski ekki bestur til að dæma
myndina af því ég var svo stoltur af
að sjá son minn í henni,“ segir Eyjólf-
ur Magnús. „Hann stóð sig ótrúlega
vel. Ég var líka stundum á setti þegar
myndin var í vinnslu og þar báru hon-
um allir vel söguna. Alexander er svo
jarðbundinn og rólegur.“
Eyjólfur Magnús segir að myndin
sé mjög stór í Danmörku og mikið
fjallað um hana. Til að mynda fer Al-
exander í viðtal til Danmarks radio
og TV 2, stærstu sjónvarpsstöðvanna,
í vikunni.
Langar að leika meira
Alexander bjó á Íslandi fyrstu fjög-
ur æviár sín en fluttist þá til Kaup-
mannahafnar og hefur búið þar síðan
ásamt móður sinni sem er dönsk.
Hann er ekki viss um að myndin verði
sýnd á Íslandi. „Það yrði samt
skemmtilegt því þá gæti föðurfjöl-
skyldan séð hana líka. Ég er samt
ekki viss um að dönsku brandararnir
yrðu góðir á íslensku en það yrði
örugglega hægt að segja eitthvað
annað á íslensku,“ segir Alexander
íbygginn. Hann langar til að leika
meira. „Ég hef verið að hugsa um að
þegar myndin kemur í sýningu þá
spyrja mig kannski einhverjir hvort
ég vilji leika í öðru. Þá get ég kannski
prófað að vera einhver annar en
William.“
Finnst kúl að leika í kvikmynd
Alexander leik-
ur aðalhlutverkið
í Jeg er William
Ég er William Alexander Magnússon í hlutverki sínu ásamt Rasmus Bjerg sem leikur móðurbróður hans.
Ungur leikari Alexander Magnús-
son er jarðbundinn og rólegur.