Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 22
eldra en Ísraelsríki. Mæla má með
hótelinu fyrir þá sem ætla að dvelja í
Jerúsalem í nokkra daga. Það er
lúxushótel með marmara í hólf og gólf
og er gistingin verðlögð eftir því. Þjón-
ustustig er afar hátt. Á annan tug
þjóna fylgdist með gestum yfir morg-
unverðinum og snerist í kringum þá.
Einn þjóninn hafði starfað þar í 39 ár.
Saga hótelsins er samofin nútíma-
sögu Ísraels. Á fyrstu hæðinni er lang-
ur gangur þar sem frægir gestir hafa
ritað nafn sitt á marmarahellur í gólf-
Þ
að er mikil upplifun að
heimsækja Jerúsalem í
byrjun jólamánaðarins.
Fáir ferðamenn eru á
ferli og biðraðir við helstu
staði eru stuttar. Það er því þægilegt
að ferðast um borgina. Hitinn er eins
og á góðum sumardegi á Íslandi, 17-20
gráður.
Á tveimur dögum má sjá margar af
merkustu minjum kristninnar í borg-
inni þar sem Jesús Kristur var kross-
festur. Borgin hefur verið undir stjórn
margra helstu heimsvelda síðustu ár-
þúsunda.
Ferðamálaráðuneyti Ísraels og
WOW Air buðu Morgunblaðinu til
landsins helga. Flogið var til Ben
Gurion-flugvallar í Tel Aviv og ekið
þaðan til Jerúsalem. Flugið tók um sjö
tíma og aksturinn um klukkustund.
Dvalið var á Hóteli Davíðs konungs
(King David Hotel) í Jerúsalem. Borg
Davíðs, sem var á fjallshrygg suður af
Móría-fjalli, var nefnd eftir konung-
inum. Af rótum hennar er Jerúsalem
sprottin. Borg Davíðs er nefnd Síon í
Gamla testamentinu.
Frá Hóteli Davíðs konungs er út-
sýni yfir gömlu borgina og Móría-fjall.
Það kemur mikið við sögu Abrahams-
trúarbragðanna; gyðingdóms, kristni
og íslam.
Á svæðinu hafa fundist mannvistar-
leifar allt frá koparöld, sem talin er
hefjast um 5.000 f.Kr.
Svæði sem virðist litlu stærra en
Grjótaþorpið í Reykjavík er vett-
vangur atburða sem mótað hafa trúar-
brögð milljarða manna.
Rætur eingyðistrúarbragða
Abraham er sagður afkomandi Adams
og Evu og ættfaðir Ísraelsmanna. Jes-
ús Kristur var afkomandi hans. Abra-
ham eignaðist son með þræl sínum,
Hagar, og fékk hann nafnið Ísmael.
Múslímar rekja ættir Múhammeðs til
Ísmaels. Rætur helstu eingyðis-
trúarbragða heimsins liggja því í Jerú-
salem.
Frá því er sagt í fyrstu Mósebók að
Jakob, barnabarn Abrahams, glímdi
við Guð sem var dulbúinn sem maður.
„Ekki skaltu lengur heita Jakob held-
ur Ísrael því að þú hefur glímt við Guð
og menn og unnið sigur,“ segir í Móse-
bók. Þaðan er nafn landsins helga
komið.
Á Móría-fjalli var musteri sem er
sögusvið margra frásagna af Jesú
Kristi. Þar velti hann borðum víxl-
aranna, þeirra sem seldu fórnardýr.
Um þá sölu er fjallað í bókinni
Jerusalem: The biography eftir sagn-
fræðinginn Simon Sebag Montefiore.
Þar er því lýst hvernig dúfur, lömb og
uxar voru seld sem fórnardýr. Fátæki
maðurinn keypti dúfu en sá ríki uxa.
Yfir 200 þúsund lömbum var fórnað á
fórnarhátíðum á Musterishæðinni.
Nútímahverfi gyðinga
Bók Montefiore er ágætur leiðarvísir
um borgina. Lýsingar af valdatafli
konunganna eiga ekki heima í grein
um borgina helgu á jólum. Afi Monte-
fiore, bankamaðurinn Móses Monte-
fiore, byggði á 19. öld fyrsta nútíma-
hverfi fyrir gyðinga í Jerúsalem neðar
á hæðinni þar sem síðar reis Hótel
Davíðs konungs. Það er utan gömlu
borgarmúranna. Fyrst um sinn töldu
gyðingar sig ekki óhulta í hverfinu.
Sagt er að Móses hafi þá borgað bedú-
ínum fyrir að gæta hverfisins. Töldu
gyðingar þá óhætt að koma sér þar
fyrir.
Hótel Davíðs konungs er hluti af
Dan-hótelkeðjunni, sem heitir eftir
einni af tólf ættkvíslum Ísraels. Það
var stofnað árið 1947 og er því ári
inu. Þar má meðal annars sjá nöfn
Bandaríkjaforseta sem hafa sett mark
sitt á sögu landsins. Donald Trump og
fylgdarlið tók yfir hótelið í maí þegar
forsetinn sótti Ísraelsmenn heim.
Fyrr í mánuðinum var morgun-
verðarsalurinn lokaður af og komið
fyrir vopnaleitarhliðum. Sagt var að
Benjamín Netanyahu, forsætisráð-
herra Ísraels, væri á leiðinni. Öryggis-
gæsla við hótelið var þá efld til muna.
Íslenski hópurinn var því miður þá
farinn til Dauðahafsins.
Leiðsögumaðurinn Eli Gertner sýnir hópnum Davíðsturninn.
Í borginni helgu í jólamánuðinum
Borgin helga, Jerúsalem, hefur dularfullt seiðmagn sem kallar á ferðamenn að snúa aftur. Borgin hefur verið bitbein
heimsvelda í gegnum árþúsundin. Daglega streyma pílagrímar að sögusviði gyðingdóms, kristni og íslam.
Baldur Arnarson | baldura@mbl.is
Gullin Klettahvelfingin glóir eins og sólstjarna við Musterishæðina.
Morgunblaðið/Baldur
Þjónustan afbragð
Á Hóteli Davíðs konungs eru 233 her-
bergi í mörgum flokkum, allt frá litlum
herbergjum upp í tveggja hæða svítur.
Á svítunum hafa frægir valdsmenn og
Hollywood-leikarar notið góðra veiga.
Fjórir veitingastaðir/barir eru á hót-
elinu. Stór sundlaug í hótelgarðinum
var lokuð í byrjun mánaðarins, enda
vetur. Við laugina er hægt að panta
létta máltíð og drykki frá apríl til
október.
Eins og á flestum hótelum í Jerú-
salem eru veitingastaðir á Hóteli
Davíðs konungs kosher-staðir. Það
þýðir að maturinn samræmist hefðum
gyðinga. Svínakjöt – og þar með beik-
on – er ekki á boðstólum.
Frá hótelinu er útsýni yfir Davíðs-
turninn og þangað er ferðinni heitið
fyrsta morguninn.
Fararstjóri okkar var Eli Gertner.
Foreldrar hans fæddust í Rúmeníu.
Með Molotov-Ribbentrop-sáttmál-
anum milli Sovétmanna og nasista
1939 voru heimkynni þeirra innlimuð í
Sovétríkin. Gertner er einn margra
núlifandi Ísraelsmanna sem eiga slíka
ættarsögu. Var leiðsögn hans fram-
úrskarandi. Þeim gyðingum fækkar
ört sem muna hörmungar gyðinga á
síðustu öld.
Konungur gyðinga
Við vesturhluta gömlu borgarinnar í
Jerúsalem eru minjar virkisveggja við
Davíðsturninn. Innan þeirra er safn
um sögu Jerúsalem. Þar er stiklað á
stóru í sögu borgarinnar.
Fram kemur á vef safnsins að Davíð
konungur tengist þessum vegg-
hleðslum á engan hátt. Nafngiftin sé
tilkomin vegna rangrar túlkunar
kirkjufeðra á austrómverska tíma-
bilinu á skrifum Jósefos Flavíos, helsta
sagnfræðings gyðinga á fornöld. Turn
FERÐALÖG
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.12. 2017