Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.12. 2017
LESBÓK
KVIKMYNDIR Christopher Plummer fær
mjög góða dóma fyrir leik sinn í mynd Rid-
ley Scott All the Money in the World og þyk-
ir sýna mikla dýpt í leik sínum.
Plummer kom í stað Kevins Spacey í
myndinni og er í hlutverki ríkasta manns
heims Johns Pauls Getty. Myndin, fjallar um
það þegar Paul, barnabarni Getty, var rænt.
Aðeins mánuði fyrir frumsýningu hennar
var Spacey ásakaður um kynferðisbrot og
ákvað Scott að klippa hann úr myndinni og
skipta honum út fyrir Plummer. Tökur með
Plummer stóðu yfir í níu daga og kostuðu í
kringum tíu milljónir dala.
Plummer lofaður
Christopher
Plummer
SJÓNVARP Netflix var að tilkynna að það ætli að
láta gera aðra þáttaröð af hinni þýsku Dark.
Þættirnir þykja einstaklega flottir og dularfullir
og hafa ófáir lagst í hámhorf á þessum tíma-
flakksþáttum, sem voru markaðssettir sem þýska
útgáfan af Stranger Things. Kelly Luegenbiehl
talsmaður Netflix var ánægð með að deila þessum
fréttum: „Við áttuðum okkur snemma á því að við
hefðum aldrei séð neitt þessu líkt áður, hvort sem
er í Þýskalandi eða annars staðar í heiminum.
Dark er dæmi um að landafræði skiptir ekki máli
þegar sagan er frábær. Við erum ánægð með að
meðlimir okkar víðs vegar um heiminn hafa
heillast af hinni dularfullu veröld í Winden.“
Önnur þáttaröð Dark
Þýsku þættirnir Dark hafa slegið í gegn á Netflix.
Rocket League.
Rocket League
aldrei vinsælli
TÖLVULEIKIR Leikurinn Rocket
League hefur aldrei verið vinsælli
og hefur þar mikið að segja að leik-
urinn kom út á Nintendo Switch.
Psyonix, framleiðendur leiksins,
segja að 2017 hafi verið besta árið
hingað til fyrir þennan vinsæla leik
þar sem bílar keppa í fótbolta. Leik-
urinn er sem stendur á toppnum í
vefbúð Nintendo.
KVIKMYNDIR Fyrsta stiklan fyrir
Mamma Mia 2 var frumsýnd í lok
vikunnar. Eitt af því sem þar kemur
fram er að hún leiki ömmu Amöndu
og sést hún með ljóst hár og sól-
gleraugu. Amanda heyrist segja í
stiklunni: „Amma, þér var ekki boð-
ið.“ Cher svarar: „Það eru bestu
partýin.“
Cher leikur í
Mamma Mia 2
Cher í framhaldsmynd Mamma Mia.
FÓLK Mikil sorg ríkir í Suður-
Kóreu eftir lát einnar helstu popp-
stjörnu landsins, söngvarans Jong-
hyun, sem var aðalsöngvari sveitar-
innar SHINee. Hann fyrirfór sér í
vikunni en hann glímdi við þung-
lyndi. Félagar hans í hljómsveitinni
báru hann til grafar auk meðlima
úr poppsveitinni Super Junior.
Jonghyuns er sárt saknað.
Sorg í Kóreu
Billy Bob Thornton var kannski ekki
jólalegasti jólasveinninn í Bad Santa
(2003) en persónan Willie er sannar-
lega ein sú eftirminnilegasta. Hann er
svindlari sem ákveður að leika jólasvein
í verslunarmiðstöð aðeins til að geta
rænt og ruplað á aðfangadagskvöld.
Jólasveinar á hvíta tjaldinu
Tim Allen er e.t.v. sá
jólalegasti af þeim öllum
í The Santa Clause
(1994), sem er grín-
mynd fyrir alla fjölskyld-
una. Allen leikur mann
sem drepur óvart jóla-
sveininn á aðfangadags-
kvöld og fyrir töfra þarf
hann að setja upp jóla-
sveinahúfuna og standa
sig í hlutverkinu. Áhorf-
endunum líkaði myndin
vel og voru gerðar tvær
framhaldsmyndir þar
sem Allen endurtók
leikinn.
Jólasveinar eru yfirleitt ekki með byssu í hönd enda leikur Ben Affleck ekki
beint sveinka sjálfan í Reindeer Games (2000) heldur klæðist hann bún-
ingnum í þeim tilgangi að ræna spilavíti á aðfangadagskvöld.
Paul Giamatti leikur sveinka í grínmyndinni Fred Claus (2007). Þar er sérstaklega
fjallað um samband hans við við bitran eldri bróður hans, Fred Claus sem Vince
Vaughn leikur. Fred neyðist til þess að flytja á norðurpólinn til þess að hjálpa jólasvein-
inum og álfunum að undirbúa jólin í skiptum fyrir dágóða peningaupphæð.
Miracle on 34th Street (1994) er endurgerð af samnefndri sígildri
mynd frá 1947 en mörgum þykir þessi nýrri útgáfa með Richard
Attenborough betri. Hann leikur þar Kris Kringle sem hjálpar ungri
stúlku (Mara Wilson) að öðlast hinn sanna jólaanda.
Það eru fáir búningar eins einkennandi og rauði búningurinn með hvíta loðkantinum og
húfunni ómissandi í stíl. Nokkrir misvel skeggjaðir leikarar hafa klæðst honum á hvíta
tjaldinu og verða hér rifjaðir upp þeir eftirminnilegustu í hlutverki jólasveinsins.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is